Húsnæðisliðurinn er bastarður verðbólgunnar - Staða mála minnir á 2003 til 2005

Mælingar á vísi­tölu neyslu­verðs, það er verð­bólg­unni, eru oft­ast ekki með hús­næð­islið­inn inn­an­borðs á alþjóða­vetta­vangi. Hér á landi er hús­næð­islið­ur­inn það sem heldur „lífi“ í henni þessa dag­ana.

Ef hús­næð­islið­ur­inn væri ekki inn í verð­bólgu­mæl­ingum Hagstofu Íslands væri verð­bólgan nú 0,3 pró­sent, en ekki 1,8 pró­sent. Þannig má líkja honum við bastarð hvað verð­bólgu­mæl­ing­arnar varðar þessi miss­erin.

Í Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands, sem komu út í síð­ustu viku, er stöðu mála nú líkt við þróun mála í hag­kerf­inu á árunum 2003 til 2005. Þá hafði mikil og hröð hækkun hús­næð­is­verðs, ekki síst eftir að bank­arnir hófu að lána 100 pró­sent lán haustið 2004, áhrif á verð­bólgu til hækk­unar. Á ein­ungis fjórum mán­uðum lán­uðu bank­arnir 115 millj­arða til kaupa á hús­næði og tóku raunar alveg yfir það hlut­verk að veita ný hús­næð­is­lán. Hús­næð­is­verð rauk upp, og verð­bólgan sam­hliða. Lánin voru að lang­mestu verð­tryggð, og með hag­stæð­ustu vöxtum sem þá þekkt­ust; 4,15 pró­sent.

Samhliða þess­ari þróun var síðan almennur upp­gangur í efn­hags­líf­inu og for­dæma­laus ofþensla hjá bæði hinu opin­bera og á einka­mark­aði. Óþarfi er, í þess­ari grein, að rekja til fulls afleið­ing­arnar, en í stuttu máli lauk skeið­inu með for­dæma­lausri neyð­ar­laga­setn­ingu og alls­herj­ar­hruni bank­anna 7. til 9. októ­ber 2008.

Hvað gerist nú?

En hvað er það sem Seðla­bank­inn er að horfa til á árunum 2003 til 2005, sem svipar til aðstæðna núna? Í Pen­inga­málum segir: „Sam­setn­ing verð­bólg­unnar minnir þó tölu­vert á stöð­una á árunum 2003-2005 þegar mæld verð­bólga var lítil m.a. vegna þess að gengi krón­unnar hækk­aði og inn­flutt verð­bólga var lítil á sama tíma og inn­lendur verð­bólgu­þrýst­ingur, sem kom m.a. fram í miklum hækk­unum á hús­næð­is­verði, var tölu­verður. Þegar gengi krón­unnar gaf eftir árið 2006 jókst verð­bólga hratt. Í ljósi mik­ils verð­bólgu­þrýst­ings frá vinnu­mark­aði núna og vax­andi fram­leiðslu­spennu í þjóð­ar­bú­skapnum eru því nokkrar líkur á að mæld verð­bólga end­ur­spegli ekki að fullu þann und­ir­liggj­andi verð­bólgu­þrýst­ing sem er fyrir hendi. Horfur eru því á að verð­bólga auk­ist á ný þegar áhrif lækk­unar alþjóð­legs vöru­verðs fjara út.“

Peningastefnunefnd hækkar vextina

Þetta mat sem þarna birt­ist hefur verið helsta rök­semdin fyrir hækkun stýri­vaxta að und­an­förnu, nú síð­ast um 0,25 pró­sentu­stig upp í 5,75 pró­sent. Nefndin er þannig í reynd að hækka vext­ina vegna verð­bólgu sem ekki er komin fram en er byrjuð að hlað­ast upp með efna­hags­legum óveð­ur­skýum. Fyrir fólk með hús­næð­is­lán ætti þetta að vera nokk­urt áhyggju­efni, hvort sem um er að ræða verð­tryggð eða óverð­tryggð lán. Þeir sem eru með fasta óverð­tryggða vextir til þriggja eða fimm ára, eins og bank­arnir bjóða nú, eru með fast land undir fótum hvað greiðslu­byrði og höf­uð­stól lána varðar, en hinir eru með óviss­una í fang­inu, ef svo má að orði kom­ast. Leigj­endur fá áhrifin einnig fram, enda oft­ast nær vísi­tölu­teng­ingar í samn­ingum, eða end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði sem tryggja hag leigu­sala.

Hvað gerist ef allar örvar benda í eina átt?

Seðla­bank­inn greinir stöðu mála nú með þeim hætti, að verð­þróun á ýmsum hrá­vörum, meðal ann­ars olíu, hafi haldið niðri inn­fluttri verð­bólgu, með beinum og óbeinum hætti, á und­an­förnum mán­uðum. Lækkanir á hinum ýmsu vörum hafa áhrif á fram­leiðslu og inn­kaupa­verð á end­anum, þó mis­langan tíma taki fyrir slíka þróun að hafa áhrif í verð­bólg­unni hér á landi. Verð á hrá­olíu hefur lækkað mikið á und­an­förnum tólf mán­uðum. Farið úr tæp­lega 110 Banda­ríkja­dölum á tunn­una niður í 45 til 50 Banda­ríkja­dali nú.

Ómögu­legt er að full­yrða um þróun mála, þegar verð­lagið er ann­ars vegar, en svo virð­ist sem Pen­inga­stefnu­nefnd sé að vara við því að allar efna­hags­legar örvar, sem kynda undir verð­bólg­unni, geti snú­ist hratt í sömu átt. Það er að inn­lend verð­bólga hækki sam­hliða hröðum launa­hækk­unum á bæði opin­berum og almennum vinnu­mark­aði, áhrifa alþjóð­legrar þró­unar á hrá­vöru­mörk­uðum hætti að gæta í verð­bólgu­mæl­ingum, og hús­næð­is­verð haldi áfram að hækka með til­heyr­andi verð­bólgu­aukn­ingu.

Hringekja sem fólk ætti að velta fyrir sér

Þá má búast við að gripið verði til frek­ari vaxta­hækk­ana, jafn­vel þó vaxt­ar­mun­ar­við­skipti erlenda spá­kaup­manna, sem hafa auk­ist um 50 millj­arða frá því í sumar, muni halda áfram að vaxa með til­heyr­andi styrk­ing­ar­á­hrifum á gengi krón­unnar.

Þessa hringjekju þekkja íslenskir neyt­endur ágæt­lega, og lítið annað hægt að gera en að vona það besta, en búast jafn­framt við því að þrátt fyrir um margt ágætar efna­hags­horfur í augna­blik­inu, þá geti ofþensla haft nei­kvæðar afleið­ingar í för með sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár