Fyrirtækin sem ætla að endurgreiða hlutabætur fá reikning í vikunni

Stöndug fyr­ir­tæki sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina, en hafa óskað eftir því að fá að end­ur­greiða það sem þau fengu úr rík­is­sjóði í gegnum hana, munu fá send skila­boð í vik­unni um hvað þau skulda og hvernig þau eiga að borga.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Lögreglan

Vinnu­mála­stofnun er að taka saman fjár­hæðir sem runnu til fyr­ir­tækja sem hafa óskað eftir því að end­ur­greiða hluta­bætur starfs­fólks síns. Unnið var að afstemn­ingu á föstu­dag og umrædd fyr­ir­tæki munu fá send skila­boð í þess­ari viku þar sem fram kemur hvaða fjár­hæð hvert og og eins auk reikn­ings­núm­ers og kenni­tölu.

Þetta kemur fram í svari Unnar Sverr­is­dóttur, for­stjóra Vinnu­mála­stofn­unar, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fjöl­miðlar hafa varpað ljósi á að í hópi þeirra fyr­ir­tækja sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina hafi verið fyr­ir­tæki sem eru í öfl­ugum rekstri og búa yfir traustum efna­hag. Rík­is­end­ur­skoðun sagði í skýrslu sinni um hluta­bóta­leið­ina, sem birt var á fimmtu­dag, að ekki yrði séð af lög­unum um leið­ina né lög­skýr­ing­ar­gögnum að það hafi verið ætl­unin að stöndug fyr­ir­tæki myndu nýta sér leið­ina.

Eftir umfjöllun fjöl­miðla til­kynntu nokkur fyr­ir­tæki að þau hefðu horfið frá nýt­ingu leið­ar­innar og sum þeirra hafa boðað end­ur­greiðslu á fram­lagi Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs. Fyrst til að gera það var Skelj­ungur, þann 28. apríl, en í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur fram að að minnsta kosti sjö fyr­ir­tæki hafi boðað slíka end­ur­greiðslu.

[adspot]Á meðal fyr­ir­tækja sem tekið hafa þá ákvörðun að annað hvort end­ur­greiða eða hætta nýt­ingu á hluta­bóta­leið­inni eru Skelj­ung­­ur, Hag­­ar, Fest­i, Origo, Brim, Öss­­ur, Reg­inn, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Öss­ur. Á föstu­dag bætt­ist svo Icelandair við þann hóp sem ætlar að hætta að nýta leið­ina.

Haft hefur verið eftir Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að öllum fyr­ir­tækjum sem hafa nýtt sér hluta­starfa­leið­ina verði sent bréf þar sem óskað verður eftir rök­stuðn­ingi fyrir skerð­ingu starfs­hlut­falls. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur auk þess sagt að ef í ljós komi að fyr­ir­tæki hafi nýtt sér úrræðið án „full­nægj­andi skýr­inga“ sé ekki úti­lokað að farið verði fram á að þau end­ur­greiði rík­inu.

Umtals­verðar breyt­ingar verða á hluta­bóta­leið­inni frá og með næstu mán­aða­mótum. Þá verða þau fyr­ir­tæki sem ætla að nýta sér hluta­bóta­leið­ina gert að stað­festa að þau hafi ekki í hyggju að greiða út arð til hlut­hafa, lækka hlutafé með greiðslu til hlut­hafa, greiða óum­samda kaupauka, kaupa eigin hluta­bréf eða greiða eig­endum sínum eða æðstu stjórn­endum mán­að­ar­laun sem nema hærri fjár­hæð en þremur millj­ónum króna á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár