Lífslíkur á Íslandi með þeim mestu í Evrópu og ungbarnadauði sá minnsti í álfunni

Lífslíkur Íslend­inga eru með þeim mestu í Evrópu og ung­barna­dauði er minnstur hér­lendis af öllum löndum álf­unnar. Á árinu 2014 var með­al­ævi­lengd karla 80,6 ár og með­al­ævi­lengd kvenna 83,6 ár. Frá árinu 1986 hafa karlar bætt við sig rúmum sex árum í með­al­ævi­lengd en konur rúm­lega fjórum árum. Á tíu ára tíma­bili, frá 2004 til 2013, var með­alung­barna­dauði á Íslandi 1,9 barn af hverjum eitt þús­und lif­andi fæddum. Hvergi í Evrópu er ung­barna­dauð jafn sjald­gæfur og hér. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stof­unnar. 

Karlar elstir á Íslandi og í Sviss


Þegar horft er á þróun með­al­ævi­lengdar yfir tíu ára tíma­bil, frá árinu 2004 til árs­ins 2013, þá lifa karlar á Íslandi og í Sviss lengst allra í Evrópu, eða 79,1 ár. Stysta með­al­ævi­skeið karla í álf­unni er Eystra­salts­lönd­unum. Karlar í Eist­landi verða að með­al­tali 68,8 ára, í Lett­landi 66,4 ára og í Litháen 66,1 árs.

Konur verða hins vegar elstar í Frakk­landi og á Spáni, eða 84,1 ára. Íslenskar konur eru þó skammt undan, en þær urðu að með­al­tali 82,7 ára á tíma­bil­inu. Konur lifa skemmst í Serbíu. eða í 76,1 ár að með­al­tali.

Alls lét­ust 2.049 ein­stak­lingar sem búsettir voru á Íslandi í fyrra. Dán­ar­tíðnin var 6,3 látnir á hverja þús­und íbúa og ung­barna­dauði vara 2,1 barn af hverjum eitt þús­und lif­andi fæddum árið 2014, eða aðeins yfir með­al­tali tíu áranna á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár