Engar forsendur til að fullyrða að sæstrengsverkefni uppfylli kröfur

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur sent frá sér til­kynn­ingu vegna fréttar Morg­un­blaðs­ins um mögu­legan sæstreng til Íslands. Almanna­teng­ill segir frétt­ina byggja á slúð­ur­dálki.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið segir að engar for­sendur séu til þess að full­yrða að verk­efni Atlantic Superconnection um að leggja sæstreng frá Íslandi til Bret­lands muni upp­fylla íslenskar kröfur. Verk­efnið hafi ekki hlotið sam­þykki Alþingis sem verði skil­yrði fyrir lagn­ingu sæstrengs verði frum­vörp og þings­á­lykt­un­ar­til­lögur um þriðja orku­pakk­ann sam­þykkt eftir helgi. Ráðu­neytið hafi ekki haft frum­kvæði að einum ein­asta fundi með full­trúum Atlantic Superconnection og það hefur ekki tekið afstöðu til verk­efn­is­ins.

[links]Útilokað sé að meta hvort umrætt verk­efni sam­ræm­ist reglum sem hafi ekki verið settar, enda sé íslenskt reglu­verk um sæstrengi mjög tak­markað. „Ástæða er til að árétta að þriðji orku­pakk­inn er því fjarri því að inni­halda full­nægj­andi reglu­verk til að sæstrengur geti orðið að veru­leika og hann tekur ekki ákvörð­un­ar­vald um lagn­ingu nýrra strengja af íslenskum stjórn­völdum.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins vegna fréttar Morg­un­blaðs­ins í morgun um að sæl­strengs­verk­efni Atlantic Superconnection biði nú eftir grænu ljósi í Bret­landi. Sú frétt byggði á umfjöllun í Financial Times þar sem sagði að áformin hafi þegar upp­fyllt kröfur sam­kvæmt íslenskum lögum og að fjár­festar þrýsti nú á ráða­menn nýrrar rík­is­stjórnar Bret­lands að sam­þykkja verk­efnið.

Friðjón R. Frið­jóns­son, einn eig­enda almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins KOM, birti stöðu­upp­færslu á Facebook um málið, en KOM hefur starfað fyrir Atlantic Superconnection und­an­farin ár. Þar segir hann frétt Morg­un­blaðs­ins unna upp úr slúð­ur­dálki Financial Times. „Þetta er svona dálkur eins og Sandkorn DV og áreið­an­leik­inn eftir því,“ segir Friðjón. Hann segir enn fremur að eng­inn form­legur stuðn­ingur liggi fyrir við verk­efnið, hvorki frá breskum né íslenskum stjórn­völdum.

Íslenskra stjórnvalda að ákveða

Kjarninn fjall­aði um Atlantic Superconnection verk­efnið í lok maí síð­ast­lið­ins og ræddi þar meðal ann­ars við Edmund Truell, sem fer fyrir fyr­ir­tæk­inu. Sú umfjöllun birt­ist í kjöl­far fréttar breska dag­blaðs­ins The Times sem fjall­aði um, líkt og frétt Morg­un­blaðs­ins í morgun, að Truell vildi að bresk stjórn­völd gefi grænt ljós á fram­kvæmdir sem geri Bretum kleift að sækja raf­orku til Íslands með lagn­ingu rúm­lega 1.000 kíló­metra sæstrengs. Í þeirri umfjöllun kom einnig fram að öll fjár­mögnun lægi fyrir og að ein­ungis vanti sam­þykki breskra stjórn­valda.

Í svari sínu við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans um málið sagði Truell að for­senda þess að fjár­mögnun klárist sé að bresk stjórn­völd veiti stað­fest sam­þykki fyrir því að Atlantic Superconnection vinni að þessu verk­efni fyrir þeirra hönd. „Ef sam­þykki fæst þaðan og íslensk stjórn­völd lýsa áhuga á kanna verk­efnið frekar þá er Atlantic Superconnection sann­fært um að fjár­mögnun náist enda hafi 25 bankar og fjár­festar lýst áhuga sínum á verk­efn­inu sem felur ekki ein­ungis í sér streng­inn heldur einnig umtals­verða fjár­fest­ingu í íslenska orku­kerf­inu til að tryggja afhend­ingar­ör­yggi og miðlun raf­orku um allt land.“

Aðspurður hvort Atlantic Superconnection telji sig geta lagt sæstreng án sam­þykkis íslenskra stjórn­valda sagði Truell svo ekki vera. „Slíkt er hvorki mögu­legt né æski­legt að okkar mati. Það er íslenskra stjórn­valda að ákveða hvort strengur verður lagður til Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár