Gagnrýnir einhliða umfjöllun fjölmiðla um heilbrigðisgeirann

Magnús Har­alds­son, geð­læknir við Land­spít­al­ann, kallar eftir í rit­stjórapistli Lækna­blaðs­ins að fjöl­miðlar axli meiri ábyrgð þegar það kemur að umfjöll­unum um heil­brigð­is­mál. Hann segir umfjöllun fjöl­miðla oft vera of nei­kvæða og ein­hæfa.

„Æskilegt væri að rit­stjórar og ábyrgð­ar­menn helstu fjöl­miðla lands­ins sett­ust niður með for­svars­mönnum heil­brigð­is­kerf­is­ins og ræddu hrein­skiln­is­lega um hvernig best sé að fjalla með ábyrgum og yfir­veg­uðum hætti um heil­brigð­is­mál,“ segir Magnús Har­alds­son í rit­stjórapistli nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins. Magnús er geð­læknir við Land­spít­al­ann ásamt því er hann dós­ent við lækna­deild Háskóla Íslands og situr í rit­stjórn Lækna­blaðs­ins.

Í pistl­inum gagn­rýnir Magnús að fjöl­miðlaum­fjöllun um heil­brigð­is­kerfið á Íslandi virð­ist nán­ast ein­ungis vera nei­kvæð og ein­streng­ings­leg. Hann segir það eðli­legt að mál­efni heil­brigð­is­kerf­is­ins séu oft til umfjöll­unar enda um mála­flokk sem snertir alla lands­menn ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni. Magnús segir íslenska fjöl­miðla nán­ast dag­lega fjalla á nei­kvæðan hátt um heil­brigð­is­mál, fréttir af sum­ar­lok­unum, kjara­deilum, biðlistum og miklu álagi á heil­brigð­is­starfs­fólk virð­ast vera einu frétt­irnar um heil­brigð­is­geir­ann sem endar á blað­síðum blað­anna.

„Þetta eru að sjálf­sögðu afar erfið mál og raun­veru­legar áskor­anir sem kerfið stendur frammi fyrir og mik­il­vægt er að fjalla um þau með gagn­rýnum hætti í fjöl­miðlum en það skiptir líka máli hvernig það er gert. Það er afar mik­il­vægt að umfjöllun fjöl­miðla um þennan mála­flokk sé yfir­veguð, byggð á stað­reyndum og að reynt sé að forð­ast gíf­ur­yrði og upp­hróp­anir.“ segir Magnús í pistl­inum.

„Heil­brigð­is­kerfið er dýr­asti og senni­lega flókn­asti hluti okkar sam­fé­lags og á fáum sviðum hafa orðið eins miklar fram­farir og breyt­ingar á und­an­förnum árum. Öll viljum við geta gengið að því vísu að þjón­ustan sé góð og að hún sé örugg og aðgengi­leg öllum sem á henni þurfa að halda. En að sjálf­sögðu er ekk­ert full­komið í þessum heimi. Því miður er fjöl­miðla­um­ræða um heil­brigð­is­mál oft á afar nei­kvæðum nótum og orð eins og úrræða­leysi, nið­ur­skurður, mann­ekla og fjársvelti eru algeng.“ segir Magnús.

Erfið mál einstakra sjúklinga

Magnús fjallar einnig um í pistl­inum hversu flóknar umfjall­anir um mál ein­staka sjúk­linga í fjöl­miðlum geta verið. Í dag er mjög auð­velt fyrir ein­stak­linga að deila per­sónu­legum reynslu­sögum sínum á sam­fé­lags­miðlum eða á net­miðlun. Algengt er orðið að bæði lýs­ingar frá sjúk­linga og sögur aðstand­enda af heil­brigð­is­kerf­inu séu birtar á net­inu, þær lýs­ingar snú­ast oft um óánægju um sam­skipti við heil­brigð­is­starfs­fólk. Samkvæmt Magnúsi eru jafn­framt oft dregnar þær álykt­anir að þessar ein­stöku lýs­ingar lýsi kerf­inu eða þjón­ust­unni í heild.

Magnús gagn­rýnir að ákveðnir fjöl­miðlar birti síðan þessar lýs­ingar þar sem aðeins ein hlið af sam­skiptum heil­brigð­is­starfs­fólks og sjúk­lings er lýst. Á heil­brigð­is­starfs­fólki hvílir hins vegar afar ströng þagn­ar­skylda og trún­aður sem gerir starfs­fólk­inu ókleift að tjá sig um mál ein­stakra sjúk­linga og geta því ekki brugð­ist við lýs­ingum ein­stak­linga. Ómögu­legt er fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk að leið­rétta upp­lýs­ing­arnar sem birt­ast í frétt­inni ef þeir telja að hallað sé á réttu máli. Magnús ítrekar því ábyrgð fjöl­miðla þegar fjallað er um mál ein­stakra sjúk­linga í fjöl­miðlum þar sem slík mál eru oft mjög við­kvæm og flókin.

„Alltaf er hætta á því að dregnar séu rangar álykt­anir af því sem á að hafa gerst og hætt er við því að fréttir sem þessar ýti undir ótta og tor­tryggni hjá fólki sem þarf að sækja þjón­ustu heil­brigð­is­kerf­is­ins. Frétta­flutn­ingur af þessu tagi er einnig lík­legur til að valda heil­brigð­is­starfs­fólki miklu hug­ar­angri og van­líðan, sér­stak­lega ef það þarf að sitja undir óvæg­inni gagn­rýni í fjöl­miðlum og getur ekki komið fram og tjáð sig um sína hlið á mál­inu.“ segir Magnús

Fjölmiðlar ekki rétti vettvangurinn

Samkvæmt Magnúsi er afar mik­il­vægt að sjúk­lingar og aðstand­endur þeirra geti með skil­virkum ein­földum hætti komið kvört­unum sínum á fram­færi við þá sem stýra þjón­ust­unni og bera ábyrgð á gæðum hennar, en sam­kvæmt Magnúsi eru síður fjöl­miðla ekki rétti vett­vang­ur­inn til þess. Það er ekki hægt að útkljá mál ef aðeins önnur hlið máls­ins er rædd og hætt er við að umræður í fjöl­miðlum verði mjög til­finn­inga­hlaðnar og ein­kenn­ist af „upp­hróp­unum“og „gíf­ur­yrðum“.

Magnús óskar því eftir því að rit­stjórar og ábyrgð­ar­menn helstu fjöl­miðla lands­ins setj­ist niður með for­svars­mönnum heil­brigð­is­kerf­is­ins og ræði hrein­skiln­is­lega um hvernig best sé að fjalla um heil­brigð­is­mál. Hann segir að það sé þjón­ustu til fram­dráttar og komi í veg fyrir „að lýs­ingar sem oft eru settar fram í mik­illi reiði og geðs­hrær­ingu séu gerðar að frétta efni í fjöl­miðlum.“

Ásamt því bendar hann á mik­il­vægi þess að til staðar sé vett­vangur innan kerf­is­ins þar sem heil­brigð­is­starfs­menn sem eru aðilar að málum sem rata í fjöl­miðla hafi stað til þess að ræða málin og geta jafn­framt fengið við­eig­andi stuðn­ing þegar þeir sitji undir alvar­legum ásök­unum í fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár