Verðmiðinn á Valitor og verksmiðjunni í Helguvík lækkað um nálægt tíu milljarða á einu ári

Arion banki átti sitt lang­versta rekstr­arár í sögu sinni í fyrra, þegar hagn­að­ur­inn var einn millj­arður króna. Mestur var tæp­lega 50 millj­arðar króna árið 2014. Erf­ið­leikar síð­asta árs eru fyrst og síð­ast vegna tveggja eigna.

Í byrjun árs 2019 mat Arion banki virði greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Valitor á 15,8 millj­arða króna. Í dag er bók­fært virði fyr­ir­tæk­is­ins um sex millj­arðar króna. Það hefur því lækkað um nálægt tíu millj­arða króna á einu ári.

Á enn styttri tíma, frá lokum mars og fram til dags­ins í dag, hefur önnur vand­ræða­eign Arion banka, kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon í Helguvík, rúm­lega helm­ing­ast í bók­færðu virði. Í byrjun tíma­bils­ins var hún metin á 6,9 millj­arða króna í bókum Arion banka en er nú metin á um 3,2 millj­arða króna. Nið­ur­færslan, á níu mán­uðum, nemur því 3,7 millj­örðum króna.

Samtals hefur bók­fært virði þess­ara tveggja eigna Arion banka, sem hann hefur lengi reynt að selja, lækkað um vel á fjórt­ánda millj­arð króna á einu ári.

Minnsti hagnaður frá upphafi

Arion banki sendi frá sér aðkomu­við­vörun vegna þessa í gær­kvöldi. Þar kom fram að nei­kvæð áhrif af ann­ars vegar Valitor og hins vegar Stakks­bergi, eign­ar­halds­fé­lagi utan um kís­il­málm­verk­smiðj­una í Helguvík, verði átta millj­arðar króna á síð­asta árs­fjórð­ungi 2019. Afkoma bank­ans verður því jákvæð um einn millj­arð króna.

Það er lang­minnsti hagn­aður sem orðið hefur hjá Arion banka síðan að bank­inn var reistur á grunni hins fallna Kaup­þings á haust­mán­uðum 2008. Frá 2009, sem var fyrsta heila starfsár Arion banka, og fram til loka árs 2018 nam hagn­aður bank­ans alls 188,3 millj­örðum króna.

Mestur var hagn­að­ur­inn árið 2015, þegar hann var 49,7 millj­arðar króna, eða um 50 sinnum meiri en áætl­aður hagn­aður Arion banka í fyrra. Minnstur var hagn­að­ur­inn á árinu 2018, þegar hann nam 7,8 millj­örðum króna, sem þáver­andi banka­stjóri, Hösk­uldur H. Ólafsson, sagði að hefðu verið mikil von­brigði.

Vert er að taka fram að á fyrstu árunum eftir banka­hrunið þá féll stór hluti hagn­aðar Arion banka til vegna end­ur­mats á eignum eða sölu á eignum sem bank­inn hafði fengið í vöggu­gjöf við stofnun. Því var ekki um hagnað að ræða sem útskýrð­ist að uppi­stöðu af stönd­unum und­ir­liggj­andi rekstri.

Miklar væringar hjá Valitor

Valitor, sem er dótt­ur­fé­lag Arion banka, hefur verið í form­legu sölu­ferli frá haustinu 2018. Lítið hefur gengið að selja félagið, enda hefur rekstur þess gengið afleit­lega á und­an­förnum árum.

Tekjur Valitor dróg­ust saman um 1.240 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019, eða um rúman fjórð­ung. Á sama tíma jókst hins vegar rekstr­ar­kostn­aður um 31 pró­sent og var tæp­lega 7,8 millj­arðar króna. Sam­an­lagt tap fyr­ir­tæk­is­ins frá byrjun árs 2018 og til loka sept­em­ber 2019 nam sex millj­­­örðum króna.

Ein helsta ástæðan fyrir tap­inu er sú að einn stærsti við­­­­skipta­vinur Valitor, Stripe, hætti færslu­hirð­ing­­­­ar­við­­­­skiptum sínum við Valitor um mitt ár 2018, líkt og Kjarn­inn greindi frá í mars 2018 að stæði til. Þá hafa stór­tækar fjár­fest­ingar í alrás­ar­lausnum, sem námu um sex millj­örðum króna frá árinu 2014, ekki staðið undir vænt­ingum.

Vegna þessa hefur Arion banki verið að ráð­ast í kostn­að­ar­samar aðgerðir til að taka til í Valitor. Bankinn bók­færði meðal ann­ars 600 milljón króna kostnað vegna end­ur­skipu­lagn­ingar á Valitor á síð­asta árs­fjórð­ungi 2019.

Í byrjun jan­úar var starfs­fólki Valitor fækkað um 60. Kjarninn hafði greint frá því í des­em­ber 2019 að fækkað hefði verið í stjórn­enda­teymi Valitor úr tíu í fjóra.

Fært niður um tæpa sex milljarða

Í afkomu­við­vör­un­inni sem birt var í Kaup­höll­inni í gær sagði að stjórn Valitor hefði í gær sam­þykkt nýja við­skipta­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins. „Nið­ur­stöður virð­is­rýrn­un­ar­próf­anna fela í sér að færa þarf óefn­is­lega eign Valitor niður um 4 millj­arða króna. Þessi virð­is­rýrnun mun end­ur­spegl­ast í afkomu af eignum til sölu á fjórða árs­fjórð­ungi hjá Arion banka og kemur til við­bótar við rekstr­ar­tap Valitor á fjórð­ungnum og kostnað við sölu­ferli félags­ins, sam­tals 1,7 millj­arð króna. Kostn­aður við end­ur­skipu­lagn­ingu Valitor upp á 600 m.kr. sem greint var frá í til­kynn­ingu frá bank­anum 30. des­em­ber sl. er inni­fal­inn í þeirri fjár­hæð. Óefn­is­leg eign Valitor eftir virð­is­rýrn­un­ina nemur um 3,4 millj­örðum króna og til­heyrir starf­semi sem skilað hefur rekstr­ar­hagn­aði. Þar sem um óefn­is­legar eignir er að ræða hefur þessi nið­ur­færsla engin áhrif á eig­in­fjár­hlut­föll Arion banka.“

Þessar breyt­inga eiga að draga úr fjár­fest­inga­þörf og rekstr­ar­kostn­aði Valitor og snúa tapi í hagnað, svo hægt verði að selja fyr­ir­tækið.

Verð­mið­inn á Valitor hefur þó hríð­lækkað á skömmum tíma sam­hliða þessu miklu rekstr­ar­erf­ið­leikum. Hann var 15,8 millj­arðar króna í byrjun árs 2019. Nú er hann um sex millj­arðar króna, en öll virð­is­rýrnun óefn­is­legra eigna, alls fjórir millj­arðar króna, og allt rekstr­ar­tap Valitor á síð­asta fjórð­ungi 2019, mun lækka beint bók­fært virði. Rekstr­ar­tapið og kostn­aður Arion banka við sölu­ferli Arion banka var 1,7 millj­arður króna á síð­asta fjórð­ungi, en sú tala er ekki sund­ur­liðuð í afkomu­við­vör­un­inni. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Arion banka fellur kostn­að­ur­inn við sölu­ferlið beint á bank­ann, og dregst þar með ekki frá bók­færðu virði, en hann er ein­ungis lít­ill hluti af þessum 1,7 millj­örðum króna.

Hækkaði í verði þrátt fyrir enga framleiðslu

Slökkt var á kís­il­málm­verk­smiðj­unni í Helguvík haustið 2017. Félagið utan um rekstur hennar var svo sett í þrot í jan­úar 2018. Kostn­aður við upp­setn­ingu verk­smiðj­unnar hafði verið um 22 millj­arðar króna.

Arion banki, sem var stærsti kröfu­hafi hennar, tók yfir verk­efnið, afskrif­aði 4,8 millj­arða króna af skuldum en ætl­aði sér svo að koma verk­smiðj­unni aftur í gang með til­heyr­andi kostn­aði og selja hana. Þær áætl­anir hafa gengið illa.

Þrátt fyrir að mikil and­staða væri við fyr­ir­hug­aða end­ur­ræs­ingu verk­smiðj­unnar hjá íbúum í Reykja­nesbæ, sem kvört­uðu mjög yfir mengun frá henni, að við­bót­ar­kostn­aður við stand­setn­ingu hennar hrann­að­ist upp og þeirri stað­reynd að miklu til við­bótar þyrfti að kosta til svo hún myndi upp­fylla sett skil­yrði til að hljóta umhverf­is­mat, þá hækk­aði bók­fært virði verk­smiðj­unnar sífellt í bókum Arion banka.

Benedikt Gíslason er forstjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason er for­stjóri Arion banka.

Í árs­lok 2017 var hún bók­færð á 5,2 millj­arða króna en í mars í fyrra var virðið komið upp í 6,9 millj­arða króna án þess að nokkuð hefði verið fram­leitt í Helguvík í milli­tíð­inni.

Síðan þá hefur bók­fært virði fallið hratt. Á níu mán­uðum hefur verð­mið­inn fallið niður í 3,2 millj­arða króna.

Í afkomu­við­vör­un­inni sem send var út í gær kom fram að vegna „óvissu á mörk­uðum með síli­kon hafa nokkrir fram­leið­endur dregið úr fram­leiðslu eða lokað verk­smiðjum. Því er til staðar ónýtt fram­leiðslu­geta sem leiða má líkur að hafi nei­kvæð áhrif á sölu­ferli síli­kon­verk­smiðj­unnar í Helguvík. Arion banki nið­ur­færir því eignir Stakks­bergs og nema áhrifin á afkomu fjórða árs­fjórð­ungs um 2,3 millj­örðum króna að teknu til­liti til skatta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið undanfarið ár