Fleiri vilja VG, Bjarta framtíð og Viðreisn í ríkisstjórn en Sjálfstæðisflokkinn

Kjós­endur Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar ákváðu sig helst á kjör­dag hvað þeir ætl­uðu að kjósa en kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks ákváðu sig helst meira en mán­uði fyrr. Flestir vilja Vinstri græn í rík­is­stjórn en fæstir Sam­fylk­ingu.

Flestir Íslend­ingar vilja Vinstri græn í rík­is­stjórn. Aðspurðir hvaða flokka, tvo eða fleiri, almenn­ingur vill sjá mynda nýja rík­is­stjórn svör­uðu 67 pró­sent að þeir vildu sjá Vinstri græn í slíkri. Næst flestir nefndu Bjarta fram­tíð (66 pró­sent) og 59 pró­sent nefndu Viðreisn. Þar á eftir kemur stærsti flokkur lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokkur, með 57 pró­sent. Fæstir vilja sjá Sam­fylk­ing­una, minnsta flokk­inn á þingi, í rík­is­stjórn eða fimmt­ungur aðspurða. 24 pró­sent vilja sjá Fram­sókn­ar­flokk­inn í slíkri og 34 pró­sent Pírata. Þetta kemur fram í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup.

Kjósendur Vinstri grænna ekki heitir fyrir hægri flokkunum

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja nær allir (98 pró­sent) sjá sinn flokk í rík­is­stjórn og 88 pró­sent þeirra vilja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verði þar með honum. Þá segja átta af hverjum tíu kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks að þeir vilji fá Viðreisn í rík­is­stjórn. Einungis 22 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja að Vinstri græn sitji í rík­is­stjórn. Enn færri vilja Pírata (16 pró­sent) eða Sam­fylk­ing­una (15 pró­sent) við rík­is­stjórn­ar­borðið.

Kjós­endur Vinstri grænna vilja að sama skapi að flokk­ur­inn sitji í rík­is­stjórn (98 pró­sent). Einungis 45 pró­sent þeirra vilja hins vegar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geri slíkt hið saman. Mun meiri áhugi er á meðal kjós­enda Vinstri grænna á að Sam­fylk­ingin (93 pró­sent), Píratar (86 pró­sent) og Björt fram­tíð (73 pró­sent) sitji í rík­is­stjórn. Athygli vekur að kjós­endur Vinstri grænna vilja síst að Viðreisn sitji í rík­is­stjórn (42 pró­sent). Nú standa yfir form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður milli fimm flokka: Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Bjartrar fram­tíðar, Pírata og Við­reisnar.

Þegar spurt er út í sér­stök stjórn­ar­mynstur er rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar efst á blaði, en 12 pró­sent aðspurðra vildu sjá hana verða að veru­leika. Þessir flokkar reyndu að mynda rík­is­stjórn fyrr í þessum mán­uði en án árang­urs. Næst þar á eftir kemur fimm flokka stjórn þeirra flokka sem nú reyna að koma saman rík­is­stjórn, en tíu pró­sent aðspurðra vilja að þeir geri slíkt. Af þeim stjórn­ar­mynstrum sem eru ger­leg til að mynda meiri­hluta­stjórn vilja lang­flestir kjós­endur Vinstri grænna, Pírata og Sam­fylk­ingar að fimm flokka stjórnin verði að veru­leika. Kjós­endur Bjartrar Fram­tíðar, Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar voru hins vegar allir hrifn­astir af þriggja flokka stjórn þeirra flokka.

Flestir kjósendur Bjartrar framtíðar og Viðreisnar ákváðu sig á kjördag

Í könn­un­inni var fólk einnig spurt hvenær það hefði tekið ákvörðun um hvað það ætl­aði að kjósa í nýaf­stöðnum kosn­ingum. Innan við þriðj­ungur lands­manna hafði tekið ákvörðun mán­uði fyrir kosn­ingar, sem er mun minna hlut­fall en 2009 (38 pró­sent) og 2007 (57 pró­sent). Alls ákváðu 17 pró­sent lands­manna sig í kjör­klef­anum eða á kjör­stað.

34 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar ákváðu í kjör­klef­anum eða á kjör­stað hvað þeir ætl­uðu að kjósa og 20 pró­sent til við­bótar sam­dæg­urs áður en þeir mættu á kjör­stað. 24 pró­sent þeirra sem kusu Viðreisn ákváðu í kjör­klef­anum eða á kjör­stað hvað þeir ætl­uðu að kjósa og 22 pró­sent ákváðu sig sam­dæg­urs en áður en þeir mættu á kjör­stað. Þeir sem kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn voru lík­leg­astir til að ákveða sig meira en mán­uði fyrir kosn­ingar, en 46 pró­sent þeirra hafði gert það. Einungis 20 pró­sent kjós­enda flokks­ins ákvað sig á kjör­dag eða í kjör­klef­anum, sem er lægsta hlut­fall allra sem ákváðu hvað þeir ætl­uðu að kjósa þá.

Nið­ur­stöð­urnar eru úr net­könnun sem gerð var dag­ana 3. til 14. nóv­em­ber 2016. Heild­ar­úr­taks­stærð var 1.424 og þátt­töku­hlut­fall var 59,1 pró­sent. Ein­stak­lingar voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár