„Allt bendir til hryðjuverks“ í Stokkhólmi

Vörubíll ók á gang­andi veg­far­endur í mið­borg Stokk­hólms og talið er að um hryðju­verka­árás geti verið að ræða. Óttast er að þrír séu látnir að sögn sænskra fjöl­miðla.

Staðfest hefur verið að þrír eru látnir og átta eru slas­aðir eftir að vöru­bíl var ekið á gang­andi veg­far­endur við Drottn­ing­ar­götu í mið­borg Stokk­hólms rétt í þessu. Lög­reglan í Stokk­hólmi sagði við sænska rík­is­út­varpið SVT að ótt­ast sé að um hryðju­verka­árás sé að ræða.

Mis­vísandi fréttir eru af mann­falli, en sumir sænskir fjöl­miðlar segja að fimm séu látnir.

„Ráðist hefur verið á Svíþjóð. Allt bendir til hryðju­verka,“ sagði Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, við fjöl­miðla rétt í þessu. Hann sagði að einn hefði verið hand­tek­inn, og hvatti til þess að fólk héldi ró sinni.

Vitni sem sænskir fjöl­miðlar hafa rætt við segja að vöru­bílnum hafi verið ekið á fullri ferð á vöru­húsið Ählens. Vöru­bílnum var rænt á meðan bíl­stjóri hans var að afferma hann, en ekki hefur verið sagt frá því hvar þetta átti sér stað eða hvenær.

Lögregla biður fólk um að halda sig heima eða inn­an­dyra. Búið er að loka þing­hús­inu í Stokk­hólmi og girða það af. Þá liggja allar almenn­ings­sam­göngur niðri, en aðal­lest­ar­stöðin er mjög skammt frá Drottn­ing­ar­göt­unni.

Fjöl­margir Íslend­ingar eru búsettir í Stokk­hólmi og hefur utan­rík­is­ráðu­neytið beðið um að fólk láti vita af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár