Óttinn við Rússa

Svíar ætla að auka fram­lög sín til varn­ar­mála um marga millj­arða króna á næstu árum. Ástæðan er síaukið hern­að­ar­brölt Rússa sem Svíum stendur stuggur af. Jafn­framt stefna Svíar að auknu varn­ar­sam­starfi við aðrar þjóðir, ekki síst Dani og Norðmenn.

Sænskur hermaður við æfingar í Boden.
Sænskur her­maður við æfingar í Boden. Mynd: EPA

Árið 2017, eftir margra ára nið­ur­skurð í fjár­veit­ingum til varn­ar­mála, ákvað sænska rík­is­stjórnin að snúa við blað­inu. Þá hafði skyndi­lega runnið upp fyrir sænskum stjórn­mála­mönnum að stór­felldur nið­ur­skurður um langt ára­bil hafði gert sænska her­inn að „hálf­gerðum sýnd­ar­her“ eins og einn sænskur stjórn­mála­maður komst að orði. Reyndar höfðu margir sér­fræð­ingar á sviði hern­aðar árum saman reynt að vekja athygli stjórn­mála­manna á ástand­inu en ætíð talað fyrir daufum eyrum. En nú var stjórn­mála­mönn­unum ljóst að grípa yrði til aðgerða.

Óttinn við Rússa

Ástæða þess að Svíum varð ljóst að nauð­syn­legt væri að efla varnir lands­ins og veita auknu fjár­magni til her­mála voru stór­aukin umsvif Rússa. Ekki þarf að fjöl­yrða um hernað þeirra í Úkraínu en íbúar Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­ríkj­anna, ásamt Bretum höfðu um langt skeið fylgst með síauknum umsvifum rúss­neska flug­hers­ins.

Her­flug­vélar Rússa sáust nú æ oftar á ferð­inni yfir Eystra­salti og á fleiri svæðum þar sem flug­um­ferð er mikil. Rúss­arnir eru oftar en ekki með slökkt á rat­sjár­vara vél­anna , en það getur skapað mikla hættu. Kvart­anir vegna þessa láta Rússar ætíð sem vind um eyru þjóta.

Þriggja ára áætlun og herskylda

Þegar sænski varn­ar­mála­ráð­herr­ann, Peter Hultqvist, til­kynnti um aukin fram­lög til varn­ar­mála greindi hann frá því að í fyrstu væri um eins­konar „þriggja ára áætlun“ að ræða. Fjár­veit­ingin skyldi á þessum þremur árum nema sam­tals 8.1 millj­arði sænskra króna (105 millj­arðar íslenskir) en „það er bara byrj­unin,“ sagði ráð­herr­ann. Hann sagði jafn­framt að sænska stjórnin hefði ákveðið að end­ur­vekja her­skyld­una, en hún hafði verið „sett í hlé“ árið 2010. Ekki þurfti laga­breyt­ingu til, því her­skyldan hafði ein­ungis verið felld úr gildi, tíma­bundið, eins og áður sagði.

Ástæða þess að nauð­syn­legt var talið að end­ur­vekja her­skyld­una, sem hafði verið í gildi í 110 ár, var sú að of fáir höfðu valið að ger­ast her­menn og her­inn orð­inn alltof fámennur til að hann gæti sinnt þeim verk­efnum sem honum voru ætluð. Samkvæmt áætl­unum hers­ins var þörf á um það bil 4 þús­und nýjum her­mönnum árlega en að jafn­aði höfðu aðeins 1500 nýliðar árlega gengið til liðs við her­inn.

Rétt er að geta þess að þessi „nýja“ herkvaðn­ing var fyrst og fremst end­ur­vakn­ing heima­varn­ar­liðs­ins, sem er eins­konar stuðn­ingur við her­inn, þegar, og ef, á þarf að halda. 

5. júní árið 2018 fengu 22 þús­und Svíar orð­send­ingu þar sem þeim var gert að mæta á stóra æfingu með hernum morg­un­inn eftir, á þjóð­há­tíð­ar­degi Sví­þjóðar. Ugglaust hafa ein­hverjir klórað sér í koll­inum yfir þess­ari orð­send­ingu, enda ekki dag­legt brauð. Heima­varn­ar­liðið var síð­ast kallað út til æfinga árið 1975, síðan voru liðin 43 ár.

Stórauknar fjárveitingar og ný tæki

Skömmu fyrir síð­ustu ára­mót til­kynnti sænski varn­ar­mála­ráð­herr­ann að frá árinu 2021 verði árleg fram­lög til varn­ar­mála aukin um 5 millj­arða (65 millj­arða íslenska) til árs­ins 2025. „Og við látum þar ekki staðar numið, áætl­anir okkar gera ráð fyrir stór­auknum fjár­veit­ingum fram til árs­ins 2030.“

[links]Sænski her­inn hefur pantað 60 Gripen E orustu­þotur, þessar þotur, sem eru sænskar, eiga að leysa af hólmi eldri þotur frá sama fram­leið­anda. Þær nýju sagðar full­komn­ari í alla staði. Sænski flot­inn hefur sömu­leiðis hafið smíði tveggja kaf­báta sem að sögn verða mjög full­komnir. Þeir bæt­ast við þá fimm sem flot­inn á fyrir. Sænski her­inn hefur einnig pantað nýjan banda­rískan eld­flauga­varna­búnað af gerð­inni Patriot.

Aukin varnarsamvinna við aðrar þjóðir

Þótt Svíar hafi um langt skeið fyrst og fremst treyst á eigin hern­að­ar­mátt, og hlut­leys­is­stefnu, hafa þeir þó á síð­ustu árum í auknum mæli horft til sam­vinnu við aðrar þjóðir. Sænski her­inn hefur tekið þátt í her­æf­ingum, meðal ann­ars með Banda­ríkja­mönnum og skipu­lagt slíkar æfingar á sænskri jörð.

Svíar eru aðilar að Nordefco sem er sam­starfs­vett­vangur Norð­ur­land­anna á sviði varnar- og örygg­is­mála. Auk Sví­þjóðar eiga Ísland, Noregur, Finnland og Danmörk aðild að þessum sam­tökum, sem voru stofnuð árið 2009. Þegar sænski varn­ar­mála­ráð­herr­ann kynnti ákvarð­anir stjórn­ar­innar um aukin fram­lög til her­mála, og áður var á minnst, gat hann þess jafn­framt að Svíar stefndu að enn nán­ari sam­vinnu við Eystra­salts­löndin þrjú og fleiri lönd.

Þótt ráð­herr­ann nefndi ekki NATO fór ekki milli mála hvað hann átti við. Til marks um þessa auknu sam­vinnu má nefna að í nóv­em­ber árið 2018 fór fram í Noregi ein stærsta her­æf­ing sem haldin hefur verið í Norður-Evrópu, Trident Juncture. Um 50 þús­und manns tóku þátt í þess­ari æfingu, þar á meðal bæði Svíar og Finnar.

Skoð­ana­kann­anir sýna að meiri­hluti Svía styður ákvarð­anir stjórn­valda um upp­bygg­ingu hers­ins. Einni mik­il­vægri spurn­ingu varð­andi þessa upp­bygg­ingu hers­ins er þó ósvarað: hvaðan eiga pen­ing­arnir að koma. Þegar varn­ar­mála­ráð­herr­ann var spurður um þetta á frétta­manna­fundi svar­aði hann því til að „við tökum upp banka­skatt, það fleytir okkur langt“. Hvort fjár­munir frá slíkum skatti dugi til að fjár­magna stór­aukin hern­að­ar­um­svif er svo önnur, og ósögð, saga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár