Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fordæmalausar óvinsældir nýrrar ríkisstjórnar

Ný rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar byrjar setu sína með vind­inn í fangið. Tvær kann­anir sem birtar voru í lið­inni viku sýna að ánægja með, og stuðn­ingur við, hana er ekki mik­ill. Í könnun Maskínu sögð­ust ein­ungis fjórð­ungur aðspurðra vera ánægður með rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Í könnun MMR, þar sem stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina var kann­aður í fyrsta sinn frá því að hún var mynduð, mæld­ist hann ein­ungis 35 pró­sent.

Það er sama hlut­fall og studdi rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í síð­ustu könnun sem MMR gerði fyrir kosn­ing­arnar í októ­ber síð­ast­liðnum. Rík­is­stjórn sem hafði gengið í gengum for­dæma­laus hneyksl­is­mál, afsögn for­sæt­is­ráð­herra og log­andi inn­an­flokks­deilur innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Rík­is­stjórn sem kol­féll í síð­ustu kosn­ingum og tap­aði níu þing­mönnum.

Raunar hefur engin rík­is­stjórn kom­ist nærri því að mæl­ast með svona lít­inn stuðn­ing í sinni fyrstu mæl­ingu eftir að hafa tekið við síð­ast­liðin 20 ár hið minnsta.

61-83 prósent studdu nýjar ríkisstjórnir

MMR birtir ein­ungis tölur á heima­síðu sinni sem sýna stuðn­ing við rík­is­stjórnir aftur til þess þegar rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur tók við snemma árs 2009. Gallup hefur hins vegar mælt stuðn­ing við rík­is­stjórnir mun lengur. Þótt aðferð­ar­fræði fyr­ir­tækj­anna tveggja sé ekki nákvæm­lega sú sama þá skeikar ekki miklu á nið­ur­stöðum þeirra þegar bæði hafa mælt stuðn­ing á svip­uðum tíma.

Gallup á mæl­ingar á stuðn­ingi ára­tugi aftur í tím­ann. Í gögnum fyr­ir­tæk­is­ins er til að mynda hægt að finna upp­lýs­ingar um að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, þar sem Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra, hafi mælst með stuðn­ing um 74 pró­sent kjós­enda skömmu eftir Alþing­is­kosn­ing­arnar 1995. Fjórum árum síðar, þegar flokk­arnir tveir end­ur­nýj­uðu stjórn­ar­sam­starf sitt á ný undir for­sætis Davíðs, mæld­ist stuðn­ing­ur­inn aftur um 74 pró­sent.

Í þing­kosn­ing­unum 2003 tap­aði rík­is­stjórnin fjórum þing­mönnum og tæp­lega átta pró­sent af sam­eig­in­legu fylgi sínu. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn héldu samt sem áður áfram sam­starfi sínu og stuðn­ingur við þá rík­is­stjórn mæld­ist 61 pró­sent í fyrstu mæl­ingu eftir að hún tók við.

Fjórum árum síðar tók hins vegar nýtt fólk við kefl­inu og ann­ars konar sam­starf varð til. Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir og Geir H. Haarde leiddu turn­anna tvo í íslenskum stjórn­málum, Sam­fylk­ingu og Sjálf­stæð­is­flokk, saman í sterka rík­is­stjórn. Árið var 2007 og góð­ærið stóð sem hæst. Smjör virt­ist drjúpa af hverju strái og íslensk fjár­mála­starf­semi virt­ist vera í slíkum blóma að fram undan væri stans­laus efna­hags­vöxtur. Stuðn­ingur við hana mæld­ist for­dæma­laust mik­ill í júní 2007, mán­uði eftir að hún tók við völdum. Alls sögð­ust 83 pró­sent aðspurðra styðja rík­is­stjórn­ina.

Sterk staða vinstri stjórnarinnar í byrjun

Næsta rík­is­stjórn, sem leidd var af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, tók við völdum við ansi breyttar aðstæður. Banka­kerfi lands­ins hafði hrunið og gjald­mið­ill­inn með. Þúsundir starfa höfðu horfið, lífs­gæði lands­manna höfðu dreg­ist stór­kost­lega saman og raun­veru­leg óvissa var uppi um hvort að Ísland gæti staðið við skuld­bind­ingar sínar eða ekki. Áður óþekkt mót­mæli, hin svo­kallað bús­á­hald­ar­bylt­ing, hafði leitt til þess að Sam­fylk­ingin og Vinstri græn mynd­uðu minni­hluta­stjórn með stuðn­ingi Fram­sókn­ar­flokks sem sat í nokkra mán­uði fram að kosn­ingum. Þegar minni­hluta­stjórnin tók við mæld­ist stuðn­ingur við hana 65 pró­sent. Eftir kosn­ing­arnar í apríl 2009 mæld­ist hann 61 pró­sent.

Icesave-málið setti mark sitt á stjórnartíð vinstri stjórnarinnar, og hafði mjög neikvæð áhrif á stuðning við ríkisstjórnina.
Icesave-málið setti mark sitt á stjórn­ar­tíð vinstri stjórn­ar­innar, og hafði mjög nei­kvæð áhrif á stuðn­ing við rík­is­stjórn­ina.

Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar tók svo við völdum vorið 2013. Í fyrstu stuðn­ings­mæl­ingu Gallup mæld­ist stuðn­ingur við hana 62,4 pró­sent.

Stuðn­ings­kann­anir MMR voru ekki langt frá því sem fram kom í könn­unum Gallup. Þar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu 56,1 pró­sent í fyrstu mæl­ingu og stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs 59,9 pró­sent þegar hann var fyrst mældur í byrjun júní 2013.

Því hafa allar rík­is­stjórnir síð­ustu rúm­lega 20 ára byrjað sinn feril með því að vera með stuðn­ing tæp­lega 60 pró­sent þjóð­ar­innar hið minnsta og allar höfðu þær skýran meiri­hluta­stuðn­ing að baki sér. Þ.e. þar til að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sem tók við völdum fyrr í þessum mán­uði. Hún mælist með ein­ungis 35 pró­sent stuðn­ing í fyrstu mæl­ingu, eða rétt rúm­lega þriðj­ungs þjóð­ar­innar.

Stuðningur við nýju stjórnina ekki langt frá lágpunktum síðustu stjórna

Það er athygl­is­vert að stuðn­ingur við hana er sá sami og mæld­ist við rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í síð­ustu könnun MMR fyrir kosn­ing­arnar í októ­ber 2016. Rík­is­stjórnar sem kol­féll í þeim kosn­ingum.

Hinn litli stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar er í raun ekki mikið meiri en sá stuðn­ingur sem síð­ustu rík­is­stjórnir hafa mælst með þegar þær hafa verið sem óvin­sælastar.

Mótmælin sem áttu sér stað í kjölfar Wintris-málsins eru þau fjölmennustu í Íslandssögunni.
Mótmælin sem áttu sér stað í kjöl­far Wintris-máls­ins eru þau fjöl­menn­ustu í Íslands­sög­unni.

Í könn­unum Gallup á stuðn­ingi við rík­is­stjórn hvers tíma má t.d. sjá að stuðn­ingur við rík­is­stjórn Geirs H. Haarde náði lág­punkti í jan­úar 2009, þegar Bús­á­hald­ar­bylt­ingin stóð sem hæst og hrunið hafði nýlega riðið yfir. Þá mæld­ist stuðn­ingur við hana ein­ungis 26 pró­sent. Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur fór í gegnum marga erf­iða dali, m.a. Icesave þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­urnar. Í kjöl­far seinni atkvæða­greiðsl­unnar, sem fór fram í apríl 2011, mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 36 pró­sent hjá Gallup en 30,8 pró­sent hjá MMR. Lægst fór hann í 28,4 pró­sent í mars 2012 hjá Gallup en hækk­aði lít­il­lega á loka­metrum líf­tíma hennar, þegar hún var í reynd orðin minni­hluta­stjórn sem log­aði í inn­an­meinum, og naut stuðn­ings 34 pró­sent kjós­enda skömmu fyrir kosn­ing­arnar vorið 2013 í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Hjá MMR náð­ist botn­inn í októ­ber 2010 þegar ein­ungis 22,8 pró­sent aðspurðra sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina sem hafði verið kjörin til valda einu og hálfu ári áður. Þá var Icesave-málið í algleym­ingi. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu mæld­ist 32,1 pró­sent hjá MMR í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2013.

Eins og við var að búast mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs minnstur í kringum Wintris-málið. Hjá MMR fór hann niður í 26 pró­sent í byrjun apríl 2016 og lægsti vin­sæld­ar­punktur hennar í könn­unum Gallup var 30,9 pró­sent í maí sama ár. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks end­aði í 35 pró­sentum hjá MMR og 37,3 pró­sent hjá Gallup.

Byrj­un­ar­punktur rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar er því sam­bæri­legur enda­punkti síð­ustu rík­is­stjórnar þegar horft er til stuðn­ings. Rík­is­stjórnar sem kol­féll í kosn­ing­unum í októ­ber 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár