Bandarískir sjóðir telja haftafrumvarpið fela í sér ólögmæta eignaupptöku

Banda­rísku sjóð­irnir Eaton Vance Corp. og Autonomy Capital LP á íslandi eiga um 30 pró­sent af aflandskrónu­hengj­unni. Að baki sjóð­unum standa almennir fjár­festar, s.s. eft­ir­launa- eða líf­eyr­is­sjóðir, háskóla- og góð­gerð­ar­sjóðir, auk ein­stak­linga.

Full­trúar banda­rísku sjóð­anna Eaton Vance Corp. og Autonomy Capital LP á íslandi, sem sagðir eru eiga um 30 pró­sent af aflandskrónu­hengju upp á ríf­lega 300 millj­arða, telja boðað frum­varp um losun fjár­magns­hafta ganga gegn stjórn­ar­skrár­vörðum eigna­rétti sjóð­anna með „bóta­skyldum“ hætti.

Þetta kemur fram í umsögn sjóð­anna við frum­varpið, sem birt hefur verið á vef Alþingis. Pétur Örn Sverr­is­son hrl. og Magnús Árni Skúlason hag­fræð­ingur eru höf­undar umsagn­ar­innar, fyrir hönd sjóð­anna.

Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, segir að umsögnin hafi við verið við­búin, en hún barst nefnd­inni í dag. Stjórn­völd leggja áherslu á að klára með­ferð frum­varps­ins svo það geti orðið að lögum eins fljótt og auðið er. Loka­hnykkur í áætlun stjórn­valda um afnám hafta byggir á þeim.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er flutn­ings­maður frum­varps­ins, en Davíð Þór Björg­vins­son laga­pró­fessor, segir í umsögn sinni, að það stand­ist stjórn­ar­skrá og bann við mis­munun.

Fjórþætt rök eru færð fyrir því í umsögn sjóð­anna, að frum­varpið gangi of langt, en sér­stak­lega er áhersla lögð á það, að engar neyð­ar­að­stæður séu uppi í hag­kerf­inu þessi miss­erin, sem rétt­læti sér­staka eigna­upp­töku af sjóð­unum. Staða efna­hags­mála sé góð, óskuld­settur gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans nemi um 400 millj­örðum króna, eða sem nemur um 20 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Kvik krónu­eign sé minni en sem þessu nemur og því ógni hröð útganga ekki hag­kerf­inu.

Orðrétt segir í umsögn sjóð­anna, þar sem þessi fjór­þættu rök eru upp­talin:

„Í fyrsta lagi er bent á að sú eign­ar­skerð­ing sem í frum­varp­inu fellst getur á engan hátt talist almenn í þeim skiln­ingi að hún nái til allra sem eins er ástatt um og flokk­ist þannig til þeirra skerð­inga sem leiði ekki til bóta­skyldu. Með frum­varp­inu er í fyrsta sinn sett fram skil­grein­ing á hug­tak­inu aflandskrónur. Í almennum athuga­semdum að baki frum­varp­inu segir svo um hug­takið: Um er að rœða eignir í eigu eða vörslu erlendra aðila sem eru lík­legir til þess að leita útgöngu við losun fjár­magns­hafta með neikvœðum áhrifum á gengi íslensku krón­unnar. Af þessu til­efni er bent á að umbjóð­endur okkar hafa nú þegar lýst því yfir við stjórn­völd að þeir vilja halda áfram fjár­fest­ingum sínum á íslandi og hafa sýnt þann vilja í orðum og verkum. Umbjóð­endur okkar fá þannig ekki séð að þeir verði settir í sama flokk og aðrir „aflandskrónu­eig­endur“ sem óska útgöngu við losun fjár­magns­hafta. Með öðrum orðum telja umbjóð­endur okkar að staða þeirra sé sú sama og inn­lendra fjár­festa í þessu sam­hengi.

Í öðru lagi eru umbjóð­endur okkar þeirrar skoð­unar að með frum­varp­inu sé ekki leitt í ljós að sér­stakar aðstæður knýi á um þær aðgerðir sem frum­varpið boðar gagn­vart umbjóð­endum okkar. Jafn­framt er ítrekað að umbjóð­endur okkar hafa lýst því yfir að þeir vilja halda fjár­fest­ingum sínum áfram hér á landi og m.a. óskað eftir und­an­þágu Seðla­bank­ans í þeim efnum og fá þ.a.l. ekki séð að hinar sér­stöku aðstæður eigi við í til­viki þeirra. Telja þeir þessa stað­reynd enn fremur leiða til þess að skil­yrði með­al­hófs­reglu telj­ist ekki upp­fyllt í þeirra til­viki.

Í þriðja lagi er bent á að þrátt fyrir að frum­varpið feli ekki í sér beina yfir­færslu eigna­rétt, svo sem rakið er í athuga­semdum, er það ekki skil­yrði bóta sam­kvæmt eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár­innar að eign sé látin af hendi í orðs­ins fyllstu merk­ingu, heldur getur ákvæðið einnig komið til skoð­unar í þeim til­vikum þegar aðilum er með öllu fyr­ir­munuð venju­leg og eðli­leg umráð eigna sinna, svo sem á við í til­viki umbjóð­enda okkar. Eru þessi sjón­ar­mið sem beitt hefur verið fyrir inn­lendum dóm­stólum í sam­ræmi við dóma­fram­kvæmd Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Í fjórða lagi benda umbjóð­endur okkar á að það er ekki rétt sem fram kemur í athuga­semdum að baki frum­varp­inu, þess efnis að breyt­ingar á vörslu krónu­eigna sé ekki fallnar til þess að rýra verð­gildi þeirra. Telja umbjóð­endur okkar að í því felist brot gegn jafn­ræðis- og eign­ar­rétt­ar­á­kvæðum stjórn­ar­skrár­innar enda felur frum­varpið það í sér að umbjóð­endur okkar munu ekki hafa sama rétt til ávöxt­unar fjár­fest­inga sinna hér á landi og inn­lendir aðilar.“

Gjaldeyrisútboð í næsta mánuði

Verði frum­varpið að lögum er áformað að Seðla­banki Íslands haldi gjald­eyr­is­út­boð í næsta mán­uði þar sem öllum aflandskrónu­eig­endum verður gef­inn kostur á að skipta aflandskrónu­eignum sínum í evr­ur. Frum­varpið miðar í ein­földu máli að því, að stilla aflandskrónu­eig­endum upp við vegg og þvinga þá til þátt­töku í gjald­eyr­is­út­boð­inu, ella verði þeir fastir með fé sitt á nei­kvæðum vöxtum á sér­stökum reikn­ingum.

Þær aflandskrónu­eignir sem ekki verða nýttar í útboði Seðla­bank­ans munu því sæta tak­mörk­unum.

Í tæp átta ár hafa fjár­magns­höftin „tak­markað áhættu­dreif­ingu í eigna­söfnum inn­lendra aðila og heft mögu­leika fyr­ir­tækja til að nýta sam­starfs­verk­efni við erlenda aðila og ávöxt­un­ar­tæki­færi erlend­is“ eins og það er orðað í til­kynn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Efna­hags­legt óhag­ræði sem af þessu hlýst fer vax­andi með tím­an­um.

Þessi liður í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta leggur grunn­inn að næstu skrefum í átt til los­unar gjald­eyr­is­hafta og munu þau snúa „að heim­ilum og fyr­ir­tækjum á Íslandi“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár