Zelenskí ávarpaði alþingismenn og þjóðina alla á íslensku

„Að lifa í raun­veru­legu frjáls­ræði, það er menn­ing,“ sagði Volodomír Zelenskí, for­seti Úkraínu, í ávarpi sínu til alþing­is­manna og íslensku þjóð­ar­innar á Alþingi í dag. Zelenskí brýndi fyrir nauð­syn þess að slíta á öll fjár­mála­tengsl við Rússland.

Volodomír Zelenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði alþingismenn og Íslendinga á Alþingi í dag.
Volodomír Zelenskí, for­seti Úkraínu, ávarp­aði alþing­is­menn og Íslend­inga á Alþingi í dag. Mynd: Bára Huld Beck

„Góðan dag, þetta er Volodomír Zelenskí í Kænu­garði,“ sagði Zelenskí á íslensku í upp­hafi ávarps sem hann flutti á Alþingi í dag. Stundin var sögu­leg en þetta er í fyrsta skipti sem erlendur þjóð­höfð­ingi ávarpar Alþingi Íslend­inga.

„Nú er Úkraína þol­andi árása frá Rússum. Þetta er stríð sem við verðum að berj­ast gegn, þeir vilja ná landi okkar. Úkraína er sögð ekki hafa neinn rétt til sjálf­stæðis, þeir geta ekki hugsað sér umræðu um okkar menn­ingu, en við erum með meira 1000 ára sögu,“ sagði Zelenskí sem tal­aði mikið um tengsl Úkraínu og Íslands, sem ná langt aftur.

„Ég veit hvernig þið búið og hugsið á Íslandi. Það er slá­andi hvernig þið hafið tekið á málum og hvernig allt er gert til að fólk geti lifað ánægju­legu lífi í lýð­ræði. Að lifa í raun­veru­legu frjáls­ræði, það er menn­ing,“ sagði Zelenskí.

„Engin viðskipti við einræðið“

Hann sagði Rússa ekki aðeins ætla sér að taka landið af úkra­ínsku þjóð­inni heldur ætli þeir sér að taka allt sem henni til­heyrir.

Zelenskí kvaðst þó bjart­sýnn að innan tíðar muni end­ur­upp­bygg­ing í Úkraínu hefj­ast. „Við bjóðum vinum okkur að taka þátt í bar­átt­unni um end­ur­upp­bygg­ingu þegar þar að kemur.Ég er sann­færður um að fljót­lega komi að því að við hefj­umst handa við upp­byggin­una. En áður en að því kemur verðum við að vinna þetta stríð. “

Zelenskí þakk­aði Íslend­ingum fyrir stuðn­ing­inn hingað til og hvatti lands­menn til áfram­hald­andi stuðn­ing. Þá brýndi hann fyrir nauð­syn þess að hætta að kaupa olíu frá Rúss­landi og slíta á öll fjár­mála­tengsl við Rússland. „Engin við­skipti við ein­ræðið,“ sagði Zelenskí. Hann sagði stærð eða smæð ríkis ekki skipta máli, fram­lag hvers og eins skiptir máli.

Að lok­inni ræðu sinni risu Alþing­is­menn úr sætum sínum og klöpp­uðu Zel­en­skí lof í lófa. Þetta er í fyrsta skipti sem erlendur þjóð­höfð­ingi ávarpar Alþingi Íslend­inga.

Guðni ávarpaði Zelenskí á úkraínsku

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, ávarp­aði Zelenskí, þing­menn og þjóð­ina áður en Zelenskí tók til máls.

„Fyrir hönd Íslend­inga sendi ég þér og úkra­ínsku þjóð­inni allri sam­stöðu- og stuðn­ings­kveðjur á þessum erf­iðu tímum. Við dáumst mjög að styrk ykkar og þjóð­ar­anda, and­spænis ofbeldi hins rúss­neska inn­rás­ar­hers,“ sagði Guðni meðal ann­ars.

Þá ávarp­aði hann Zelenskí á úkra­ínsku þar sem hann sagði Íslend­inga standa með öllum þeim sem leita friðar. „Við stöndum með þeim sem þurfa að verj­ast ofbeldi. Við stöndum með þeim sem vilja búa í frjálsu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi,“ sagði Guðni, á móð­ur­máli Zelenskí.

Þá sagði hann landa Zelenskí alla vel­komna hingað til lands þar sem þau muni njóta skjóls svo lengi sem þau þurfa. „Þótt höf og lönd aðskilji okkur eigum við sam­eig­in­leg gildi. Við eigum sömu vonir og eigum þann sama rétt að njóta frelsis, að lifa við frið, að sjá sam­fé­lög okkar blómstra,“ sagði Guðni, sem lauk orðum sínum á að ítreka stuðn­ing Íslands við Úkraínu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra þakk­aði Zelenskí fyrir kröftug og hjart­næm orð. Hún full­viss­aði Zelenskí um að íslensk stjórn­völd séu reiðu­búin til þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur itl þess að hjálpa úkra­ínsku þjóð­inni á þessum erf­iðu tímum.

„Hugsanir okkar eru hjá úkra­ínsku þjóð­inni – skyldur okkar eru hjá ykkur. Á þessu háska­lega augna­bliki, þar sem Úkra­ínu­menn berj­ast fyrir lífi sínu, stöndum við með ykkur og styðjum – í nafni frelsis, mann­gæsku og friðar,“ sagði Katrín.

Katrín ítrek­aði stuðn­ing íslenskra stjórn­valda við þær refsi­að­gerðir sem Evr­ópu­sam­bandið hefur beitt. „Sem her­laus þjóð hefur stuðn­ingur Íslands einkum verið borg­ara­legur. Við höfum veitt mann­úð­ar­að­stoð og fjár­hags­lega aðstoð og höfum skuld­bundið okkur til að gera enn betur.“

Að loknu ávarpi Katrínar bað Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, þing­menn að rísa úr sætum og heiðra þannig úkra­ínsku þjóð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár