Helgi Magn­ús­son Fjár­festir­inn gam­al­reyndi er eig­andi Fjöl­miðla­torgs­ins ehf, sem gefur út DV.is. Mynd: Torg

Tæpt tap hjá DV

Útgáfu­félag DV hefur náð meira jafnvægi í rekstri en áður. Engu að síður skilar það tapi og tekjur lækka í erfiðri samkeppni við ríkið, erlenda samfélags­miðla og umhverfis­auglýsingar.

Útgáfu­félag DV.is, Fjölmiðla­torgið ehf, tapaði tæpum fjórum milljónum króna í fyrra, á ári þar sem tekjur lækkuðu um 14 milljónir.

Árið áður hafði það hagnast um þrjár milljónir króna.

Félagið, sem var stofnað 2022 og keypti DV.is út úr Torgi ehf, sem gaf líka út Frétta­blaðið og fór í þrot 2023, hefur þó aldrei skilað jákvæðu sjóð­streymi. Skuldir félagsins við Helga Magnússon, eiganda félagsins, jukust úr 63 milljónum króna í 82 milljónir á árinu.

Til saman­burðar tapaði Árvakur, útgáfu­félag Morgun­blaðsins, 461 milljón króna í fyrra og fékk 600 milljónir króna í nýtt hlutafé frá fjár­sterkum eigendum.

DV, sem var áður næstmest lesna dagblað landsins skammt á eftir Morgun­blaðinu, hefur glímt við erfiðan rekstur allt frá aldar­mótunum. Annar fjöl­miðill í eigu Helga, fríblaðið Frétta­blaðið, sem var áður mest lesna blað landsins, var lagt niður árið 2023 eftir mikið tap.

Í kringum hundrað þúsund notendur …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár