Fyrsti formlegi fundurinn á mánudag – Fyrsti þingfundur kjörtímabilsins á þriðjudag

Birgitta Jónsdóttir, Smári McCarty og Einar Brynjólfsson eru forsvarsmenn Pírata í stjórnarmyndunarferlinu.
Birgitta Jóns­dóttir, Smári McCarty og Einar Brynj­ólfs­son eru for­svars­menn Pírata í stjórn­ar­mynd­un­ar­ferl­inu. Mynd: Brynjar Snaer Thrastarson

Flokk­arnir fimm sem Píratar hyggj­ast leiða í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður ætla ekki að hitt­ast form­lega á fundi fyrr en á mánu­dag. Birgitta Jóns­dóttir tók við stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boði frá Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta á Bessa­stöðum í gær fyrir hönd Pírata. Skiptar skoð­anir eru um hvort þetta hafi verið rétta leiðin en Birgitta hygg­ist skila umboð­inu strax ef við­ræður flokk­ana fimm skila ekki árangri.

Formenn þeirra stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber gengu allir á fund Guðna á skrif­stofu for­seta­emb­ætt­is­ins við Sól­eyj­ar­götu í gær. Ein­hverjir höfðu orð á því að rétt­ast væri að hvíla frek­ari við­ræður, enda stans­lausar við­ræður í allar áttir búnar að standa yfir í rúman mánuð.

Píratar vilja taka upp þrá­inn á ný í fimm flokka við­ræðum sem fóru út um þúfur undir verk­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna. Þeir flokkar höfðu allir, nema Vinstri græn, rætt saman aftur í vik­unni sem leið, eftir að Katrín skil­aði umboði sínu til stjórn­ar­mynd­unar. Meðal Vinstri grænna eru efa­semd­araddir um þetta sam­starf, enda hefur áður slitnað upp úr þessum við­ræðum.

Katrín seg­ist ekki átta sig á því hvaða for­sendur hafi breyst síðan. Haft er eftir henni í Frétta­blað­inu í dag að flokkur hennar ætli að nálg­ast við­ræð­urnar af opnum hug.

Birgitta segir að búið sé að reyna til þrautar önnur stjórn­ar­mynd­un­ar­form. „Ég held að það sem hafi aðal­lega breyst frá því að við reyndum síð­ast sé að fólk hefur haft rými til að fara dýpra ofan í þessi mál­efni sem fólk hefur upp­lifað óbrú­an­leg,“ sagði Birgitta í gær. Hún sér stjórn­mála­flokk­ana á miðj­unni fyrir sér sem brýr milli hægri- og vinstri­vængja á Alþingi.

For­ystu­fólk í Viðreisn seg­ist heldur hafa viljað að for­set­inn byggi til and­rými yfir helg­ina. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, seg­ist hafa lagt það til við Guðna. „For­set­inn hefur hins vegar ákveðið að gera þetta öðru­vísi og ég virði ákvörðun hans,“ er haft eftir honum í Frétta­blað­inu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar og odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, segir það hafa verið óþarfa hjá for­set­anum að veita stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð fyrir helgi. Í þætt­inum Vikunni í stjórn Gísla Marteins Bald­urs­sonar á RÚV í gær­kvöldi sagði Þor­gerður að allir væru að tala saman. „Að láta ein­hvern fá umboð, ég held að það skipti ekki öllu máli. Ég held að það sé óþarfi núna fyrir þessa helgi. Það er ljóst að menn hafa verið að tala saman á síð­ustu dögum, síð­ustu vikum. Það er allt að þró­ast,“ sagði hún.

„Ég held að þessi langi aðlög­un­ar­tími, pör­un­ar­tími fram að nýrri rík­is­stjórn, sé bara ágætur fyrir þingið. Fólk er að kynn­ast. Fólk er að þreifa á hverju öðru mál­efna­lega séð. Ég held að sama hver á end­anum verður í rík­is­stjórn muni þessi tími nýt­ast þing­inu og von­andi vinnu­brögð­unum til lang­frama.“

Þingsetning á þriðjudag

Alþingi kemur saman í fyrsta sinn eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber á þriðju­dag á þing­setn­ingu í Alþing­is­hús­inu og í Dóm­kirkj­unni. Þingið hefur verið kallað saman til þess að hægt verði að afgreiða fjár­lög næsta árs. Morg­un­blaðið í dag hefur eftir Guðmundi Árnasyni, ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, að frum­varpið hafi farið í prentun í gær. Það verði svipað að umfangi og und­an­farin ár.

Þingið mun starfa eins og venju­lega, jafn­vel þó flokk­arnir hafi ekki komið sér saman um hver skuli sitja í rík­is­stjórn á þessu kjör­tíma­bili. Þangað til situr rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sem starfs­stjórn, ef Alþingi sam­þykkir ekki van­traust á þá rík­is­stjórn. „Það er allt undir „control“,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í sjón­varps­við­tali í gær.

Þing­for­seti á þessu „stjórn­lausa“ þingi verður Stein­grímur J. Sig­fús­son, odd­viti Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, en sam­kvæmt þing­skap­a­lögum skal sá vera þing­for­seti sem hefur lengsta þing­reynslu. Stein­grímur hefur lang mesta þing­reynslu allra þeirra sem setj­ast á þing eftir kosn­ing­arnar; hann sett­ist fyrst á þing árið 1983.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár