Greiðsla stöðugleikaframlaga á bið

Slitabú föllnu bank­anna eru til­búin að greiða um mörg hund­ruð millj­arða króna í stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­ins. Félagið sem á að taka við greiðsl­unni er hins vegar ekki til­búið og Alþingi á enn eftir að afgreiða laga­breyt­ingu um það.

Nauða­samn­ingar Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa allir verið sam­þykktir og afgreiddir af kröfu­höfum og dóm­stólum. Stöð­ug­leika­fram­lögin sem slitabú þeirra hafa sam­þykkt að greiða, og nema sam­tals um 350 millj­örðum króna, eru til­búin og bíða þess að vera færð rikis­sjóði, en slík greiðsla er for­senda þess að kröfu­hafar búanna geti fengið greitt.

Það er ein­ungis eitt vanda­mál til staðar. Félagið sem á að taka við stöð­ug­leika­fram­lög­unum er ekki til­búið og nauð­syn­legar breyt­ingar á lögum til að heim­ila stofnun þess hafa ekki verið kláraðar. Því er greiðsla stöð­ug­leika­fram­laga á bið.

Félag í eigu Seðlabankans á að taka á móti greiðslum

Þann 11. des­em­ber síð­ast­lið­inn lagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um Seðla­banka Íslands. Sú breyt­ing sem verið er að gera er í raun ekki flókin. Með henni er Seðla­banka Íslands gert kleift að stofna félag sem tekur við stöð­ug­leika­fram­lögum föllnu bank­anna. Um er að ræða við­bót­ar­breyt­ingu á lögum við breyt­ingar sem gerðar voru sum­arið 2015, í kjöl­far þess að stjórn­völd kynntu áætlun sína um losun hafta.

[adspot]

Nokkrum dögum áður en þingi var slitið í des­em­ber síð­ast­liðnum, þegar slita­búin voru hvert af öðru að gera sig til­búin til að greiða stöð­ug­leika­fram­lögin, var lagt fram frum­varp sem hefur þann til­gang að skýra með ítar­legri hætti heim­ildir og skyldur þeirra sem að ferl­inu koma frá því að stöð­ug­leika­fram­lögin eru mót­t­tekin og þar til að þau eru seld eða þeim ráð­stafað með öðrum hætti.

Samkvæmt því á félag í eigu Seðla­bank­ans að verða falið að „ann­ast umsýslu og að fulln­usta og selja eftir því sem við á verð­mæti sem Seðla­bank­inn tekur á móti í þeim til­gangi að draga úr, koma í veg fyrir eða gera kleift að bregð­ast við nei­kvæðum áhrifum á stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum, í stað þess að ráð­herra sé heim­ilt að fela „sér­hæfðum aðila sem starfar í umboði bank­ans“ verk­efnin.“

Umsagnaraðilar þurfa að skila fyrir 18. janúar

Ekki tókst að afgreiða breyt­ing­ar­til­lög­una fyrir lok síð­asta þings en hún var tekin til fyrstu umræðu 18. des­em­ber og rædd í 50 mín­útur. Í kjöl­far þess gekk málið til efna­hags- og við­skipta­nefndar sem sendi út umsagn­ar­beiðnir um það 6. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þeir sem vilja skila inn umsögn um breyt­ing­una hafa þangað til 18. jan­úar til að skila henni inn. Eftir að efna­hags- og við­skipta­nefnd fer yfir þær umsagnir mun hún afgreiða málið til ann­arrar og þriðju umræðu í þing­inu. Það ætti sam­kvæmt öllum form­legum ferlum að taka nokkra daga hið minnsta.

Því er enn nokkur bið á því að slitabú föllnu bank­anna geti innt stöð­ug­leika­fram­lögin sem þau hafa sam­þykkt að greiða, og eru með til­búin til útgreiðslu, af hendi. Þegar þessu ferli er lokið munu slita­búin geta greitt kröfu­höfum sínum út hlut­deild­ars­kirteini og reiðufé og breyst í venju­leg eign­ar­halds­fé­lög, líkt og nauða­samn­ingar þeirra gera ráð fyrir.

Lítið reiðufé, mikið af eignum

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar um frum­varp til fjár­laga, sem birt var í kjöl­far þess að fjár­lögin voru afgreidd út úr nefnd­inni til sam­þykktar nokkrum dögum fyrir síð­ustu jól, kemur fram að ríkið muni tekju­færa sam­tals 348,3 millj­arða króna vegna stöð­ug­leika­fram­lag­anna. Þar munar lang­mest um 95 pró­sent hlut í Íslands­banka sem met­inn er á 184,7 millj­arða króna. Samkvæmt því verð­mati er búist við að Íslands­banki, að með­töldum þeim fimm pró­sent hlut sem ríkið heldur þegar á, selj­ist fyrir meira en sem nemur eigin fé hans, en það er um 193 millj­arðar króna.

Önnur stærsta eignin sem rík­inu verður afhend er 84 millj­arða króna skulda­bréf frá slita­búi Kaup­þings með veði í Arion banka. Það greið­ist vænt­an­lega ekki fyrr en bank­inn hefur verið seldur en nýir stjórn­endur Kaup­þings munu fá allt að þrjú ár til að gera það.

Svo þarf nátt­úru­lega að taka til­lit til þess að slita­búin greiða ekki lengur banka­skatt, og það mun lækka tekjur rík­is­ins um 17 millj­arða króna. Auk þess verður ríkið af vaxta­tekjum af víkj­andi lánum en fær á móti auknar arð­greiðslur frá Íslands­banka og vaxta­tekjur af skulda­bréf­inu frá Kaup­þingi. Allt í allt lækkar þetta stöð­ug­leika­fram­lögin um 9,4 millj­arða króna. Þau verða því sam­tals 338,9 millj­arðar króna. Af þeirri upp­hæð mun 41,8 millj­arðar króna ber­ast í greiðslum þegar ofan­greitt félag, sem á að taka við stöð­ug­leika­fram­lög­unum, verður loks til. Þ.e. bein­hörðum pen­ingum. Afgang­ur­inn er í formi eigna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár