Þjóðaratkvæði um ESB og umbætur í kvótakerfi of stór biti

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir að við­ræður milli Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins strandað á Evr­ópu­sam­bands­málum og sjáv­ar­út­vegs­málum.

„Á end­anum reynd­ist hug­myndin um að þjóðin fengi að greiða atkvæði um áfram­hald við­ræðna við ESB ann­ars vegar, og umbætur í kvóta­kerf­inu hins vegar, of stór biti fyrir menn að kyngja.“

Það hafi hins vegar verið vel þess virði að taka þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum til að reyna að ná saman um frjáls­lyndar áherslur og umbætur í íslensku sam­fé­lagi. „Björt fram­tíð hefur frá upp­hafi verið skýr um það að við erum til­búin að axla ábyrgð til góðra verka en ekki lélegra. Við höfum staðið fast á þeim prinsipum og munu gera það áfram. Á end­anum er það almanna­hagur sem skiptir máli. Ekkert annað. Ást og friður,“ skrifar Óttarr á Facebook-síðu sína.

Pawel Bartoszek þing­maður segir á Facebook að flokk­ur­inn hafi farið bjart­sýnn inn í við­ræð­urnar og með áherslu á ákveðin mál­efni. Bilið hafi hins vegar reynst óbrú­an­legt að sinni, sér­stak­lega í sjáv­ar­út­vegs­málum. Jón Steindór Valdi­mars­son þing­maður segir að sér­stak­lega hafi ekki náðst árangur í sjáv­ar­út­vegs­málum og Evr­ópu­málum.

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, tjáir sig um málið á Vísi. Hann segir þetta auð­vitað von­brigði, því menn færu ekki í svona við­ræður nema með ein­lægum ásetn­ingi um að það gangi. „Það er nátt­úru­lega rétt að það er lít­ill meiri­hluti og í stórum þing­flokki eru kannski ekki allir sam­stíga,“ segir Benedikt. Hann segir erfitt að ná sam­komu­lagi í stórum málum þegar nýir flokkar sem vilji fara í alvöru kerf­is­breyt­ingar komi inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár