Ábyrgð ráðherra að upplýsa Alþingi

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um ráð­herra­á­byrgð. Efni frum­varps­ins tekur til upp­lýs­inga­skyldu ráð­herra gagn­vart Alþingi.

Oddný Harðardóttir
Oddný Harð­ar­dóttir

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði fram frum­varp til breyt­ingar á lögum um ráð­herra­á­byrgð í gær. Með henni voru flutn­ings­menn úr öllum fimm stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum. Frum­varpið kveður á um ábyrgð ráð­herra gagn­vart Alþingi ef hann greinir rangt frá, gefur þing­mönnum og þing­inu vill­andi upp­lýs­ingar eða leynir upp­lýs­ingum sem mik­il­vægar eru fyrir með­ferð mála á Alþingi.

Sam­bæri­leg frum­vörp hafa verið lögð fram áður, síð­ast á síð­asta lög­gjaf­ar­þingi en hafa ekki farið í efn­is­lega umræðu á þingi. Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að málið nú lagt fram að nýju sem liður í því að styrkja þing­ræðið og eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­inu.

Brot gegn upplýsingaskyldu varðar viðurlög

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að það er grund­vall­ar­for­senda lýð­ræðis að þjóð­kjörnir full­trúar hafi réttar upp­lýs­ingar til þess að byggja ákvarð­ana­töku sína á. Rangar upp­lýs­ingar geta hæg­lega leitt til þess að þingið kom­ist að annarri nið­ur­stöðu en ella. Þá getur skortur á upp­lýs­inga­gjöf leitt til trún­að­ar­brests milli þings og ráð­herra. Til að Alþingi megi sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu sem skyldi er afar mik­il­vægt að þing­menn fái nægi­legar, réttar og grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um þau mál sem eru til umfjöll­unar hverju sinni.

Til að und­ir­strika mik­il­vægi upp­lýs­inga­skyldu ráð­herra til Alþingis er í frum­varpi þessu lagt til að brot gegn henni, í formi rangra eða vill­andi upp­lýs­inga eða leynd upp­lýs­inga er hafa veru­lega þýð­ingu við með­ferð máls, varði við­ur­lögum sam­kvæmt almennum skil­yrðum laga um ráð­herra­á­byrgð.

Ráðherraábyrgð

Lög um ráð­herra­á­byrgð eru að stofni til frá 1963 og hefur lítið verið breytt frá þeim tíma. Þau kveða á um ábyrgð ráð­herra á stjórn­ar­fram­kvæmdum og hvenær megi krefja ráð­herra ábyrgðar. Meg­in­reglan er sú að það skuli gert ef ráð­herra hefur ann­að­hvort af ásetn­ingi eða stór­kost­legu hirðu­leysi farið í bága við stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins, önnur lands­lög eða að öðru leyti stofnað hags­munum rík­is­ins í fyr­ir­sjá­an­lega hættu.

Lög um ráð­herra­á­byrgð taka ekki sér­stak­lega til ábyrgðar ráð­herra varð­andi upp­lýs­inga­gjöf til Alþingis. Ákvæði 54. gr. stjórn­ar­skrár­innar tryggir þing­mönnum rétt til að óska upp­lýs­inga frá ráð­herrum. Hefur ákvæðið verið talið fela í sér rétt þing­manna til fyr­ir­spurna og skýrslu­beiðna. Í því felst hins vegar ekki almenn upp­lýs­inga- og sann­leiks­skylda ráð­herra gagn­vart Alþingi. En frum­varpið kveður á um að bætt verður við nýjum staf­lið við 10.gr laga um ráð­herra­á­byrgð:ef hann gefur Alþingi rangar eða vill­andi upp­lýs­ingar eða leynir upp­lýs­ingum er hafa veru­lega þýð­ingu við með­ferð máls á Alþingi.

Alþingi náði ekki að rækja eftirlitshlutverk sitt fyrir hrun

Ein af ábend­ingum í rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 var að Alþingi hefði ekki náð að rækja eft­ir­lits­hlut­verk sitt með hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds­ins með öfl­ugum hætti. Undir þetta tók þing­manna­nefnd sem fjall­aði um skýrsl­una. Lögð var áhersla á að auka sjálf­stæði þings­ins gagn­vart fram­kvæmd­ar­vald­inu og m.a. lagt til að þing­skap­a­lög, lög um ráð­herra­á­byrgð og Landsdóm yrðu end­ur­skoðuð með þetta að leið­ar­ljósi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár