Methagnaður hjá Shell í miðri orkukrísu

Mögur ár kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins eru að baki fyrir olíu­fram­leið­endur. Stjórn­völd hafa gagn­rýnt olíu- og orku­fyr­ir­tæki fyrir að maka krók­inn á sama tíma og almenn­ingur þarf að greiða hátt verð fyrir orku til hús­hit­unar og fyrir elds­neyti á bíl­inn.

Í upphafi árs breytti olíurisinn Royal Dutch Shell um nafn og flutti höfuðstöðvar sínar frá Den Haag til London. Í dag heitir fyrirtækið einfaldlega Shell.
Í upp­hafi árs breytti olíu­ris­inn Royal Dutch Shell um nafn og flutti höf­uð­stöðvar sínar frá Den Haag til London. Í dag heitir fyr­ir­tækið ein­fald­lega Shell. Mynd: EPA

Olíu­ris­inn Shell skil­aði met­hagn­aði annan árs­fjórð­ung­inn í röð. Í nýju upp­gjöri félags­ins fyrir annan árs­fjórð­ung kemur fram að hagn­aður félags­ins á fjórð­ungnum hafi numið 16,7 millj­örðum Banda­ríkja­dala sem sam­svarar tæp­lega 2.300 millj­örðum króna. Sterk afkoma félags­ins á fjórð­ungnum er ekki síst til­komin vegna hækk­andi orku­verðs sem og þeim efna­hags­bata sem orðið hefur á heims­vísu eftir að áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins fóru dvín­andi. Til sam­an­burðar nam hagn­aður félags­ins á sama árs­fjórð­ungi í fyrra 2,7 millj­örðum dala, um 370 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag.

Að því er fram kemur í umfjöllun Wall Street Journal er sterk afkoma Shell á fjórð­ungnum en eitt merki þess að hagur stærstu olíu­fyr­ir­tækja heims fari nú batn­andi eftir mögur COVID-ár. Í far­aldr­inum hrundi eft­ir­spurn eftir olíu vegna minni ferða­laga fólks og olíu­verð lækk­aði sömu­leiðis.

Talsvert flökt á olíuverði innan ársins

Nú er öldin aftur á móti önnur. Olíu­fé­lögin hafa hagn­ast vel á auknum slag­krafti í heims­bú­skapnum og tíð­ari ferða­lögum. Frá upp­hafi árs hefur heims­mark­aðs­verð olíu þar að auki hækkað umtals­vert. Við upp­haf árs stóð verðið á tunnu af Brent Norð­ursjáv­ar­olíu í 80 dölum en nú er verðið rétt rúm­lega 100 dalir. Þar með er ekki öll sagan sögð, verðið reis hratt í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu og fór hæst í tæp­lega 130 dali. Frá upp­hafi júní hefur heims­mark­aðs­verðið lækkað nokkuð snarpt.

Innrás Rússa í Úkraínu fyrr á þessu ári hefur haft marg­þætt áhrif á orku- og olíu­fyr­ir­tæki. Shell, líkt og aðrir stórir olíu­fram­leið­endur á borð við BP og Exxon Mobil ákváðu að hætta fram­leiðslu á elds­neyti í Rúss­landi eftir inn­rás­ina. Auk minni fram­leiðslu hafði það kostnað í för með sér en hækk­andi orku­verð hefur dempað áhrifin all­veru­lega.

Framlegðin þrefaldast

Engu að síður hafa þessi fyr­ir­tæki sætt gagn­rýni frá stjórn­völdum beggja vegna Atl­ants­hafs­ins vegna þess að þau maka krók­inn á sama tíma og almenn­ingur þarf að greiða fyrir bæði orku til hús­hit­unar og fyrir elds­neyti á bíl­inn mun hærra verði. Rússar hafa til að mynda dregið all­veru­lega úr afhend­ingu á gasi til Evrópu sem hefur leitt til hærra orku­verðs en stjórn­völd hafa einnig áhyggjur af orku­skorti vegna þessa.

Fram­leiðsla Shell á jarð­gasi dróst saman um fjögur pró­sent á fjórð­ungnum og er sam­drátt­ur­inn að mestu til­kom­inn vegna þess að fyr­ir­tækið hætti fram­leiðslu í Rúss­landi. Á hinn bóg­inn jókst heild­ar­fram­leiðsla Shell á olíu og gasi um fimm pró­sent frá fyrri árs­fjórð­ungi. Þá þre­fald­að­ist fram­legð í olíu­vinnslu félags­ins á fjórð­ungnum, að því er fram kemur á vef Wall Street Journal, og nemur nú um 28 dölum á hverja olíu­tunnu eða rúmum 3.800 krónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eldsneyti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár