Danski brekkumeistarinn sem kom sá og sigraði Tour de France

Danir hafa eign­ast nýja þjóð­hetju í hjól­reiða­mann­inum Jonasi Vingegaard, sem kom sá og sigr­aði Tour de France, sem fór einmitt af stað frá Danmörku þetta árið. En hver er þessi ungi Dani sem hefur óvænt skot­ist upp á stjörnu­him­inn hjól­reið­anna?

Jonas Vingegaard á leið á Radhuspladsen þar sem honum var fagnað af samlöndum sínum.
Jonas Vingegaard á leið á Rad­hus­plad­sen þar sem honum var fagnað af sam­löndum sínum. Mynd: EPA

Það var mikið húll­umhæ í Kaup­manna­höfn á mið­viku­dag­inn síð­ast­lið­inn þegar danska þjóðin tók á móti Jonasi Vingegaard, nýj­ustu þjóð­hetju Dana, á Ráð­hús­torg­inu og svo í Tivoli eftir sigur kappans á hjól­reiða­keppn­inni Tour de France. Jonas veif­aði trylltum lýð af svölum ráð­húss­ins og sam­kvæmt dönskum fjöl­miðlum hefur eng­inn hlotið slíkar mót­tökur síðan danska karla­lands­liðið varð Evr­ópu­meist­ari í knatt­spyrnu árið 1992.

Leið Jonasar upp á stjörnu­him­in­inn hefur verið nokkuð hröð, en þessi 25 ára gamli Jót­lend­ingur fékk áhuga á hjól­reiðum þegar faðir hans fór með hann að fylgj­ast með Dan­merk­ur­keppn­inni þegar hún átti leið um bæinn þar sem fjöl­skyldan bjó á Vestur-Jótlandi. Áður hafði Jonas æft fót­bolta en í við­tali hefur verið haft eftir föður hans að hann hafi alltaf verið lít­ill og léttur.

Jonas fór að æfa hjól­reiðar af alvöru sem tán­ingur en sam­kvæmt þjálf­urum hans á þeim tíma bar hann ekk­ert sér­stak­lega af og átti raunar nokkuð erfitt upp­dráttar. En áhug­inn og ástríðan var til staðar og vann Jonas mjög hart að því að verða betri og fór hann á mála hjá Odder hjól­reiða­klúbbnum 17 ára gam­all. Kúbb­ur­inn fór í hjól­reiða­ferðir suður á bóg­inn í Evrópu kom þá í ljós að Jonas hafði eitt­hvað alveg sér­stakt sem ekki hafði upp­götvast áður: hann hafði sér­stakt lag á því að hjóla í bröttum brekkum.

Þar kom það sér nefni­lega mjög vel að vera lít­ill og léttur, en vegna brekku­leysis í heima­land­inu hefðu þessir hæfi­leikar Jonasar kannski ann­ars aldrei komið í ljós.

Fiskur á morgnana, hjól eftir hádegi

Á miðju tíma­bil­inu árið 2016 gekk Jonas til liðs við coloQuick, þar sem Christian Andersen þjálf­ari hafði mikla trú á hæfi­leikum Jonasar. Til þess að hjálpa Jonasi að venj­ast rútínu og strúktur, auk þess að byggja upp þraut­segju, lét Christian hann fá sér vinnu í fisk­verk­smiðju þar sem Jonas starf­aði frá klukkan sex fram að hádegi, og æfði svo hjól­reiðar eftir hádegið. Á meðan hann var á mála hjá coloQuick kynnt­ist hann einnig kær­ustu sinni og barns­móður, Trine Marie Hansen, sem starf­aði sem yfir­maður mark­aðs­mála fyrir liðið.

Vegna lær­leggs­brots missti Jonas af stærstum hluta tíma­bils­ins 2017 en kom sterkur til baka árið 2018 og stóð sig raunar svo vel að árið eftir gekk hann til liðs við hol­lenska stór­liðið Jumbo-Visma og tók þátt í sinni fyrstu keppni með lið­inu árið 2019. Hann vann einn áfanga keppn­innar Umhverfis Pólland á sínu fyrsta tíma­bili en það var svo haustið 2020 sem hann virki­lega komst á blað þegar hann átti stóran hlut í að tryggja liðs­fé­laga sínum Primoz Roglic sig­ur­inn í Vuelta a Espana, auk þess sem hann stóð sig vel í öðrum keppnum tíma­bils­ins.

Óvænt stjarna

Það var svo á síð­asta ári sem Jonas þreytti frumraun sína í Tour de France og kom hann inn í lið Jumbo-Visma í stað hins hol­lenska Tom Dumoulin. Til stóð að Jonas myndi að nýju hjálpa aðal­stjörnu liðs­ins, Primoz Roglic, að knýja fram sigur líkt og hann hafði gert á Spáni árið áður. Roglic slas­aði sig hins vegar snemma í keppn­inni og þurfti að hætta keppni þegar hún var tæp­lega hálfnuð og varð Jonas þá óvænt stjarna liðs­ins og lík­lega óvæntasta stjarna keppn­innar og komst nærri því að vinna keppn­ina og end­aði í öðru sæti í sinni fyrstu Tour de France. Jonas steig á pall í París með dótt­ur­ina Fridu í fang­inu og þá vit­neskju að líf hans yrði aldrei samt. Hann var orð­inn stjór­stjarna.

Vænt­ing­arnar fyrir Tour de France þessa árs voru því háar, og eft­ir­vænt­ingin meðal dönsku þjóð­ar­innar sér­stak­lega há þar sem keppnin hófst í Kaup­manna­höfn, og má segja að Jonas hafi staðið undir þeim og rúm­lega það. Jonas atti þar kappi við sig­ur­veg­ara árs­ins áður, Tadej Pogacar, og hafði að lokum betur. Segja má að Jonas og Pogacar hafi raunar háð sína eigin keppni í túrnum þetta ár þar sem þeir sem á eftir þeim komu voru langt, langt á eftir. Jonas stóð uppi sem sig­ur­veg­ari og er fyrsti Daninn til þess að vinna Tour de France frá 1996 – einmitt árinu sem hann fædd­ist.

Það eru því engar ýkjur að segja að Jonas sé orðin stór­stjarna og mót­t­tök­urnar í Kaup­manna­höfn í vik­unni styðja enn frekar við þá stað­hæf­ingu. Fjöl­miðlar um allan heim hafa dáðst að mann­haf­inu sem heils­aði Jonasi er hann steig út á svalir ráð­húss­ins í Kaup­manna­höfn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár