Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenskra stjórnvalda að ákveða hvort strengur verði lagður til Íslands

Edmund Truell, sem vill leggja sæstreng til Íslands, segir það ekki mögu­legt né æski­legt að leggja hann án sam­þykkis íslenskra stjórn­valda. Hann seg­ist hafa hitt ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn til að kynna verk­efnið en engir samn­ingar liggi fyrir.

Atlantic Superconnection, sem stefnt hefur að því að leggja sæstreng milli Íslands og Bret­lands, telur það hvorki mögu­legt að æski­legt að leggja slíkan streng án sam­þykkis íslenskra stjórn­valda. Edmund Truell, sem fer fyrir fyr­ir­tæk­inu, segir að í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að það sé „ íslenskra stjórn­valda að ákveða hvort strengur verður lagður til Íslands.

Breska dag­blaðið The Times fjall­aði um áform Truell og Atlantic Superconnection á mánu­dag. Þar kom fram að Truell vilji að bresk stjórn­völd gefi grænt ljós á fram­kvæmdir sem geri Bretum kleift að sækja raf­orku til Íslands með lagn­ingu rúm­lega 1.000 kíló­metra sæstrengs. Í þeirri umfjöllun kom einnig fram að öll fjár­mögnun lægi fyrir og að ein­ungis vanti sam­þykki breskra stjórn­valda.

Í svari sínu við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir Truell að for­senda þess að fjár­mögnun klárist sé að bresk stjórn­völd veiti stað­fest sam­þykki fyrir því að Atlantic Superconnection vinni að þessu verk­efni fyrir þeirra hönd. „Ef sam­þykki fæst þaðan og íslensk stjórn­völd lýsa áhuga á kanna verk­efnið frekar þá er Atlantic Superconnection sann­fært um að fjár­mögnun náist enda hafi 25 bankar og fjár­festar lýst áhuga sínum á verk­efn­inu sem felur ekki ein­ungis í sér streng­inn heldur einnig umtals­verða fjár­fest­ingu í íslenska orku­kerf­inu til að tryggja afhend­ingar­ör­yggi og miðlun raf­orku um allt land.“

Hafa hitt ráðherra í sitjandi ríkisstjórn

Full­trúar Atlantic Superconection hafa átt í sam­skiptum við núver­andi rík­is­stjórn frá því að hún tók við völdum síðla árs 2017, sam­kvæmt Truell. „Að okkar ósk hittu full­trúar Atlantic Superconnection ráð­herra og/eða starfs­menn fjög­urra ráðu­neyta á árinu 2018 til að kynna fyrir þeim hug­myndir sínar um verk­efnið. Þeir fundir eins og allir aðrir sem haldnir hafa verið í gegnum árin voru til upp­lýs­ingar og kynn­ingar og eru án nokk­urra skuld­bind­inga af hálfu íslenskra stjórn­valda.“

Truell segir að fund­irnir hafi verið haldnir til að hægt væri að kynna fyrir íslenskum stjórn­völdum hug­myndir Atlantic Superconnection varð­andi fýsi­leika verk­efn­is­ins og hvernig það gæti litið út ef það yrði kannað frekar. „Fund­irnir voru einkum til að kynna hug­mynd um ein­póla streng sem er umtals­vert minni en tví­póla­strengur sem var fjallað um í kostn­aðar- og ábata­grein­ing­unni árið 2016. Benda má á að Morg­un­blaðið fjall­aði um þessa útgáfu strengs­ins 14. júní 2018. Við þetta má bæta Atlantic Superconnection hefur, á und­an­förnum tveimur til þremur árum, haldið ótal kynn­ing­ar­fundi með hags­muna­að­ilum á Íslandi, orku­geir­anum, þing­mönnum flest allra þing­flokka, full­trúum stjórn­valda, hags­muna­sam­tökum, umhverf­is­sam­tökum og svo mætti lengi telja. Allir fund­irnir hafa verið í sama til­gangi, að kynna hug­mynd­ina og kosti hennar fyrir íslenskt sam­fé­lag. Engir fundir eða sam­skipti hafa átt sér stað á þessu ári.“

Aðspurður hvort Atlantic Superconnection telji sig geta lagt sæstreng án sam­þykkis íslenskra stjórn­valda segir Truell svo ekki vera. „Slíkt er hvorki mögu­legt né æski­legt að okkar mati. Það er íslenskra stjórn­valda að ákveða hvort strengur verður lagður til Íslands.“

Ekkert samkomulag um orkukaup

Truell reyndi að kaupa hlut í HS Orku seint á síð­asta ári. Þá bauð sviss­neskt fjár­fest­inga­fé­lag sem hann fer fyrir, Dis­r­uptive Capital Renewable Energy AG, rúma níu millj­arða króna í 12,7 pró­sent hlut fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins ORK í HS Orku. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans voru vand­kvæði með að klára fjár­mögnun á kaup­unum og á end­anum steig Jarð­varmi, félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða, inn í og keypti ORK-hlut­inn á 8,8 millj­arða króna. Jarð­varmi eign­að­ist síðar tíma­bundið allt hlutafé í HS Orku en seldi helm­ing þess áfram til breska félags­ins Ancala Partners fyrr í þessum mán­uði.

Þrátt fyrir að Truell hafi mik­inn áhuga á að leggja sæstreng milli Íslands, sem til­heyrir orku­reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins, og Bret­lands er Truell ein­arður stuðn­ings­maður Brexit, útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, líkt og sjá má á mynd­band­inu hér að neðan.

Truell segir að Atlantic Superconnection hafi ekki gert neitt sam­komu­lag við orku­fyr­ir­tæki á Íslandi um að selja félag­inu orku til að flytja um sæstreng, enda sé það ekki tíma­bært. Hann telji þó að þær fimm til sex TWst. sem þurfi til að gera ein­póla streng fjár­hags­lega hag­kvæman verði til staðar ef streng­ur­inn yrði að veru­leika. „Má þar benda á að kostn­aðar- og ábata­grein­ing sem Kvika og finnska fyr­ir­tækið Pöyry gerðu fyrir verk­efn­is­stjórn um sæstreng árið 2016, sýndi fram á að búast mætti við að með­al­tali verði 1,5 TWst til reiðu við teng­ingu íslenska orku­kerf­is­ins við streng. Það er óstöðug orka sem ann­að­hvort rennur til sjávar á yfir­falli eða er seld á lág­marks­verði. Enn fremur bendir skýrslan á að hægt væri að auka vatns­orku­fram­leiðslu um 448 MW með stækkun og betri nýt­ingu núver­andi virkj­ana.“

Truell segir auk þess að áhuga­verð tæki­færi séu í jarð­varma og djúp­bor­unum sem verði enn frekar hag­kvæm við teng­ingu við streng. Þá séu áhuga­verð vind­orku­verk­efni í bígerð. „Svo má að lokum nefna að verði ein­hver þeirra stór­iðju­verk­efna sem hafa verið í bígerð ekki að veru­leika eða hætti ein­hver núver­andi stór­iðja starf­semi þá verður streng­ur­inn bráð­nauð­syn­legur til að taka á móti orku. Hin sér­staka staða íslands þar sem þrjú erlend stór­fyr­ir­tæki kaupa 72 pró­sent af allri orku á Íslandi hlýtur að vera áhættu­þáttur fyrir þjóð­ar­búið. Sæstrengur myndi bæta samn­ings­stöðu Íslands til muna og gera það minna háð þessum fyr­ir­tækjum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár