Stöðugleikaframlögin fara til félags undir fjármálaráðuneytinu

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar leggur til að eignir sem ríkið fær vegna stöð­ug­leika­fram­lags fari til félags sem heyri beint undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Nefndin vill meira gagn­sæi og skýr­ari ábyrgð. Borg­un­ar­málið hafði áhrif.

Þær eignir sem íslenska ríkið mun fá afhent sem stöð­ug­leika­fram­lag frá slita­búum föllnu bank­anna, utan Íslands­banka, munu ekki renna til félags í eigu Seðla­banka Íslands. Þess í stað munu þær fara til félags sem mun heyra undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar við breyt­ing­ar­til­lögu á frum­varpi um stöð­ug­leika­fram­lag. Ein af ástæð­unum fyrir því að þrýst var á um þessar breyt­ingar var hið svo­kall­aða Borg­un­ar­mál, þar sem hlutur rík­is­s­bank­ans Lands­bank­ans í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun var seldur á bak­við luktar dyr til hóps stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og með­fjár­festa þeirra. Síðar kom í ljós að virði hlut­ar­ins var marg­falt meira en það var áætlað við söl­una.

Félagið sem stofnað verður mun fá til sín eignir sem metnar eru á bil­inu 60 til 80 millj­arða króna. Það á síðan að koma þeim eignum í verð og skila afrakstr­inum til rík­is­sjóðs. Það var því mat nefnd­ar­manna að tryggja þyrfti gagn­sæi og jafn­ræði þegar eign­irnar yrðu seldar, og eru breyt­ing­arnar sem boð­aðar eru í nefnd­ar­á­lit­inu meðal ann­ars til þess ætl­aðar. Allir nefnd­ar­menn utan við einn skrifa undir álitið, en full­trúi Vinstri grænna í nefnd­inni gerði það með fyr­ir­vara.

Borgunarmálið hafði klár áhrif

Í nefnd­ar­á­lit­inu, sem birt var í dag, segir að „veiga­mikil rök“ hafi komið fram fyrir því að félagið ætti ekki að vera á for­ræði Seðla­banka Íslands heldur að heyra beint undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið.

Aðspurður um hvaða rök þetta séu segir Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, að þau séu margs­konar. „Það komu til að mynda ábend­ingar frá Seðla­bank­anum um að þetta félli ekki vel að starf­semi hans. Þá hefðu verið gerðar kröfur um fullt skað­leysi stjórn­enda og tölu­vert mikil leynd myndi hvíla yfir fulln­ustu eign­anna. Okkur þing­mönn­unum þótt ekki gott að það myndi mynd­ast ábyrgð­ar­tóma­rúm.“

Frosti segir einnig að Borg­un­ar­málið hafi haft klár áhrif á með­ferð máls­ins. Það hafi sýnt fram á nauð­syn þess að vita hvar ábyrgð lægi, að það yrði alveg á hreinu að útboðs­skylda yrði á öllum eignum sem seldar yrðu og að hæfi stjórn­ar­manna sem skip­aðir yrðu yfir félagið myndi met­ast eftir skýrum skil­yrðum. Hann segir einnig að félagið sem stofnað verður um umsýslu eign­anna muni falla undir upp­lýs­inga­lög. Því eiga fjöl­miðlar og almenn­ingur að geta kallað eftir upp­lýs­ingum um starf­semi þess ef vilji er til.

Verður risastórt félag

Um verður að ræða risa­stórt félag. Virði eign­anna sem munu renna inn í það, sem afhentar voru rík­inu í stöð­ug­leika­fram­lögum slita­búa föllnu bank­anna, verður á bil­inu 60 til 80 millj­arðar króna, að sögn Frosta. Félagið sjálft mun ekki eiga eign­irnar heldur ríkið. Það mun fulln­usta þær og þegar búið verður að umbreyta þeim í laust fé mun það und­an­tekn­ing­ar­laust renna inn á lok­aðan reikn­ing í Seðla­bank­anum.

Allt hlutafé í Íslands­banka, sem er stærsta ein­staka stöð­ug­leika­fram­lag föllnu bank­anna, mun renna til Banka­sýslu rík­is­ins,ekki inn í hið fyr­ir­hug­aða eign­ar­um­sýslu­fé­lag. Aðrar eignir sem rík­inu verða afhentar munu hins vegar rata þangað.

Frosti segir að góð ein­ing hafi verið um þessa leið innan nefnd­ar­innar. „Eftir að hafa skoðað alla val­kosti, að hafa þetta inni í ráðu­neyt­inu, að setja þetta mögu­lega í syst­ur­fé­lag Banka­sýsl­unnar, nokk­urs konar eigna­sýslu, eða hafa þetta áfram inni í Seðla­bank­anum var ákveðið að þetta væri besta leiðin. Að hafa eigna­um­sýsl­una í sér­stöku félagi undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þá verður ábyrgð­ar­keðjan skýr­ari. Það verður líka til arms­lengd með því að ráð­herr­ann skipar stjórn félags­ins sem síðan ræður starfs­fólk.“

Gert er ráð fyrir því að 150 millj­ónum króna verði varið í að stofna félagið, meðal ann­ars vegna ráð­gjafar í tengslum við mat, aug­lýs­ingar, lög­fræði­þjón­ustu „og þar fram eftir göt­unum“.

Kúvending á tveimur og hálfum mánuði

Þetta er umtals­verð breyt­ing frá upp­runa­legri áætlun stjórn­valda um hvernig ætti að fulln­usta stöð­ug­leika­fram­lögin. Þann 11. des­em­ber síð­ast­lið­inn lagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um Seðla­banka Íslands. Sú breyt­ing sem átti að gera var í raun ekki flókin. Með henni átti Seðla­banka Íslands að verða gert kleift að stofna félag sem tæki við stöð­ug­leika­fram­lögum föllnu bank­anna. Um yrði að ræða við­bót­ar­breyt­ingu á lögum við breyt­ingar sem gerðar voru sum­arið 2015, í kjöl­far þess að stjórn­völd kynntu áætlun sína um losun hafta.

Nokkrum dögum áður en þingi var slitið í des­em­ber síð­ast­liðnum, þegar slita­búin voru hvert af öðru að gera sig til­búin til að greiða stöð­ug­leika­fram­lögin, var lagt fram frum­varp sem hafði þann til­gang að skýra með ítar­legri hætti heim­ildir og skyldur þeirra sem að ferl­inu koma frá því að stöð­ug­leika­fram­lögin eru mót­t­tekin og þar til að þau eru seld eða þeim ráð­stafað með öðrum hætti.

Samkvæmt því átti félag í eigu Seðla­bank­ans að verða falið að „ann­ast umsýslu og að fulln­usta og selja eftir því sem við á verð­mæti sem Seðla­bank­inn tekur á móti í þeim til­gangi að draga úr, koma í veg fyrir eða gera kleift að bregð­ast við nei­kvæðum áhrifum á stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum, í stað þess að ráð­herra sé heim­ilt að fela „sér­hæfðum aðila sem starfar í umboði bank­ans“ verk­efnin.“

Samkvæmt breyt­ing­ar­til­lög­unni hefur verið fallið algjör­lega frá þess­ari áætlun, sem lögð var fram fyrir rúmum tveimur og hálfum mán­uði síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár