Heimsins stærsta vindorkuver á hafi úti

Spaðar 165 vind­mylla undan ströndum Yorks­hire í Norð­ur­sjó eru farnir að snú­ast. Vind­orku­verið Hornsea 2, sem er 1,3 GW að afli, getur fram­leitt raf­magn sem dugar 1,3 millj­ónum heim­ila.

Vindorkuverið Hornsea 2 er í um 90 kílómetra fjarlægð frá ströndum Yorkshire.
Vind­orku­verið Hornsea 2 er í um 90 kíló­metra fjar­lægð frá ströndum Yorks­hire.

Það er það stærsta í heimi, risa­stóra vind­orku­verið Hornsea Two sem nú er komið í fulla vinnslu um 90 kíló­metrum undan ströndum Yorks­hire í Norð­ur­sjó. Vind­myll­urnar 165, sem hver um sig er með spaða sem fara um snún­ings­flöt sem er yfir 160 metrar í þver­mál, eru sam­tals 1,3 GW (gíga­vött) að afli – sem myndi duga til fram­leiðslu á raf­magni fyrir um 1,3 milljón heim­ila árlega, álíkra margra og finna má í borg­inni Manchester. Til sam­an­burðar þá er afl­geta Kára­hnjúka­virkj­unar, langstærstu virkj­unar á Íslandi, 0,7 GW.

Vind­myll­urnar dreifast um 462 fer­kíló­metra svæði, sem sam­svarar um helm­ingi af svæð­inu sem Liverpool stendur á, en Hornsea 2 er annar áfangi af þremur sem á að reisa á þessum slóðum í haf­inu.

[adspot]

Í frétt BBC um málið segir að fyrir ára­tug hafi end­ur­nýj­an­leg orka, sem vind­orka telst til, um 11 pró­sent allrar raf­orku sem notuð var í Bret­landi. Í fyrra var hlut­fallið komið upp í 40 pró­sent. Vind­orku­ver á hafi úti spila þar stærstan þátt.

Danska orku­fyr­ir­tækið Ørsted byggir Hornsea-virkj­un­ina og er það orðið eitt það fyr­ir­ferð­ar­mesta í þessum geira á heims­vísu. Þróun og bygg­ing ann­ars áfanga hefur tekið fimm ár.

Með Hornsea 2 eru Bretar orðnir leið­andi í nýt­ingu á vind­orku á hafi, hefur BBC eftir verk­efn­is­stjór­anum Patrick Harnett. Hornsea 2 þurfti ekki að sækja tit­il­inn að stærsta vind­orku­veri á hafi úti langt því fyrsti áfangi virkj­un­ar­innar, Hornsea 1, hafði þann titil áður.

Vind­myll­urnar standa um 200 metra upp úr hafflet­inum. Þær eru því risa­vaxnar. Spað­arnir eru 80 metra langir og það tekur þá sex sek­úndur að snú­ast í heilan hring. Á þeim tíma fram­leiðir hver vind­mylla raf­magn sem myndi svala orku­þörf venju­legs heim­ilis í sól­ar­hring, segir Harnett við BBC.

Bresk stjórn­völd stefna að kolefn­is­hlut­leysi í raf­orku­fram­leiðslu fyrir árið 2035 og á virkjun vinds­ins á hafi að spila þar lyk­il­hlut­verk.

Orku­krísan í Evrópu, sem er að stærstum hluta til­komin vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu, hefur afhjúpað hversu háð ríki álf­unnar hafa verið rúss­nesku gasi. En það er engin skyndi­lausn í sjón­máli. Það tekur að minnsta kosti fimm ár að skipu­leggja og byggja vind­orku­ver á hafi úti.

Frekari upp­bygg­ing þeirra er því ekki lausnin sem mun lækka raf­magns­reikn­ing­inn alveg á næst­unni. Vind­orku­ver á landi eru mjög umdeild, ekki síst vegna sjón­meng­unar, en sér­fræð­ingar í vind­orku­geir­anum sem BBC ræðir við vilja þó meina að taka þurfi annan snún­ing á upp­bygg­ingu þeirra á Bret­landseyjum.

„Vind­orku­ver á landi hafa hingað til verið ódýrasta leiðin til orku­öfl­unar,“ hefur BBC eftir Melanie Onn, sem starfar hjá Renewable UK, sam­tökum vind­orku­fyr­ir­tækja í Bret­landi. Hún vill meina að ekki taki meira en ár að þróa og reisa slíkar virkj­anir.

„Við erum ekki að byggja þau núna því sam­kvæmt skipu­lags­ferl­inu þá getur ein mann­eskja staðið í vegi fyrir vind­orku­veri á landi og gert útaf við hug­mynd­ina. Við þurfum virki­lega á því að halda að rík­is­stjórnin grípi til aðgerða og setji orku­mál lands­ins í for­gang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár