Traust hrapaði í kjölfar Kastljóssþáttar - Átta af tíu fannst þátturinn faglegur

Yfir­gnæf­andi hluti lands­manna þotti umfjöllun Kastljós fag­leg. Traust til helstu ráða­manna, rík­is­stjórnar og Alþingis hefur hrunið í kjöl­far hennar. Píratar myndu fá 39 pró­sent atkvæða yrði kosið í dag.

Alls eru 78 pró­sent lands­manna hlynnt því að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, segi af sér emb­ætti. 60 pró­sent vilja að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segi einnig af sér emb­ætti og 56 pró­sent vill að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra geri slíkt hið sama. Ljóst er að ástæðan fyrir þess­ari kröfu, og töp­uðu trausti gagn­vart ráða­mönnum og helstu stjórn­mála­stofn­unum lands­ins, liggur í þeim upp­lýs­ingum sem fram komu í Kast­ljós­þætti á sunnu­dag. Nálægt átta af hverjum tíu lands­mönnum fannst sú umfjöllun fag­leg. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Félags­vís­inda­stofnun lagði fyrir úrtak úr net­panel stofn­un­ar­innar dag­anna 4. og 5. apríl. Svar­endur voru 617.

Þar var einnig spurt um hvaða flokk úrtakið myndi kjósa. Samkvæmt nið­ur­stöð­unni myndu Píratar fá 39 pró­sent atkvæða. Stjórn­ar­flokk­arnir myndu tapa miklu fylgi þar sem tíu pró­sent segja að þeir myndu kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn en 19 pró­sent Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Fylgi Vinstri grænna hækkar umtals­vert á milli kann­ana og segj­ast 15 pró­sent aðspurða að þeir myndu kjósa flokk­inn. Sam­fylk­ingin mælist hins vegar með ein­ungis átta pró­sent fylgi, sem er langt undir kjör­fylgi flokks­ins sem þó var arfa­slakt í sögu­legu sam­hengi. Níu pró­sent nefndu annan flokk eða fram­boð.

Félags­vís­inda­stofnun spurði einnig hvort fólk styddi rík­is­stjórn­ina eða ekki. nið­ur­staðan var afger­andi á meðal þeirra sem tóku afstöðu: 72 pró­sent sögð­ust ekki gera það en 28 pró­sent styðja hana.

Í könn­un­inni var einnig spurt um hvort fólk hefði horft á umfjöllun Kastljós um aflands­fé­lög tengd ráða­mönnum síð­ast­lið­inn sunnu­dag. 64 pró­sent aðspurðra sögðu að þeir hefðu séð þátt­inn allan og 19 pró­sent að þeir hefðu séð hann að hluta. Það þýðir að ein­ungis 16 pró­sent sá ekki þátt­inn. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti aðspurðra, 78 pró­sent, sögðu að þeim hafi þótt umfjöll­unin mjög eða frekar fag­leg. Einungis 14 pró­sent sögðu að þeim hafi þótt hún ófag­leg.

Félags­vís­inda­stofnun spurði auk þess hvort umfjöll­unin hefði dregið úr trausti á nokkrum ráð­herrum eða stofn­unum. 78 pró­sent sögðu að hún hefði dregið úr trausti sínu gagn­vart Sigmundi Davíð, 67 pró­sent að hún hefði dregið úr trausti sínu á Bjarna Bene­dikts­syni, 62 pró­sent treystu Ólöfu Nordal síður eftir þátt­inn og 70 pró­sent misstu traust gagn­vart rík­is­stjórn­inni. Traust aðspurðra til Alþingis dróst saman hjá 63 pró­sent lands­manna og traust til stjórn­mála almennt dróst saman um 67 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár