HMS og sveitarfélögin semja um aukna húsnæðisuppbyggingu

Átaki stjórn­valda og sveit­ar­fé­laga um auk­inn hraða upp­bygg­ingar íbúða var hrundið af stað með upp­hafs­fundi í dag. Næstu skref eru samn­inga­gerð HMS við sveit­ar­fé­lög lands­ins um upp­bygg­ingu næstu ára og gerð hús­næð­is­stefnu með aðgerða­á­ætlun.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra á fundi um húsnæðismál, sem fram fór í húsakynnum HMS í dag.
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra á fundi um hús­næð­is­mál, sem fram fór í húsa­kynnum HMS í dag. Mynd: Aðsend

Fyrir hönd rík­is­ins mun Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) á næstu vikum vinna með sveit­ar­fé­lögum við að meta núver­andi hús­næð­is­á­ætl­anir, greina tæki­færi til frek­ari upp­bygg­ingar og gera samn­inga um slíkar áætl­anir. Þetta er á meðal þess sem fram kom á upp­hafs­fundi um fram­kvæmd ramma­samn­ings um aukið fram­boð íbúða, sem fram fór í dag og markar upp­haf átaks stjórn­valda og sveit­ar­fé­laga í þeim efnum.

Ramma­samn­ingur sem und­ir­rit­aður var í júlí kveður á um að íbúðum verði fjölgað um 20.000 á næstu fimm árum og 35.000 á tíu árum og að þar af verði 30 pró­sent nýrra íbúða hag­kvæmar á við­ráð­an­legu verði og 5 pró­sent íbúa félags­leg hús­næðisúr­ræði.

Samn­ing­arnir sem HMS mun gera við sveit­ar­fé­lög munu kveða á um fjölda íbúða, íbúða­gerð og stað­setn­ingu til að skapa fyr­ir­sjá­an­leika til næstu ára, en sam­kvæmt hús­næð­is­á­ætl­unum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir um 16.000 nýjum íbúðum á fimm árum. Þennan fjölda á að auka um 4.000 íbúðir.

Í sam­eig­in­legri frétta­til­kynn­ingu frá HMS, inn­við­a­ráðu­neyt­inu og Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga er haft eftir Sigurði Inga Jóhanns­syni inn­við­a­ráð­herra að nú verði allir að róa í sömu átt og leggja allt kapp á að tryggja aukið fram­boð íbúða.

„Jafnvægi á hús­næð­is­mark­aði er nauð­syn­legt til þess að skapa hús­næð­is­ör­yggi, hag­stætt vaxtaum­hverfi til lengri tíma og verja efna­hag heim­il­anna. Ramma­samn­ingur ríkis og sveit­ar­fé­laga sem und­ir­rit­aður var í sumar var mik­il­vægur áfangi að ná sam­eig­in­legri sýn um það hvernig megi ná jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði og fyr­ir­sjá­an­leika fyrir stjórn­völd og bygg­ing­ar­að­ila um upp­bygg­ingu. Nú er unnið mark­visst að því að útfæra samn­ing­inn með sveit­ar­fé­lögum, m.a. til að tryggja nægj­an­lega fjölda bygg­ing­ar­hæfra lóða, eyða flösku­hálsum í skipu­lags­ferlum og meta hvaða fjár­muni ríkið leggur til í hús­næð­is­stuðn­ing og stofn­fram­lög. Við bíðum nú eftir kostn­að­ar­mati HMS og sveit­ar­fé­laga til að geta metið end­an­legar til­lögur að fjár­mögnun til verk­efn­is­ins úr rík­is­sjóði. Þetta er viss áskorun á tímum þegar gæta þarf sjón­ar­miða um aðhald á fjár­lögum. Þó er ljóst að hússnæð­is­skortur hækkar fast­eigna­verð og vísi­tölu, sem aftur getur hækkað verð­bólgu og hefur þannig bein áhrif á ráð­stöf­un­ar­tekjur fólks­ins í land­inu,“ er haft eftir Sigurði Inga.

HMS og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga vinna saman að kostn­að­ar­mati og til­lögum um það hver hús­næð­is­stuðn­ingur við sveit­ar­fé­lög þarf að vera til að byggja upp hag­kvæmar íbúðir á við­ráð­an­legu verði í sam­ræmi við mark­mið ramma­samn­ings­ins.

Einnig er starfs­hópur um hús­næð­is­stuðn­ing að störfum með það hlut­verk að end­ur­skoða beinan hús­næð­is­stuðn­ing til ein­stak­linga. „Á grund­velli þeirrar vinnu og á grund­velli til­lagna starfs­hóps um aðgerðir og umbætur á hús­næð­is­mark­aði, frá maí 2022, er gert ráð fyrir breyt­ingum og auknum hús­næð­is­stuðn­ingi rík­is­ins frá því sem gert er ráð fyrir í frum­varpi til fjár­laga 2023. Þar sem starfs­hóp­arnir eru enn að störfum er horft til ann­arrar umræðu fjár­laga í því sam­hengi,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Athygli hefur vakið að í fjár­laga­frum­varp­inu sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í gær voru engar nýjar aðgerðir til að auka fram­boð á íbúða­mark­aði kynntar til leiks. Þvert á móti eru stofn­fram­lög til upp­bygg­ingar í almenna íbúða­kerf­inu lækkuð um tvo millj­arða króna frá fyrra ári, sam­kvæmt frum­varpi ráð­herra.

Í til­kynn­ingu kemur fram að þegar HMS og sveit­ar­fé­lög hafi náð samn­ingum um aukna upp­bygg­ingu á hverjum stað muni HMS í upp­hafi næsta árs „leggja fram og birta heild­stæða hús­næð­is­á­ætlun fyrir allt landið“.

„Í hús­næð­is­á­ætl­un­inni, sem verður staf­ræn, verður nákvæm áætlun um upp­bygg­ingu í hverju sveit­ar­fé­lagi fyrir sig og því verður hægt fylgj­ast með fram­vindu upp­bygg­ingar nýrra íbúða á vef HMS,“ segir í frétta­til­kynn­ingu.

Sömu­leiðis vinnur inn­við­a­ráðu­neytið nú að gerð hús­næð­is­stefnu með aðgerða­á­ætlun, sem verður sú fyrsta sem gerð hefur verið í mála­flokknum. Grænbók verður kynnt í haust og þings­á­lykt­un­ar­til­laga um hús­næð­is­stefnu kynnt í upp­hafi árs 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár