Útboðið í ósamræmi við tilmæli OECD um einkavæðingu

Þátttaka sölu­ráð­gjafa í lok­uðu útboði Íslands­banka er ekki í sam­ræmi við til­mæli OECD um hvernig eigi að standa að einka­væð­ingu á fyr­ir­tækjum í rík­i­s­eigu. Stofn­unin segir mik­il­vægt að rétt sé farið að slíkri sölu til að koma megi í veg fyrir spill­ingu.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sölu­ferlið á hlutum í Íslands­banka var ekki í sam­ræmi við til­mæli Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD), þar sem ekki var komið í veg fyrir hags­muna­á­rekstra sölu­ráð­gjafa. Einnig benda sam­tökin á að meta þurfi hæfi nýrra kaup­enda og rekstr­ar­á­ætl­anir þeirra, auk þess sem færa þurfi sterk rök fyrir því að setja skuli afslátt á sölu­virði rík­is­eigna. Þetta kemur fram í skýrslu sam­tak­anna um einka­væð­ingu á fyr­ir­tækjum í rík­i­s­eigu sem birt var 2019.

Ráðherrafaðir, hrunmenn og söluráðgjafar

Líkt og Kjarninn hefur greint frá birti fjár­mála­ráðu­neytið list­ann yfir þá 209 aðila sem fengu að kaupa hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur vikum síðan með afslætti. Á þeim lista voru meðal ann­ars hluta­fé­lög í eigu Bene­dikts Sveins­sonar, föður fjármala­ráð­herra og Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, sem er með stöðu sak­born­ings í rann­sókn á meintum mútu­brotum, skattsvikum og pen­inga­þvætti.

Einnig var þar að finna félög í eigu fjár­festa sem komu að banka­rekstri hér­lendis á árunum fyrir fjár­mála­hrunið, þegar bank­arnir urðu gjald­þrota og voru þjóð­nýttir. Þeirra á meðal var fjár­fest­ing­ar­fé­lagið SKEL, en stjórn­ar­for­maður félags­ins, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, kom að félögum sem voru á meðal stærstu hlut­hafa Glitnis banka, for­vera Íslands­banka, þegar hann féll í októ­ber 2008. Eitt þeirra félaga, FL Group, heitir í dag Stoðir og er stýrt af Jóni Sig­urðs­syni. Hann var for­stjóri FL Group fyrir banka­hrun og sat sem vara­for­maður stjórnar Glitnis. Stoðir er einnig á meðal kaup­enda í Íslands­banka. Þá keyptu félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­mund­sona, sem oft­ast eru kenndir við Bakkavör, einnig fyrir mörg hund­ruð millj­ónir króna í útboði 22. mars, en þeir voru stærstu eig­endur Kaup­þings áður en sá banki hrundi 2008. Lýður var dæmdur til fang­els­is­vistar eftir banka­hrunið.

Félagið Lyf og Heilsa hf., sem keypti í lok­aða útboð­inu fyrir rúmum tveimur vikum, er í eigu Jóns Hilmars Karls­sonar. Faðir hans, Karl Wern­ers­son, átti áður félagið en seldi syni sínum það áður en hann varð gjald­þrota. Þrotabú Karls höfð­aði í kjöl­farið nokk­ur rift­un­­ar­­mál þar sem talið var að eign­um hefði verið komið und­an kröf­u­höf­um, meðal ann­­ars með því að eign­um Karls væri komið yfir til Jóns Hilm­­­ars. Karl var aðal­eig­andi fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Milestone fyrir banka­hrun, sem var um tíma á meðal stærstu eig­enda Glitn­is. Hann hefur setið í fang­elsi fyrir alvar­leg efna­hags­brot tengd hrun­inu.

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf., sem er í eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Sam­herja og Helgu S. Guð­munds­dótt­ur, fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, keypti hluta­bréf í lok­aða útboð­inu fyrir 296,3 millj­ónir króna. Þor­steinn hefur áður komið að banka­rekstri en hann var stjórn­ar­for­maður Glitnis þegar sá banki fór í þrot haustið 2008. Hann er sem stendur með stöðu sak­born­ings í virkri lög­reglu­rann­sókn á meintum mútu­greiðslum, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu.

Vísir greindi svo frá því í gær að eig­endur og starfs­menn umsjón­ar­að­ila útboðs­ins væru einnig á meðal kaup­enda. Þeirra á meðal var Þorbjörg Stef­áns­dóttir, sem er helm­ings­eig­andi í Íslenskum verð­bréfum, sem var einn af fimm fyr­ir­tækjum sem kom að ráð­gjöf um sölu­ferlið. Þorbjörg er einnig eig­in­kona Jóhanns M. Ólafs­sonar, fram­kvæmda­stjóra Íslenskra verð­bréfa.

Hvað er hæfur fjárfestir?

Í grein­ar­gerð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um áfram­hald­andi sölu á hlutum í Íslands­banka var sölu­ferlið útskýrt, en þar var lagt til að næsta skref í sölu­ferl­inu fæli í sér lokað útboð til „hæfra fjár­festa“. Þetta hug­tak er skil­greint í ESB til­skipun sem inn­leidd hefur verið hér á landi, en sam­kvæmt henni geta ein­stak­lingar sem eru búsettir hér­lendis talist til hæfra fjár­festa ef þeir upp­fylla tveimur af þremur eft­ir­far­andi skil­yrðum:

  • Þeir hafi að minnsta kosti stundað við­skipti 40 sinnum á verð­bréfa­mark­aði síð­ustu tólf mán­uði, að með­al­tali tíu sinnum á hverjum árs­fjórð­ungi
  • Eignir þeirra í verð­bréfum nemi meira en 500.000 evrum, eða um 69,8 millj­ónum króna
  • Þeir hafi gegnt stöðu á fjár­mála­mark­aði sem krefj­ist sér­þekk­ingar á fjár­fest­ingum í verð­bréfum í að minnsta kosti eitt ár.

Til við­bótar við þetta telj­ast fjár­mála- og fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki, auk rík­is­stjórna, sveit­ar­stjórna, seðla­banka og alþjóða­stofn­ana til hæfra fjár­festa. Það er svo í höndum fjár­mála­fyr­ir­tækja að meta það hvort ein­stak­lingar eða smærri fyr­ir­tæki telj­ist til hæfra fjár­festa.

Ekki voru gerðar fleiri kröfur á fjár­fest­ana sem fengu að taka þátt í lok­uðu sölu­út­boði. Hins vegar segir í grein­­ar­­gerð­inni um banka­söl­una að þeir myndu fá afslátt af kaup­verði í hluta bank­ans vegna þess að þeir væru að kaupa stærri hlut í bank­­­anum en aðr­ir, auk þess sem óvissa væri um nákvæma þróun hluta­bréfa­verðs­ins á vik­unum eftir útboð­ið.

Þrátt fyrir þessi til­mæli fengu margir fjár­festar að kaupa minni hluti í Íslands­banka á afslætti. Samkvæmt list­anum sem birtur var á mið­viku­dag­inn keyptu 22 ein­stak­lingar og lög­að­ilar hlut í bank­anum að and­virði 10 millj­óna króna eða minna. Þetta er tölu­vert minna en með­al­upp­hæð við­skipta sem eiga sér stað með hluti í bank­ann á opnum hluta­bréfa­mark­aði í Kaup­höll­inni, en sam­kvæmt vef Keld­unnar nam með­al­virði hverra við­skipta í bank­anum 18,75 millj­ónum króna í gær.

Hæfismat og rekstraráætlun nauðsynleg

OECD gaf út leið­ar­vísi að einka­væð­ingu fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu árið 2019, sem hægt er að nálg­ast hér. Samtökin segja leið­ar­vís­inn byggja á alþjóð­lega við­ur­kenndum við­miðum, auk ára­tuga reynslu um einka­væð­ingu innan aðild­ar­ríkja OECD og ann­arra þjóða.

Í leið­ar­vís­inum stendur sér­stak­lega að huga verði að hæfi nýrra kaup­enda fyr­ir­tækj­anna í einka­væð­ing­unni og sjá til þess að engir ótil­greindir hags­muna­á­rekstrar lægju þar fyrir og að rekstr­ar­á­ætlun lægi fyrir hjá nýjum eig­endum. Samkvæmt sam­tök­unum er skortur á nægi­lega góðu hæf­is­mati kaup­enda var­úð­ar­merki (e. red flag) sem gæti boðið upp á hættu um spill­ingu við einka­væð­ingu.

Söluráðgjafar ótengdir og afsláttur rökstuddur

Sömu­leiðis nefna sam­tökin mik­il­vægi þess að engir hags­muna­á­rekstrar séu til staðar hjá sölu­ráð­gjafa í einka­væð­ing­ar­ferl­inu. Hér sé mik­il­vægt að ráð­gjaf­arnir séu hvorki tengdir né að vinna fyrir kaup­endur í útboð­inu og gæti ein­ungis hags­muna rík­is­ins.

Einnig segir í leið­ar­vís­inum að ríkið hafi umboðs­skyldu gagn­vart borg­urum um að selja rík­is­eignir á mark­aðsvirði. Þó mætti selja þær á afslætti ef sér­stakar ástæður eru fyrir því, líkt og hugs­an­legar tækni­fram­farir vegna auk­innar erlendrar fjár­fest­ingar eða önnur jákvæð ytri áhrif við að fá nýja eig­endur. Þessar ástæður ættu þá að vera skýrt til­greindar af stjórn­völdum til að koma í veg fyrir að salan verði álitin hygla ein­stökum kaup­endum.

Uppfært 12. apríl: Í upp­haf­legu útgáfu frétt­ar­innar kom fram gömul skil­grein­ing á hæfum fjár­festum. Skil­grein­ingin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár