107 í sóttkví – sjö í einangrun

Á næstu klukku­stundum mun það skýr­ast hvort að tek­ist hafi að koma í veg fyrir hóp­sýk­ingu í kringum tvo ein­stak­linga sem greindust með veiruna og voru utan sótt­kvíar. Nokkrir dagar geta liðið frá smiti og þar til veiran finnst í fólki við sýna­töku.

Fjöldi fólks sem var á tónleikum í Hörpu á föstudagskvöld verður skimaður í dag.
Fjöldi fólks sem var á tón­leikum í Hörpu á föstu­dags­kvöld verður ski­maður í dag. Mynd: EPA

Enn sem komið er hefur veiran ekki fund­ist hjá neinum sem átt hefur sam­neyti við þá tvo sem um helg­ina greindust með veiruna utan sótt­kvíar. Meðal þeirra sem skimaðir voru í gær var hópur starfs­manna Land­spít­al­ans þar sem annar hinna sýktu er starfs­maður á sjúkra­hús­inu. Um fimm­tíu starfs­menn og sjúk­lingar eru í sótt­kví. Þá eru einnig tíu manns sem sátu í námunda við starfs­mann­inn á tón­leikum í Hörpu á föstu­dags­kvöld í sótt­kví. Í dag verður ski­mað fyrir veirunni meðal tón­leika­gesta. Þá verða einnig fleiri starfs­menn spít­al­ans skimaðir.

Yfir 1.400 eru vænt­an­legir í skimun hjá heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag. Ragn­heiður Ósk Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar á Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, greindi frá þessu í hádeg­is­fréttum RÚV. „Það hafa rúm­lega 700 manns farið í gegn hjá okkur í morgun og við eigum þá eftir annað eins eftir hádegi. Það er opið til klukkan 16 hjá okkur.“

Ragn­heiður segir að Land­spít­al­inn sjái um að skima sitt starfs­fólk en heilsu­gæslan skimi aðra.

Þrír greindust með veiruna inn­an­lands á föstu­dag og laug­ar­dag. Enginn greind­ist inn­an­lands í gær. Tekin voru 622 sýni, þar af 251 svo­kallað ein­kenna­sýni. 107 eru í sótt­kví og sjö í ein­angrun, þ.e. með virkt smit.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði í útvarps­við­tali í morgun að það muni skýr­ast í dag eða á morgun hvort að tek­ist hafi að koma í veg fyrir frek­ari útbreiðslu í kringum ein­stak­ling­ana tvo sem greindust um helg­ina. Þeir eru sýktir af hinu breska afbrigði veirunnar sem er meira smit­andi en eldri afbrigði hennar sem hér hafa komið upp.

Á upp­lýs­inga­fundi sem hald­inn var vegna smit­anna tveggja í gær sagði Þórólfur að ef í ljós komi að veiran hafi dreifst út fyrir þennan hóp, þ.e. ein­stak­ling­ana tvo, þá sé „sann­ar­lega“ til­efni til að end­ur­skoða aflétt­ingar sem gerðar hafa verið á sam­komu­tak­mörk­unum.

Málið er þannig vaxið að þann 26. febr­úar kom far­þegi til lands­ins og fram­vís­aði nei­kvæðu COVID-prófi og var auk þess nei­kvæður í fyrri skimun á landa­mær­unum. Á fimmta degi sótt­kvíar greind­ist hann hins vegar jákvæður og sýktur af hinu breska afbrigði sem hefur verið að stinga sér niður og valda usla í flestum nágranna­löndum okkar.

Smituðust í stigaganginum

Á meðan hann var í sótt­kví á milli skim­ana virð­ist hann, að því er Þórólfur sagði á fund­inum í gær, hafa smitað tvo nágranna sína, þ.e. fólk sem býr í sama stiga­gangi í fjöl­býl­is­húsi í Reykja­vík. Ekki er talið að fólkið hafi átt í nánum sam­skiptum þannig að grunur bein­ist að því að nágrann­arnir hafi smit­ast í stiga­gang­inum og þá af hand­riði eða öðrum sam­eig­in­legum snertifleti. Smitrakn­ing­arteymið vinnur áfram að því að reyna að kom­ast að því hvar fólkið smit­að­ist.

Starfs­maður Land­spít­al­ans sem sýkt­ist fann ein­kenni snemma í síð­ustu viku og fór í sýna­töku og fékk nei­kvæða nið­ur­stöðu. Hann vinnur á göngu­deild smit­sjúk­dóma, ofnæmis- og lungna­sjúk­dóma og var þar við störf frá þriðju­degi til fimmtu­dags.Í frétt RÚV um helg­ina kom fram að ein­kenni starfs­manns­ins hafi haldið áfram að versna. Hann fór svo á tón­leika í Hörpu, eins og fyrr segir, á föstu­dags­kvöldið. Á laug­ar­dags­morgn­inum fór hann aftur í sýna­töku og reynd­ist þá jákvæður.

Yfir níutíu greinst með breska afbrigðið

Fólk sem sýk­ist af kór­ónu­veirunni getur verið ein­kenna­laust í nokkra daga áður en veik­indi, ef þau á annað borð koma fram, fara að gera vart við sig. Frá því að fólk smit­ast getur það tekið nokkra daga að koma fram í sýna­töku.

Á fimmtu­dag í síð­ustu viku höfðu níu­tíu ein­stak­lingar greinst með breska afbrigði veirunnar hér á landi, þar af tutt­ugu inn­an­lands. Allt var það fólk sem hafði tengst þeim sem greinst höfðu á landa­mær­unum nánum böndum. Í síð­ustu viku hafði auk þess einn greinst með suð­ur­a­fríska afbrigði á landa­mær­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár