Allt að 75% munu áfram geta tekið Íslandslán

Stóra skref rík­is­stjórn­ar­innar í átt að afnámi verð­trygg­ing­ar­innar felur í sér að allt að 75% lán­tak­enda munu áfram geta tekið 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán, svokölluð Íslands­lán.

40 til 75 pró­sent allra lán­tak­enda munu áfram geta tekið 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán, svokölluð Íslands­lán, þó að frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um verð­trygg­ing­una verði að lögum. Þetta er vegna und­an­tekn­inga sem settar eru fram í laga­frum­varp­inu, sem búið er að leggja fram á Alþingi.

Samkvæmt frum­varp­inu verður óheim­ilt að veita neyt­enda­lán til lengri tíma en 25 ára sé það verð­tryggt og með jafn­greiðslu­fyr­ir­komu­lagi. Þó eru gerðar und­an­tekn­ingar um þessa „almennu reglu“ eins og Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra kall­aði breyt­ing­una á blaða­manna­fundi hans og Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra í gær. Búið var að boða að frum­varp yrði lagt fram í þess­ari viku þar sem dregið yrði veru­lega úr vægi verð­trygg­ing­ar. Í kynn­ing­unni í Hörpu var því haldið fram að um væri að ræða fyrsta alvar­lega skrefið sem stigið væri í þá átt frá því að verð­trygg­ing hafi verið sett á árið 1979. Það er hins vegar erfitt að halda því fram að þetta frum­varp muni draga veru­lega úr vægi verð­trygg­ingar, ef allt að 75 pró­sent munu enn geta tekið sömu lánin.

Meirihlutinn getur fallið undir undantekningu

Und­an­tekn­ing­arnar sem settar eru fram í frum­varp­inu eru þannig að ef lán­tak­endur eru yngri en 35 ára mega þeir áfram taka allt að 40 ára lán. Ef þeir eru 35-39 ára mega þeir taka allt að 35 ára lán, og ef lán­tak­endur eru 40-44 ára mega þeir taka allt að 30 ára lán. Ef fleiri en einn lán­tak­andi er að lán­inu þarf alla­vega einn þeirra að upp­fylla þessi skil­yrði.

Þá má fólk áfram taka 40 ára jafn­greiðslu­lánin ef skatt­skyldar tekjur þess nema 3,5 millj­ónum króna eða minna hjá ein­stak­lingi eða sam­an­lagt sex millj­ónum króna þegar lán­tak­endur eru fleiri. Og að lokum má fólk sem er með 50% eða lægra veð­setn­ing­ar­hlut­fall áfram fá að taka 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að 70 millj­arðar af þeim 90 millj­örðum króna sem sem Íslend­ingar tóku í fyrra í verð­tryggðum hús­næð­is­lánum eru jafn­greiðslu­lán til 40 ára, lánin sem nú stendur til að banna sumum að taka.

„Með hlið­sjón af fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum um aldur lán­taka við töku íbúða­lána, veð­setn­ing­ar­hlut­fall og tekjur má gera ráð fyrir að um 30–50% lán­tak­enda falli undir und­an­þágu frum­varps­ins um aldur, 5–10% vegna tekna og 5–15% vegna veð­setn­ingar.“ Sem sagt, allt frá 40 til 75 pró­sent lán­tak­enda munu ekki falla undir „almennu regl­una“ um að lán verði ekki veitt nema til 25 ára.

„Miðað við lán­veit­ingar á árinu 2015 má gera ráð fyrir að um 20–30 millj­arðar kr. af nýjum veittum lánum hefðu á því ári fallið undir ákvæði frum­varps­ins eða um 1.000 til 1.500 manns,“ segir jafn­framt í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár