Hið margbrotna fullveldi

Gullfoss.
Gullfoss. Mynd: OPalsson

Fyrsta des­em­ber minn­umst við full­veldis Íslend­inga, en þann dag árið 1918 varð Ísland full­valda ríki. Kallað hefur verið eftir því að þessum áfanga sem þá náð­ist verði gert hærra undir höfði. Sigurinn sem fólst í full­veldi Íslands hafi verið árangur af bar­áttu Íslend­inga fyrir auknum rétt­indum og sjálfs­stjórn og því beri að fagna á afger­andi hátt.

Þetta er að nokkru leyti rétt, því full­veldið var Íslend­ingum vissu­lega mik­il­vægur áfangi. Sé hins vegar rýnt í sög­una þá er málið ekki alveg svo ein­falt að alfarið megi skrifa full­veldið á hetju­lega bar­áttu Íslend­inga. Á þessum tíma var laga- og þjóð­rétt­ar­leg staða ríkja í mik­illi mótun og var almennt að verða til kerfi nútíma full­valda ríkja – þó form­lega megi rekja sög­una aftur til árs­ins 1648.

Bent hefur verið á að Íslend­ingar hafi ætíð nálg­ast full­veldið eins og ein­hver muni koma og hrifsa það af þeim þegar minnst varir. Eftir ákafa bar­áttu fyrir full­veld­inu við erlend ríki beri yngri kyn­slóðum því að verja það fullu. Ástæðan er kannski sú að þegar Ísland varð full­valda ríki árið 1918 var talað um að Íslend­ingar væru að end­ur­heimta það full­veldi sem mis­vitrir menn hefðu glatað eftir gullöld þjóð­veld­is­tím­ans, þar sem við hafi tekið margra alda nið­ur­læg­ing. Full­veldi Íslands er þó eitt­hvað sem við höfum í hendi okkar – „full­fær um að glutra niður sjálf“ – fremur en að ein­hver komi og taki það af okkur.

Full­veldi er mjög víð­feðmt hug­tak en hin hefð­bundna skil­grein­ing er í grófum dráttum fullt og óskorað vald ríkis á eigin land­svæði. Full­veld­is­hug­takið hefur tvær víddir, þá innri sem snýr að laga­setn­ingu og lög­mæti rík­is­valds­ins inn­an­lands – og þá ytri sem snýr að við­ur­kenn­ingu umheims­ins á lög­sögu rík­is­ins. Jafn­framt hefur full­veldið tvö megin sjón­ar­horn, laga­legt sem er hin form­lega skil­grein­ing – og póli­tískt sem gefur hugs­an­lega raunsann­ari mynd af hug­tak­inu, þó um leið geti það orðið að póli­tísku slag­orði.

Full­veldið er þannig í grunn­inn lög­fræði­leg skil­grein­ing á fyr­ir­komu­lagi stjórn­skip­unar þjóð­rík­is­ins, sem nauð­syn­legt er að skoða í sögu­legu sam­hengi við sam­skipti við­kom­andi ríkis við önnur ríki. Síðan koma til ýmis óljós hug­tök eins og þjóð­ar­sál eða þjóð­ar­ein­ing, sem geta gefið full­veld­inu til­finn­inga­legt gildi. Vanda­málið við full­veld­isum­ræður á Íslandi er einmitt að hug­takið er svo sam­ofið sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslend­inga að umræður um fram­sal eða deil­ingu full­veldis geta hljó­mað nán­ast eins og föð­ur­lands­svik í eyrum margra.

Því er mik­il­vægt að árétta að full­veldi er ekki ein­hliða fyr­ir­bæri og snýst ekki um að haga sér eftir eigin geð­þótta. „Við­ur­kenn­ing á full­veldi fæst með sam­starfi, ekki með því að steyta hnef­ann framan í heim­inn“. Gagnlegt gæti verið að hafa orðið „full­gildi“ á bak við eyrað til að fá gleggri mynd af merk­ingu hug­taks­ins, því í full­veldi felst meðal ann­ars réttur ríkis til þátt­töku á alþjóða­vett­vangi og ákveðnar skyldur því sam­fara.

Ógnar alþjóðasamstarf fullveldinu?

Margir finna alþjóð­legum skuld­bind­ingum allt til for­áttu þar sem þær vegi stór­lega að sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti ríkja og þar með að full­veld­inu. Að sama skapi skerði alþjóða­væð­ing rétt­indi borg­ar­anna þegar ríkin þurfi að laga sig að og beygja undir þær hömlur sem hún skapar. Hitt sjón­ar­miðið er að ríki styrki einmitt raun­veru­legt full­veldi sitt með deil­ingu hins form­lega full­veldis. Jafn­framt færi alþjóða­væð­ingin borg­ur­unum lýð­ræð­isum­bætur því ríkin séu knúin til að standa sig í stykk­inu með ýmis­legt sem til dæmis varðar borg­ara­leg rétt­indi.

En hvernig má það vera að með því að skerða rétt rík­is­ins til að ráða sínum málum megi styrkja sjálf­stæði þess? Af hverju kjósa ríki til dæmis að ger­ast aðilar að alþjóða­stofn­unum og samn­ingum þar sem þau aug­ljós­lega fram­selja hluta full­veld­is­ins? Í raun hafa flest ríki, Ísland er þar fremst í flokki, fram­selt eða deilt hluta full­veld­is­ins. Spurn­ingin er því hvar við viljum draga mörkin frekar en hvort við fram­seljum eða deilum því yfir­höfuð.

Afstaða Íslend­inga til full­veld­is­ins setur mark sitt á umræður um þátt­töku Íslands í alþjóða­sam­starfi. Í því sam­hengi er fróð­legt að skoða hvað það er sem í raun ógnar full­veld­inu. Það sem heyr­ist gjarnan í umræð­unni er að útlend­ingar sitji um auð­lindir Íslend­inga, hina óþrjót­andi orku, hreina vatnið og fiski­miðin. Að sama skapi er vísað til yfir­valds­ins í Brussel sem íþyngj­andi reglu­gerð­ar­bákns sem full­veld­inu stafi bráð hætta af.

Þetta við­horf um full­veldið sem við­kvæmt fjöregg, sem við gætum misst í hendur gírugra útlend­inga, kann að vera skað­legt. Því á meðan er sofið á verð­inum á öðrum víg­stöðvum þar sem raun­veru­lega er sótt að full­veld­inu. Grund­vall­ar­at­riðið í þessu er að full­veldið fáum við ekki með ein­hliða yfir­lýs­ingu heldur þarf að koma til við­ur­kenn­ing ann­arra ríkja. Hún fæst með form­legu sam­starfi þar sem ríki sýnir að því sé treystandi og geti að sem mestu leyti staðið á eigin fótum.

Stórlega er vegið að full­veldi ríkis sem getur ekki tryggt öryggi borg­ar­anna gagn­vart þeim ógnum sem að geta steðjað. Það geta verið árásir frá öðrum ríkjum, hópum, þeim sem ógna stöðu rík­is­ins innan frá eða ógn vegna nátt­úru­ham­fara og ann­arra hörm­unga.

Þegar skoð­aðir eru mögu­leikar Íslend­inga til hefð­bund­inna varna verður að við­ur­kenn­ast að þar erum við ekki mjög burðug. Ísland er her­laust ríki og upp á önnur ríki komið með her­varnir. Eftir brott­för banda­ríska hers­ins árið 2006 hefur Land­helg­is­gæslan átt í mesta basli við að halda úti lág­marks þyrlu­björg­un­ar­sveit. Jafn­framt má spyrja má hvort Íslend­ingar geti í raun haldið uppi lág­marks borg­ara­legu öryggi í efna­hags­lög­sög­unni umhverfis landið. Það er svæði sem við gerum þó kröfu til – og höfum jafn­framt skuld­bundið okkur til sinna öryggi á enn stærra svæði.

Að sama skapi má einnig full­yrða að ef ríki er ekki efna­hags­lega sjálf­stætt sé það ekki full­valda. Í því sam­hengi má nefna stöðu Íslands í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008 er Ísland varð í raun upp á önnur ríki komið efna­hags­lega. Þá missti Ísland trú­verð­ug­leika á alþjóða­vett­vangi um skeið og íslensk stjórn­völd fóru með stjórn efna­hags­mála undir hand­leiðslu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Óhætt er að segja að þar hafi verið vegið að full­veld­inu á ein­hvern hátt.

Fullveldið varið

Því er farin sú leið að leita sam­starfs við önnur ríki, ýmist tví­hliða eða með aðild að ein­hvers konar form­legum samn­ingum eða alþjóða­stofn­unum. Gera má ráð fyrir því að meg­in­á­stæða þess að Íslend­ingar und­ir­rit­uðu samn­ing­inn um EES, með þeim tak­mörk­unum á full­veld­inu sem aðildin hefur í för með sér, sé komin til af sömu orsök og lá að baki inn­göng­unni í NATO.

Þá er það metið sem svo, að fórn á hluta full­veld­is­ins sé nauð­syn­leg for­senda sjálf­stæðis íslenska þjóð­rík­is­ins. Án greiðs aðgangs að evr­ópskum mörk­uðum gæti íslenskt efna­hags­líf ekki þrif­ist og ef efna­hags­lífið hryndi væri full­veldið vænt­an­lega ekki mik­ils virði. Með fram­sali á vörnum lands­ins með form­legum hætti til banda­lags eins og NATO og eða Banda­ríkj­anna, má líta svo á að hið raun­veru­lega full­veldi rík­is­ins sé betur tryggt.

Þrátt fyrir að vera veik­burða getur smá­ríki eins og Ísland með virku alþjóða­sam­starfi og form­legu fram­sali full­veldis, varið hags­muni sína á hlut­laus­ari grunni en ella og styrkt sjálf­stæði sitt – auk þess að skapa sér trú­verð­ug­leika á alþjóða­vett­vangi, sem er lyk­il­at­riði.

Full­veldið er því býsna marg­brotið og mik­il­vægt að umgang­ast það af nær­gætni og forð­ast að mis­nota það sem póli­tíska tákn­mynd eða slag­orð. Hætt er við að skil­grein­ing á full­veldi sem bygg­ist á þjóð­ernis-róm­an­tískum hug­myndum hund­rað ára gam­allar heims­myndar sé ekki mjög gagn­leg – mun frekar skað­leg.

Full­veldi er í raun marg­þætt, gagn­kvæmt og síbreyti­legt fyr­ir­bæri og snýst ekki ein­göngu um að verja hags­muni rík­is­ins á ein­hliða hátt eins og stundum er haldið fram. Full­veldi er eins­konar gæða­stað­all sem ríki ávinnur sér, en felur þá jafn­framt í sér ríkar skyldur, bæði gagn­vart eigin borg­urum og á alþjóða­vett­vangi. Ef þær eru ekki upp­fylltar er fyrst hætta á að fjöreggið glat­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár