MS stofnaði Ísey ehf. fyrir erlenda starfsemi

MS færði alla erlendu starf­semi sína til nýstofn­aðs dótt­ur­fé­lags síns, Íseyjar ehf. í gær.

Húsnæði Mjólkursamsölunnar.
Húsnæði Mjólk­ur­sam­söl­unnar. Mynd: Aðsend

Öll erlend starf­semi Mjólk­ur­sam­söl­unnar hefur verið flutt yfir í nýstofnað dótt­ur­fé­lag MS, Íseu útflutn­ing ehf. Þetta kemur fram í nýbirtri frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni átti flutn­ingur starf­sem­innar sér stað í gær, en breyt­ing­arnar séu liður í því að setja meiri kraft og fókus í alþjóð­lega vöru­merkið Ísey skyr á erlendum mörk­uðum. Ísey útflutn­ingur ehf. mun þó einnig sjá um allan annan útflutn­ing á vörum sem MS selur á erlenda mark­aði. Breyt­ingin muni eki hafa nein áhrif á dag­lega starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins.

Við skiptin lætur Jón Axel Pét­urs­son af störfum sem fram­kvæmda­stjóri sölu-og mark­aðs­sviðs MS og tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra hjá Ísey útflutn­ingi. Þá mun Erna Erlends­dóttir, sem sinnt hefur starfi útflutn­ings­stjóra MS, taka við sem sölu- og mark­aðs­stjóri hjá nýja félag­inu.

Ísey skyr er nú selt á ell­efu mörk­uðum víðs vegar um Evrópu, en í byrjun næsta árs mun varan einnig fást í Ástralíu, Nýja Sjálandi og Japan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skyr

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár