Réttast að forstjóri og stjórn Bankasýslunnar víki til þess að endurheimta traust

Þing­maður Vinstri grænna telur gagn­rýni­vert hvernig Banka­sýsla rík­is­ins hafi staðið að sölu í hluta í Íslands­banka. Hann telur að til að auð­velda end­ur­heimt trú­verð­ug­leika stofn­un­ar­innar verði for­stjóri og stjórn hennar að víkja.

Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna.
Bjarni Jónsson, þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Aðsend

Bjarni Jónsson, þinga­maður Vinstri grænna, segir ljóst að mörgum spurn­ingum sé ósvarað og að fara verði ofan í saumana á ferl­inu við sölu á hlut Íslands­banka, sem Banka­sýsla rík­is­ins sá um. Telur hann að trú­verð­ug­leiki stofn­un­ar­innar hafi beðið hnekki og að það myndi auð­velda henni að end­ur­heimta traust ef for­stjóri og stjórn hennar myndu víkja. Þetta skrifar Bjarni í pistli sem birt­ist á Vísi í morgun.

Þar segir Bjarni jafn­framt að ekki eigi að koma til álita að selja frek­ari hluti í Íslands­banka fyrr en öll kurl séu komin til grafar um fram­kvæmd­ina og að hags­munir almenn­ings verði tryggðir ásamt þeirri umgjörð við­skiptasið­ferðis sem beri að hafa við sölu rík­is­eigna.

Þó varar Bjarnir við því að grafið sé undan stöðu og hlut­verki Rík­is­end­ur­skoð­unar sem sjálf­stæðrar og óháðrar eft­ir­lits­stofn­unar Alþingis, en margir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa kallað eftir því að sér­stök rann­sókn­ar­nefnd Alþingis verði skipuð vegna máls­ins. Bjarni segir hins vegar að fyrsta og rök­rétta skrefið sé úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem hingað til hafi hlotið traust þing­manna og þing­nefnda til úttekta á smærri og stærri málum sem hafi komið til álita.

Rannsókn Rík­is­end­ur­skoð­unar úti­loki ekki að hægt verði að und­ir­búa frek­ari úttektir á ferl­inu á meðan á vinnu stofn­un­ar­innar standi, ef til þess séu ríkar ástæður. „Ef að und­an­geng­inni úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur í ljós að þörf sé á að fara frekar ofan í saumanna á ein­stökum þáttum, þá vænti ég þess að það verði gert,“ skrifar Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár