Guðni gerði mistök þegar hann veitti umboð aftur

Þorsteinn Víglundsson.
Þor­steinn Víglunds­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, segir að honum hafi fund­ist Guðni Th. Jóhann­es­son hafa gert „mis­tök“ þegar hann veitti Birgittu Jóns­dóttur og Pírötum stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð á Bessa­stöðum í gær. Þetta sagði Þor­steinn í Viku­lok­unum á Rás 1 í dag.

Áður hafa bæði Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, lýst skoðun sinni á útspili Guðna í gær og sagt að heldur hefði hann átt að leyfa þing­mönnum og for­ystu­fólki flokk­anna að hvíl­ast og halda áfram óform­legum þreif­ingum um helg­ina.

Þor­steinn sagð­ist halda að það skil­aði litlum árangri að láta ein­hver einn hafa boð­hlaup­skeflið og hlaupa á milli kollega sinna í leit að ein­hverjum sem mundi vilja grípa það, sér­stak­lega þegar það lægi ekki nokkuð ljóst fyrir hvaða stjórn­ar­mynstur væru lík­leg­ust eftir kosn­ingar.

Forseti hefur veitt þremur for­ystu­mönnum stjórn­mála­flokka stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fékk það fyrstur en honum tókst ekki að mynda stjórn. Ekki frekar en Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sem fékk umboð frá for­set­anum næst. Eftir að hún kynnti for­seta að hennar verk­efni hefði mis­tek­ist þá ákveð Guðni að veita engum form­legt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð og gaf þannig leik­inn frjálsan.

Í því umhverfi hófust við­ræður Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar á ný áður en for­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna að ræddu saman í fyrsta sinn. Þeim þótti það hins vegar óyf­ir­stíg­an­legt verk­efni að sætta ólík sjón­ar­mið flokka sinna. Á meðan Katrín og Bjarni ræddu saman höfðu flokk­arnir fjórir sem Katrín mistókst að leiða saman undir verk­stjórn Vinstri grænna, að ræða saman á ný.

Píratar hafa nú stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið. Forseti veitti umboð til stjórn­ar­mynd­unar á ný eftir að hafa hitt alla for­menn flokka að máli á föstu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár