Borgun sektað vegna ólöglegra bónusgreiðslna

Borgun hefur gert sátt við Fjár­mála­eft­ir­litið og greitt sekt vegna bón­us­greiðslna sem allt starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins fékk í fyrra­haust vegna þess mikla vaxtar og við­gangs sem Borgun hefur gengið í gegnum.

Fjár­mála­eft­ir­litið og Borgun hf. gerðu með sér sam­komu­lag um sátt vegna brots Borgunar á reglum um kaupauka­kerfi þann 9. júní síð­ast­lið­inn. Samkvæmt sátt­inni við­ur­kennir Borgun að hafa brotið gegn regl­unum og lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki og að greiða 11,5 millj­ónir króna í sekt. Frá þessu er greint í gagn­sæ­istil­kynn­ingu á heima­síðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

[links]Þar kemur einnig fram að máls­at­vik séu þau að stjórn Borgunar ákvað þann 13. sept­em­ber 2016 að greiða starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins ein­greiðslu í launa­upp­bót, eða bónus, umfram föst launa­kjör þeirra. Þeir sem höfðu verið í fullu starfi und­an­farna 12 mán­uði fengu 900 þús­und krónur en þeir sem voru í minna starfs­hlut­falli fengu hlut­fall af þeirri greiðslu. Alls fengu 148 starfs­menn slíka greiðslu og því má ljóst vera að heild­ar­kostn­aður er hið minnsta um 100 millj­ónir króna. Stærsti eig­andi Borgunar er Íslands­banki með 63,47 pró­sent hlut. Íslands­banki er í 100 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir að við ákvörðun sekt­ar­fjár­hæðar hafi verið litið til þess að „mark­miðið með því að tak­marka greiðslur til starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja umfram föst starfs­kjör þeirra er að umbun til starfs­manna sé tengd árangri í starfi og sé í sam­ræmi við und­ir­liggj­andi áhættu. Þannig stuðli fjár­mála­fyr­ir­tæki að ábyrgri áhættu­stýr­ingu og sporni gegn óhóf­legri áhættu­töku. Þá tók sekt­ar­fjár­hæðin mið af flokkun lög­gjafans á alvar­leika brots­ins og því að um ein­skipt­is­greiðslu var að ræða sem tók til allra starfs­manna.“

[adspot]Í frétta­til­kynn­ingu sem Borgun sendi frá sér í sept­em­ber í fyrra, þar sem greint var frá hinum ólög­mætu bón­us­greiðslum, sagði að Borgun vildi með þeim sjá til þess að „starfs­menn njóti þess vaxtar og við­gangs sem orðið hefur á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins síð­ustu miss­eri, sem er ekki síst mik­illi og góðri vinnu starfs­fólks að þakka.“

Ríkisbankinn í málarekstri gegn Borgun

Rekstur Borgunar gekk sann­ar­lega vel á síð­asta ári. Hagnaður félags­ins var 7,8 millj­arðar króna sam­kvæmt rekstr­ar­reikn­ingi og hlut­hafar fengu 4,7 millj­arða króna greidda í arð vegna frammi­stöðu félags­ins á árinu 2016. Þar mun­aði mestu um sölu á hlut Borgunar í Visa Europe í júní 2016 á 6,2, millj­arða króna.

Rekstur, og ekki síður eign­ar­hald á Borgun, hefur verið mikið í umræð­unni á und­an­förnum árum. Sér­stak­lega vegna þess að Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, seldi 31,23 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Borgun á 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber 2014, á bak­við luktar dyr til hóps einka­fjár­festa sem hafa ávaxtað pund sitt ævin­týra­lega á ein­ungis tveimur og hálfu ári. Lands­bank­inn hefur, sam­kvæmt eigin mati, orðið af rúm­lega sex millj­örðum króna vegna söl­unnar.

Rík­is­end­ur­skoðun birti í fyrra­haust svarta skýrslu um eigna­sölu Lands­bank­ans á und­an­förnum árum. Salan á hlut bank­ans í Borgun leikur þar aðal­hlut­verk. Í kjöl­far birt­ingu skýrsl­unnar missti Steinþór Pálsson, sem hafði verið banka­stjóri Lands­bank­ans frá 2010, starf sitt.

Banka­ráð Lands­­bank­ans til­kynnti í ágúst 2016 að ákveðið hefði verið að höfða mál fyrir dóm­stólum vegna söl­unnar á 31,2 pró­­sent eign­­ar­hlut bank­ans í Borgun hf. á árinu 2014. Þann 30. des­em­ber 2016 sendi Lands­bank­inn frá sér til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að bank­inn hefði stefnt Borgun hf., for­stjóra Borg­unar hf., BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf. vegna söl­unnar. Í til­kynn­ing­unni segir: „Málið er höfðað til við­ur­kenn­ingar á skaða­bóta­skyldu stefndu. Það er mat bank­ans að hann hafi orðið af sölu­hagn­aði við sölu á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun hf. árið 2014. Bank­inn fékk ekki upp­lýs­ingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og rétt­indi sem fylgdu hlutn­um, þ.á.m. mögu­lega hlut­deild í sölu­hagn­aði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu sölu­réttar í val­rétt­ar­samn­ingi Visa Inc. og Visa Europe Ltd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár