Útflutningur á skyri minnkar þrátt fyrir aukinn kvóta

Skyr­út­flutn­ingur til ESB-landa í fyrra var ein­ungis þriðj­ungur af því sem hann var árið 2018, þrátt fyrir að útflutn­ings­kvót­inn hafi marg­fald­ast.

Alls voru flutt út 516 tonn af skyri til landa innan Evr­ópu­sam­bands­ins í fyrra, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Þetta er mun minna en á árunum 2019 og 2018 og langt frá því að fylla útflutn­ings­kvót­ann, sem hefur tífald­ast á síð­ustu árum.

Betra skilaverð með skyrútflutningi

Samkvæmt Mjólk­ur­sam­söl­unni hefur verið unnið mark­visst að því að auka útflutn­ing og sölu á skyri til nágranna­landa Íslands á síð­ustu árum, þar sem mjólk­ur­fram­leið­endur fái betra skila­verð á mjólk­inni þannig heldur en með öðrum útflutn­ings­leiðum.

Á þetta minnt­ist einnig Einar Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Auðhumlu og MS, árið 2010, en sam­kvæmt honum er fram­legð af útflutn­ingi skyrs mun betri en í útflutn­ingi und­an­rennu­dufts og svipuð fram­legð­inni af skyri á inn­an­lands­mark­aði.

Meira flutt út og stærri kvóti

Á næstu árum marg­fald­að­ist útflutn­ingur á skyri til ESB-landa, úr 20 tonnum árið 2010 í 1.422 tonn árið 2018. Samhliða þess­ari aukn­ingu beittu íslensk hags­muna­sam­tök sér fyrir því að toll­frjáls kvóti til Evrópu, sem var þá í 380 tonnum, yrði rýmk­aður.

Samkvæmt skýrslu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um milli­ríkja­við­skipti á búvörum leiddi þessi þrýst­ingur til þess að Ísland hóf samn­inga­við­ræður við ESB um aukið frelsi í við­skiptum með land­bún­að­ar­vörur, árið 2012. Við­ræð­unum lauk svo með samn­ingi sem var und­ir­rit­aður árið 2015 og fól í sér stór­auk­inn útflutn­ings­kvóta á skyri.

Ákveðið var að auka kvót­ann úr 380 tonnum í tæp þús­und tonn árið 2018, rúm 2.000 tonn árið 2019 og svo rúm 3.000 tonn í fyrra. Í ár nemur toll­frjáls útflutn­ings­kvóti á skyri til ESB fjögur þús­und tonnum.

Hröð minnkun eftir 2018

Þrátt fyrir stærri kvóta á þessum árum hefur útflutn­ingur á skyri til Evr­ópu­sam­bands­ins hins vegar ekki auk­ist. Þvert á móti hefur hann minnkað hratt sam­kvæmt tölum Hagstofu um vöru­út­flutn­ing eftir toll­skrár­núm­erum. Þannig dróst magn skyr­út­flutn­ings til ESB-landa saman um rúman þriðj­ung árið 2019 og nam þá 922 tonnum. Í fyrra dróst svo magnið aftur saman um tæpan helm­ing og nam þá 516 tonnum. Þróunina má sjá á mynd hér að neðan.

Nýting íslenskra skyr­út­flytj­enda á toll­kvótum, sem var vel yfir 100 pró­sent á árunum 2012-2015 og árin 2017-2018, hefur því minnkað til muna. Árið 2019 nam nýt­ingin 42 pró­sentum sam­kvæmt Hagstofu, og lækk­aði hún svo niður í 17 pró­sent í fyrra.

Þessar tölur gætu hins vegar ofmetið útflutn­ing til Evr­ópu­sam­bands­ins, þar sem þær telja með útflutn­ing á skyri til Sviss. Samkvæmt tölum frá Evr­ópu­sam­band­inu fluttu Íslend­ingar aðeins út 100 tonn af skyri til ESB-landa árið 2019 og nýttu því ein­ungis 4,5 pró­sent af útflutn­ings­kvót­anum þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skyr

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár