Ferðaþjónusturisi verður til í miðjum faraldri

Kynn­is­ferðir, sem nýverið sögðu upp 40 pró­sent starfs­fólks síns og þáðu styrk frá rík­inu til að greiða starfs­fólki upp­sagn­ar­frest, hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um að sam­ein­ast Eldey TLH, sem er í 70 pró­sent eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Kynnisferðir reka stóran hluta starfsemi sinnar undir merkjum Reykjavik Excursions.
Kynn­is­ferðir reka stóran hluta starf­semi sinnar undir merkjum Reykja­vik Excursions. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kynn­is­ferðir og Eldey TLH, félag að stærstum hluta í eigu líf­eyr­is­sjóða en í stýr­ingu hjá Íslands­sjóðum, hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um sam­ein­ingu. Við hana verður til eitt stærsta félag lands­ins sem sinnir afþrey­ing­ar­tengdri ferða­þjón­ustu.

Á heima­síðu Arctica Finance, sem var ráð­gjafi Kynn­is­ferða í sam­ein­ing­ar­við­ræð­unum, kemur fram að unnið sé að frek­ari útfærslu sam­run­ans, þar með talið áreið­an­leika­könnun og til­kynn­ingu til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Eldey TLH verður slitið í kjöl­farið og hlut­hafar þess fá greitt fyrir með hlutafé í Kynn­is­ferðum.

Kynn­is­ferðir var stofnað 1968 og er eitt stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins en sinnir til við­bótar annarri starf­semi, til dæmis und­ir­verk­töku fyrir Strætó. Stærsti hluti rekstr­ar­ins hefur verið undir merkjum Reykja­vík Excursions sem boðið hefur upp á fjöl­breyttar dags­ferðir auk þess að bjóða upp á ferðir yfir sum­ar­tím­ann og áætl­un­ar­akstur til og frá Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar og Bláa lón­inu, en fyr­ir­tækið hefur líka starf­rækt bíla­leigu.

[adspot]Eldey TLH var stofnað árið 2015 til að fjár­festa í afþrey­ing­ar­tengdri ferða­þjón­ustu. Félagið hefur fjár­fest í fyr­ir­tækjum á borð við Saga Travel (67,31 pró­sent eign­ar­hlutur), Arcanum Fjalla­leið­sögu­menn (62,6 pró­sent eign­ar­hlutur), Norð­ur­sigl­ingu (43,31 pró­sent eign­ar­hlutur), Logakór (63 pró­sent eign­ar­hlutur) og Dive.is. Saga Travel, sem var stofnað 2009 og hefur verið um­fangs­mikið í skipu­lagn­ingu dags­ferða frá frá Ak­ur­eyri, Mý­vatns­sveit og Reykja­vík, var tekið til gjald­þrota­skipta í lok síð­asta mán­aðar.

Uppsagnargreiðslur úr ríkissjóði vörðu Kynnisferðir falli

Kynn­is­ferðir nýttu sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu þegar hún kom til fram­kvæmda í mars, en um 320 manns störf­uðu hjá fyr­ir­tæk­inu áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og lam­aði meðal ann­ars alla ferða­þjón­ustu á Íslandi. Eftir að stjórn­völd kynntu að rík­is­sjóður muni greiða hluta launa­kostn­aðar starfs­manna hjá fyr­ir­tækjum sem höfðu upp­lifað til­tekið tekju­fall á upp­sagn­ar­fresti í lok síð­asta mán­aðar sagði fyr­ir­tækið svo 150 manns upp störfum. Um var að ræða 40 pró­sent starfs­manna.

Í sam­tali við RÚV í aðdrag­anda upp­sagn­anna sagði Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, að það sæi ekki fram á nein við­skipti næstu mán­uði. „Við sáum fram á það að það hefði kostað okkur gríð­ar­lega fjár­muni að fara í upp­sagnir. Þannig að þetta hjálpar okkur gríð­ar­lega við það og ver eig­in­lega bara félagið falli.“

[adspot]Í dag, rúmri viku síðar, var til­kynnt um að Kynn­is­ferðir og Eldey, félag sem er í 70 pró­sent í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, væru að sam­ein­ast og mynda ferða­þjón­usturisa. Á meðal ann­arra eig­enda er rík­is­bank­inn Íslands­banki sem á 9,9 pró­sent hlut.

Stærsti eig­andi Kynn­is­ferða í dag er félagið Alfa hf. Það er að uppi­stöðu í end­an­legri eigu Einars Sveins­sonar, hjón­anna Bene­dikts Sveins­sonar og Guðríðar Jóns­dóttur og hluti barna þeirra. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er sonur Bene­dikts og Guðríðar en hann á ekki hlut í félag­inu.

Alfa átti 65 pró­sent í Kynn­is­ferðum fyrir sam­run­ann á móti fram­taks­sjóðnum SÍA II í rekstri Stefnis hf. Hlut­hafar SÍA II sam­an­standa af líf­eyr­is­sjóð­um, fjár­mála­fyr­ir­tækjum og fag­fjár­fest­um. SÍA II keypti 35 pró­sent hlut­inn í Kynn­is­ferðum snemma árs 2015. Kaup­verðið var ekki gefið upp en hagn­aður Alfa á því ári jókst um nálægt 1,1 millj­arð króna milli ára og var tæp­lega 1,5 millj­arðar króna. Stjórn­ar­for­maður Kynn­is­ferða er Jón Bene­dikts­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár