Bjarni segir lögbannið vera út í hött

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki hafa reynt að stöðva neinn frétta­flutn­ing af sínum málum. Hann hafi fyrir löngu sætt sig við að sem opin­ber per­sóna gildi önnur við­mið fyrir hann.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, segir að lög­bann Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar og Reykja­vík Media sem bygg­ist á gögnum úr Glitni og fjallar að mestu um hann, komi á ein­stak­lega óheppi­legum tíma. Það sé út í hött á þessum tíma­punkti að setja lög­bann á frétta­flutn­ing­inn þótt að hann vilji ekki gera lítið úr því að í gögn­unum séu upp­lýs­ingar um þús­undir Íslend­inga sem séu illar fengnar. Þetta kemur fram í við­tali við Bjarna á RÚV.

Þar segir Bjarni að umfjöllun um þátt­töku hans í við­skipta­lífi hafi staðið næstum ára­tug aftur í tím­ann, vegna mála sem snerta hann per­sónu­lega og hafi ekk­ert með almanna­hags­muni að gera. Und­an­farið hafi slíkar fréttir birst í tuga­tali.

„Ég hef aldrei gert neina til­raun til að stöðva slíkan frétta­flutn­ing. Ég hef bara leit­ast við að koma fram með svör. Og ég tel að við eigum að byggja okkar opna sam­fé­lag upp með þeim hætti að fjöl­miðlar séu frjálsir af því að flytja fréttir, fjalla um mál­efni, sér­stak­lega þau sem varða almenn­ing[...]Ég hef fyrir löngu, löngu síðan sætt mig við það að sem opin­ber per­sóna þurfi að gilda önnur við­mið fyrir mig. Og í ljósi þess að umræðan um þessi mál­efni er dálítið orð­inn hlutur, þá finnst mér lög­bann á þessum tíma­punkti eig­in­lega út í hött hvað mig sjálfan varðar. En ég vil ekki með því gera lítið úr því að það kunna að vera þús­undir Íslend­inga, eins og maður les í frétt­unum, sem hægt er að fá upp­lýs­ingar um í ein­hverjum gögnum sem eru illa fengin. Og það þurfi að fara sína leið í kerf­inu.“

Sýsla­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu féllst í gær á kröfu félags­ins GlitnirHoldco, sem heldur á eft­ir­stand­andi eignum þrota­bús Glitnis, um að lög­­­bann yrði sett á frétta­­flutn­ing Stund­­ar­inn­ar og Reykja­vík Media, sem bygg­ir á gögn­um inn­­an úr fallna bank­an­­um. Í frétta­til­kynn­ingu sem send var út í gær sagði að ög­bannskrafan hafi verið lögð fram hjá sýslu­manni á föstu­dag.

Þar sagði einnig Fjár­mála­eft­ir­lit­inu hefði verið til­kynnt um brot á banka­leynd með frétta­flutn­ingn­um, og að Glitnir hefði ráðið lög­manns­stofu í Bret­landi til að gæta hags­muna sinna gagn­vart fjöl­miðl­inum The Guar­di­an, sem hefur fjallað um gögnin í sam­vinnu við Stund­ina og Reykja­vík Media.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár