Aflandsfélagaeign borgarfulltrúa rannsökuð

For­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti í morgun til­lögu þess efnis að aflands­fé­laga­eign borg­ar­full­trúa verði könnuð til hlítar. Á fund­inum var fjallað um siða­reglur borg­ar­full­trúa og reglur um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar. Í for­sætis­nefnd sitja Sóley Tóm­as­dóttir, full­trúi Vinstri grænna, Halldór Auðar Svansson. full­trúi Pírata og Elsa Hrafn­hildur Yeoman full­trúi Bjartrar fram­tíðar. Einnig sátu fund­inn áheyrn­ar­full­trúar þau Magnús Már Guð­munds­son full­trúi Sam­fylk­ingar, Jóna Björg Sætran full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina og Halldór Hall­dórs­son full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks.

Tillagan er eft­ir­far­andi: „Í ljósi frétta af aflands­fé­lögum í eigu borg­ar­full­trúa sem fluttar hafa verið að und­an­förnu telur for­sætis­nefnd brýnt að til þess bærir aðilar kanni málin til hlítar.

Því er þess farið á leit við innri end­ur­skoðun og reglu­vörð borg­ar­innar að kannað verði hvort borg­ar­full­trú­arnir Júlíus Vífill Ingv­ars­son og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir hafi farið á svig við gild­andi lög og reglur um skyldur og hæfi borg­ar­full­trúa, hvort reglum um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar hafi verið fylgt og hvort siða­reglur borg­ar­full­trúa hafi verið brotnar.

Að sama skapi er óskað eftir því að siða­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga taki málið til skoð­unar í sam­ræmi við hlut­verk nefnd­ar­innar og 29. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga."

Í sér­stökum Kast­ljós­þætti sem sýndur var á sunnu­dag kom fram að Júlíus Vífill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætti vörslu­sjóð á í Panama. Júlíus gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í síð­ustu viku þar sem hann sagði að sjóð­ur­inn hafi verið stofn­aður í sviss­neskum banka til að mynda eft­ir­launa­sjóð­inn sinn, en að honum hafi verið ráð­lagt að skrá stofnun hans í Panama. Sjóð­ur­inn lúti svip­uðu reglu­verki og sjálfs­eigna­stofnun. Aflands­fé­lagið heitir Silwood Foundation.

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­valla­vina, var einnig til umfjöll­unar. Svein­björg átti hlut­deild í aflands­fé­lagi sem var í fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni í Panama. Áheima­síðu Reykja­vik Media kemur fram að Svein­björg sé skráð fyrir tveimur félögum í umsjá panamísku lög­fræði­stof­unar Mossack Fonseca; 7Callinvest sem skráð er á Tortóla og Ice 1 Corp sem var skráð á Panama. Sjálf hefur hún í störfum sínum í borg­ar­stjórn ítrekað lýst sig and­víga því að Reykja­vík­ur­borg eða fyr­ir­tæki á hennar vegum eigi aðild að fyr­ir­tækjum á aflandseyjum.

Þá var fjallað um mál­efni Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dóttur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og eig­in­manns hennar, Hall­bjarnar Karls­sonar verk­fræð­ings. Þorbjörg og Hall­björn eru skráð fyrir félag­inu Ravenna Partners á Tortóla. Allt hlutafé Ravenna var skráð á þau hjónin í ágúst 2005. Félagið var alla tíð eigna­laust. Þorbjörg Helga var kjörin í borg­ar­stjórn 2006 og sat sem borg­ar­full­trúi til árs­ins 2014.

Enginn þess­ara kjörnu full­trúa skráðu félögin sín í hags­muna­skrán­ingu, hvorki á Alþingi né hjá Reykja­vík­ur­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár