Hafa fengið 210 milljónir til baka frá fyrirtækjum sem nýttu hlutabótaleiðina

Alls hafa 44 fyr­ir­tæki end­ur­greitt and­virði bóta sem starfs­menn þeirra fengu greiddar úr opin­berum sjóðum fyrr á árinu vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls. For­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar seg­ist „nokkuð viss“ um að öll fyr­ir­tækin hafi greitt af sjálfs­dáðum.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, á upplýsingafundi almannavarna fyrr á árinu.
Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna fyrr á árinu. Mynd: Lögreglan

Fjörutíu og fjögur fyr­ir­tæki hafa end­ur­greitt Vinnu­mála­stofnun sam­tals 210 millj­ónir króna, sem starfs­menn þess­ara sömu fyr­ir­tækja fengu greiddar úr opin­berum sjóðum eftir að fyr­ir­tækin skertu starfs­hlut­fall þeirra. Þetta segir Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.[links]

Ekki fæst upp­gefið hjá Vinnu­mála­stofnun að svo stöddu hvaða fyr­ir­tæki það eru sem hafa end­ur­greitt bæt­urnar sem starfs­menn þeirra fengu.

Fjölmörg fyr­ir­tæki gáfu það þó sjálf út opin­ber­lega að bæt­urnar yrðu end­ur­greiddar, eftir að gagn­rýni kom fram í opin­berri umræðu og frá stjórn­mála­mönnum í lok apríl á það að stöndug fyr­ir­tæki með styrkan efna­hag væru að nýta hluta­bóta­leið­ina, þeirra á meðal fyr­ir­tæki sem væru búin eða hefðu í hyggju að greiða hlut­höfum sínum arð á árinu.

Í lok maí birti Rík­is­end­ur­skoðun skýrslu um hluta­bóta­leið­ina og fram­kvæmd hennar og kom þar sömu­leiðis fram sú túlkun að ekki yrði séð af lög­unum um leið­ina né lög­skýr­ing­ar­gögnum að það hafi verið ætl­unin að stöndug fyr­ir­tæki myndu nýta sér leið­ina.

Pólitíkin sem skipti um skoðun

Eftir að snörp gagn­rýni kom fram frá stjórn­völdum gagn­rýndu sumir í atvinnu­líf­inu stjórn­völd til baka og sögðu að þeim hefði snú­ist hugur frá fyrri yfir­lýs­ingum um það hvert mark­mið hluta­bóta­leið­ar­innar ætti að vera.

[adspot]

Fyrri yfir­lýs­ingar hefðu verið vill­andi, sögðu sumir, en þegar hluta­bóta­leiðin var kynnt af hálfu stjórn­valda voru ekki neinar kvaðir um að þau fyr­ir­tæki sem hana nýttu mætti ekki greiða sér sér arð eða kaupa eigin hluta­bréf.

Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festi hf., sem rekur m.a. Krónuna, Elko og N1, var einn þeirra sem virt­ist ósáttur við nýjan tón stjórn­valda. Hann sagði við mbl.is 8. maí að fyr­ir­tækið væri með ákvörðun sinni um að hætta að nýta hluta­bóta­leið­ina og end­ur­greiða rík­inu að bregð­ast við gagn­rýni „frá póli­tík­inni sem hafi skipt um skoðun“.

Festi greindi frá því í hálfs­árs­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins sem kom út á fimmtu­dag að hátt á sjö­unda hund­rað millj­óna króna yrðu greiddar í arð til hlut­hafa félags­ins í sept­em­ber­mán­uði.

„Nokkuð viss“ um að öll hafi endurgreitt án þess að fá kröfu

Bjarni Bene­dikts­son sagði aðspurður í sam­tali við RÚV þann 8. maí að ef í ljós kæmi að fyr­ir­tæki hefðu nýtt sér hluta­bóta­leið­ina án full­nægj­andi skýr­inga væri ekki úti­lokað að farið yrði fram á að fyr­ir­tækin end­ur­greiddu rík­inu.

Unnur Sverr­is­dóttir hjá Vinnu­mála­stofnun segir í svari við spurn­ingu Kjarnans um þetta að hún sé „nokkuð viss“ um að öll fyr­ir­tækin 44 sem hafa end­ur­greitt hluta­bætur hafi gert það án þess að vera krafin sér­stak­lega um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár