Icesave, þorskastríðin og fávís lýður ganga í endurnýjun lífdaga

Þrátt fyrir að um þrjú og hálft ár sé síðan að EFTA-dóm­stól­inn hafn­aði öllum kröfum Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) í Ices­a­ve-­mál­inu svo­kall­aða, að morgni dags þann 28. jan­úar 2013, er umræðum um málið síður en svo lokið. Samkvæmt leit Kjarnans í fjöl­miðla­vakt Creditinfo hefur það komið fyrir í alls 321 mis­mun­andi fréttum það sem af er árinu 2016.

Á því hálfa ári sem liðið er af árinu 2016 hefur Icesave komið fram í fleiri fréttum en það gerði allt síð­asta ár, þegar á málið var minnst í 291 slíkri. Raunar hefur verið oftar minnst á Icesave í ár en allt árið 2014 líka.

Árið 2016 á þó enn langt í land með því að ná Icesave-árinu mikla, árinu 2013, í fjölda frétta þar sem minnst var á málið. Á því ári voru alls gerðar 914 fréttir hjá íslenskum fjöl­miðlum þar sem Icesave kom með ein­hverjum hætti fyrir.

Ástæða þess að Icesave hefur ratað svona sterkt inn í umræð­una að nýja hér­lendis er auð­vitað yfir­stand­andi kosn­inga­bar­átta milli þeirra sem sækj­ast eftir því að verða næsti for­seti Íslands. Sú bar­átta hefur oft snú­ist fyrst og síð­ast um afstöðu fram­bjóð­enda til mis­mun­andi Icesave-samn­inga. Þar hefur einn fram­bjóð­andi, Davíð Oddsson, verið afar dug­legur við að ásaka annan, Guðna Th. Jóhann­es­son, um að hafa ekki haft rétta afstöðu til þeirra.

Þorskastríðið snýr aftur

For­seta­kosn­ing­arnar hafa líka snú­ist, að ein­hverju leyti, um afstöðu for­seta­fram­bjóð­enda til þorska­stríð­anna, sem stóðu yfir á árunum 1958 til 1976. Í yfir­stand­andi kosn­inga­bar­áttu hefur Davíð einnig gagn­rýnt Guðna fyrir skrif hans og ræður um þau.

Alls hafa þorska­stríðin komið fyrir í 98 fréttum sem unnar hafa verið af íslenskum fjöl­miðlum á þessu ári. Athygli vekur að 93 pró­sent þeirra frétta voru gerðar eftir að Davíð til­kynnti um fram­boð sitt til for­seta í byrjun mars síð­ast­lið­ins.

Það hafa verið fleiri fréttir gerðar á Íslandi þar sem minnst er á þorska­stríð á síð­ustu tveimur mán­uðum en voru gerðar sam­an­lagt árin 2014 og 2015. Vert er að taka fram að 40 ár voru liðin frá því að síð­asta þorska­stríð­inu lauk þann 1. júní síð­ast­lið­inn. Þau tíma­mót höfðu þó ekki afger­andi áhrif á frétta­skrif um málið. Þau hafa fyrst og síð­ast tengst for­setaslagnum.

Fávís kemst í tísku

Guðni Th. hefur einnig verið gagn­rýndur harð­lega, sér­stak­lega af Davíð, stuðn­ings­mönnum hans og Morg­un­blað­inu, fyrir ummæli sem hann lét falla í fyr­ir­lestri í Háskól­anum við Bifröst árið 2013. Þar fjall­aði hann um aðalátaka­mál for­seta­kosn­ing­anna 2016, þorska­stríðin, Icesave og Evr­ópu­sam­bandið. Í fyr­ir­lestr­inum sagði Guðni Th: „„Jess, Íslandi allt og spurn­ingin vaknar: Er fávís lýð­ur­inn aftur að pródúsera „rangar“ sam­eig­in­legar minn­ingar? Og kemur enn til kasta okkar sagn­fræð­ing­anna því því er ekki að leyna í okkar hópi eru þeir til, og kannski er ég þar fram­ar­lega þó ég segi sjálfur frá, sem hafa lýst efa­semdum um þessa sýn en vissu­lega aðrir tekið í sama streng.“

Í kjöl­farið var athygl­inni beint að ræðu sem Davíð Oddsson hélt árið 2002, þegar til stóð að leggja Þjóð­hags­stofnun niður. Þá sagði Davíð: „Það hlut­verk Þjóð­hags­stofn­unar, að upp­fræða fávísan eða fyr­ir­tæki og félög, hefur gjör­breyst.“

Alls hefur verið talað um ein­hverja sem eru fávísir 59 sinnum í íslenskum fjöl­miðlum á þessu ári, þar af 43 sinnum á síð­ustu þremur mán­uðum. Orðið fávís hefur því, í ein­hverri mynd, komið oftar fyrir í fréttum íslenskra fjöl­miðla það sem af er árinu 2016 en það gerði þorra árs­ins 2013, og öll árin 2014 og 2015 sam­an­lagt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár