Ólafur Ólafsson fær opinn fund með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur ákveðið að verða við form­legri beiðni Ólafs Ólafs­sonar um að mæta á fund með nefnd­inni. Fund­ur­inn verður opinn fjöl­miðlum.

Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson Mynd: RÚV/Skjáskot.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hefur ákveðið að verða við beiðni Ólafs Ólafs­sonar um að mæta á fund nefnd­ar­innar. Þetta var ákveðið á fundi nefnd­ar­innar í morgun, og að auki var ákveðið að fund­ur­inn verður opinn fjöl­miðlum. Þetta segir Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar og vara­for­maður nefnd­ar­innar, en hann fer fyrir nefnd­inni í umfjöllun um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans og aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á bank­anum.

RÚV greinir frá þessu. Í Frétta­blað­inu í morgun kom fram að Ólafur hefði sent nefnd­inni form­legt erindi um að fá að koma fyrir nefnd­ina, en eins og Kjarninn hefur greint frá hafði hann áður aðeins sagt opin­ber­lega að hann vildi mæta fyrir nefnd­ina, en ekki sent erindi þess efnis til hennar.

„Í því erindi gefur hann til kynna að hann geti varpað frekara ljósi á mála­vexti og stutt það mál sitt með gögnum og á þeirri for­sendu var ákveðið að hafa hann einn af þeim sem koma fyrir nefn­ina til þess að ræða þessi mál,“ segir Jón Steindór við RÚV.

Þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, Brynjar Níels­son og Njáll Trausti Frið­berts­son, töldu að fund­ur­inn með Ólafi ætti að vera lok­aður. Brynjar er for­maður nefnd­ar­innar en hefur sagt sig frá umfjöllun um málið vegna þess að hann var um tíma verj­andi Bjarka Diego í saka­­máli sem sner­ist um meint efna­hags­brot. Bjarki er einn þeirra sem gegndi lyk­il­hlut­verki í þeirri fléttu sem ofin var í kringum kaup­in.

„Ég er ekki viss um að hann eigi að vera í beinni útsend­ingu ef hann á að nýt­ast okkur eitt­hvað. Þá er þetta allt komið á þvæl­ing á meðan við erum á við­kvæmum stað í skoð­un­inni. Þá er hætt við að þessi umræða fari út og suður áður en við ljúkum okkar vinnu. Það getur verið óþægi­legt fyrir okkur en það er mitt mat. Við munum svo ræða það nánar í nefnd­inn­i,“ sagði Brynjar við Frétta­blaðið á dög­unum. 

Líkt og Kjarninn hefur greint frá hefðu almenn­ingur og fjöl­miðlar ekki fengið upp­lýs­ingar um fund­inn ef hann hefði verið lok­aður, þar sem ólög­legt er fyrir nefnd­ar­menn að greina frá því sem gestir segja á lok­uðum nefnd­ar­fundum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár