Myndirnar gerbreyta hugmyndum okkar um Plútó

Fyrstu mynd­irnar sem borist hafa til Jarðar af yfir­borði Plútó og fylgitungls­ins Karon ger­breyta hug­myndum okkar um Plútó, segir Sævar Helgi Bragason, hjá Stjörnu­skoð­un­ar­fé­lagi Sel­tjarn­ar­ness. „Þetta er með áhuga­verð­ustu hnöttum sem menn hafa heim­sótt hingað til.“

Myndir sem New Horizons-könn­un­ar­farið tók er það flaug fram hjá Plútó á þriðju­dag hafa verið að ber­ast til Jarðar síðan í gær. Nýjustu mynd­irnar eru aðeins for­smekk­ur­inn af því sem koma skal. Mynd­irnar af Plútó eru aðeins teknar í birt­unni frá Karon sem end­ur­ka­staði dimmu ljósi Sól­ar­innar. Styrkur ljóss­ins er þús­und sinnum minni en á Jörðinni.

„Við fyrstu sýn er þetta miklu áhuga­verð­ari staður en við gátum látið okkur dreyma um. Bæði Plútó og tunglið Karon,“ segir Sævar Helgi í sam­tali við Kjarnann en það hefur komið vís­inda­mönnum á óvart hversu jarð­fræði­lega ólíkir þessir tveir hnettir reyn­ast vera. „Það kemur líka mjög mikið á óvart hvað yfir­borðið á Karon lítur út fyrir að vera ung­legt. Þar er greini­lega eitt­hvað ferli í gangi; Einhver jarð­fræði­leg virkni sem kemur tölu­vert á óvart.“

[caption id="attachment_34263" align="alignnone" width="1024"] Karon þykir sér­stak­lega merki­legur hnöttur. Þar er yfir­borðið mjög ung­legt. Efst til hægri á þess­ari mynd má líka greina hátt í 9 kíló­metra djúpt gljúfur sem hefur vakið spurn­ingar vís­inda­manna. (Mynd: NASA)[/caption]

Nýjar uppgvötanir sem þarf að skýra


Ungleg fjöll sting­ast upp af yfir­borði Plútó sem benda til þess að enn sé ein­hvers­konar jarð­virkni á hnett­inum. Skortur á gígum bendir einnig til þess að yfir­borð plánet­unnar sé 100 milljón ára gam­alt. Það er að segja nokkuð ungt, í sam­an­burði við sól­kerfið okkar sem talið er vera 4,56 millj­arða ára gam­alt.

„Á Plútó sjáum við nán­ast enga gíga, sem kemur mikið á óvart. Við sjáum hins vegar breiðar sléttur með ein­hvers­konar efnum sem líta út fyrir að hafa brunnið. Og svo þessi fjög­urra kíló­metra háu ísfjöll. Hvaða ferli er það sem skap­aði þessi fjöll á ísi­lögðu yfir­borði?“ spyr Sævar Helgi og bendir á að þetta sé alger­lega ný uppgvötun sem á eftir að skýra með sann­fær­andi hætti.

[caption id="attachment_34262" align="alignnone" width="1024"] Ung ísfjöll sting­ast fjóra kíló­metra upp úr yfir­borði Plútó. Það þarf nýjan skiln­ing á virkni him­in­tungla til þess að skýra þessi ung­legu fjöll. (Mynd: NASA)[/caption]

„Hvaða ferli eru það sem knýja áfram þessa jarð­fræði­legu virkni sem við sjáum á Plútó eða Karon. Við bara höfum ekki hug­mynd eins og staðan er núna. Menn þurfa að koma fram með nýjar hug­myndir um það hvernig hægt er að halda svona litlum hnöttum svona óskap­lega langt í burtu virkum.“

Á ferð með geimförum


Þegar Kjarninn náði tali af Sævari Helga var hann staddur í Ódáða­hrauni að virða fyrir sér Öskju ásamt tveimur banda­rískum geim­förum og afkom­endum Neil Arm­strong, fyrsta mann­inum sem steig á Tunglið. Geim­far­arnir eru Walter Cunningham sem var í fyrstu mönn­uðu Apollo-geim­ferð­inni, Apollo 7, og Russel Schweickart sem fór í geim­göngu og próf­aði tungl­bún­ing­inn einna fyrstur í Apollo 9.

Þeir Cunningham og Schweickart æfðu í Ódáða­hrauni á sjö­unda ára­tugnum á vegum NASA, en geim­ferða­stofn­unin sendi geim­fara sína til Íslands til að koma þeim í svip­aðar aðstæður og taldar voru vera á Tunglinu.

Allar mynd­irnar sem NASA birtir úr New Horizons-leið­angrinum verða aðgengi­legar á vef geim­ferða­stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár