Bandaríkjamenn tveir af hverjum fimm farþegum

Brott­farir erlendra far­þega frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl í júní síð­ast­liðnum voru tæp­lega 234 þús­und tals­ins. Fjölg­unin nam 5,4 pró­sent á milli ára sem er mun minni fjölgun en hefur mælst milli ára í júní síð­ast­liðin ár.

Brott­farir erlendra far­þega frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl í júní síð­ast­liðnum voru tæp­lega 234 þús­und tals­ins sam­kvæmt taln­ingum Ferða­mála­stofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar eða um tólf þús­und fleiri en í júní á síð­asta ári.

Fjölg­unin nam 5,4 pró­sent á milli ára sem er mun minni fjölgun en hefur mælst milli ára í júní síð­ast­liðin ár.

Banda­ríkja­menn voru tveir af hverjum fimm far­þegum. Þeir voru fjöl­menn­astir í júní eða um 40 pró­sent af heild­ar­fjölda og fjölg­aði þeim um 29,1 pró­sent milli ára. Þeim hefur fjölgað úr 21 þús­undi árið 2014 í tæp 93 þús­und í ár, sem er ríf­lega þre­földun.

Veruleg fækkun var frá Þýska­landi, en Þjóð­verjar voru næst­fjöl­menn­astir um flug­völl­inn, og sama má segja um far­þega frá Norð­ur­lönd­unum.

Frá ára­mótum hefur um ein milljón erlendra far­þega farið úr landi um Kefla­vík­ur­flug­völl sem er 5,5 pró­sent fjölgun miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár