Fólkið sem ætlar að bjarga Samfylkingunni

For­manns­efni Sam­fylk­ing­ar­innar eru öll með sínar leiðir til að bjarga flokknum. Meðal þeirra er úti­lokun á sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, skatt­kerf­is­breyt­ingar, breyt­ing á nafni flokks­ins og aukin völd til flokks­manna.

Guðmundur Ari, Oddný, Helgi og Magnús hafa undanfarið ferðast saman um landið og kynnt sig fyrir flokksmönnum.
Guð­mundur Ari, Oddný, Helgi og Magnús hafa und­an­farið ferð­ast saman um landið og kynnt sig fyrir flokks­mönnum. Mynd: Samfylkingin

Sam­fylk­ingin fær nýjan for­mann eftir viku. Lands­fundur verður hald­inn um næstu helgi en raf­ræn kosn­ing hefst í dag þar sem flokks­menn geta kosið nýja for­ystu. Sam­fylk­ingin hefur mælst með sögu­lega lágt fylgi í skoð­ana­könn­unum, nú síð­ast í könnun 365 þar sem hún var með rúm­lega sex pró­sent. Það dugir til að ná þremur mönnum á þing. Í dag eru þing­menn­irnir níu.

Fjórir eru í fram­boði til for­manns flokks­ins; Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, bæj­ar­full­trúi flokks­ins á Sel­tjarn­ar­nesi, Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður, Magnús Orri Schram vara­þing­maður og Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður og fyrr­ver­andi ráð­herra. Kjarninn kann­aði afstöðu þeirra til stöð­unnar sem upp er komin.

Framboðið orðið að fegurðarsamkeppni

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, 27 ára, er yngstur for­manns­fram­bjóð­enda og sá eini sem hefur aldrei setið á þingi. Hann er því ekki eins þekkt and­lit og keppi­nautar hans, en segir slag­inn engu að síður ganga vel, með ákveðnum fyr­ir­vörum þó.

„For­manns­fram­boðið hefur þró­ast út í vissa feg­urð­ar­sam­keppni þar sem helstu með­mælin sem maður les er að fram­bjóð­andi sé for­manns­legri en aðrir. Ég ótt­ast að félags­menn séu að fara kjósa kunn­ug­leg and­lit og traust verði gildið sem ræður hvernig kosn­ing­arnar fara,” segir Guð­mundur Ari. „Mín sýn er að staða flokks­ins kalli á nýtt and­lit og nýjar áherslur og tel ég að eld­móður ætti að vera það gildi sem mundi ráða úrslitum.“

Flokks­menn eigi ekki að velja for­mann út frá reynslu, heldur út frá því hver sé lík­leg­astur til að færa Sam­fylk­ingu jafn­að­ar­manna inn í nútím­ann, að mati Guð­mundar Ara. Hann vill vinna mark­visst inn á við í flokknum, virkja almenna félags­menn til þátt­töku og færa þeim aukin völd. Í dag fái þeir að gera hvor­ugt. „Þú ert eig­in­lega bara að skrá þig á póst­lista þegar þú gengur í flokk­inn,“ segir hann.

[adspot]

Hann segir næstu kosn­ingar munu snú­ast um pen­inga og völd, bar­áttu milli jafn­að­ar­manna og ójafn­að­ar­manna. „Það sem næsti for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á að gera er að fjar­lægja alla froðu og draga fram skýrar línur fyrir kjós­endur. Þetta er ekki flókið, við viljum aukið lýð­ræði og rétt­læti fyrir almenn­ing á Íslandi.“

[quote font="0" align="right"]Þú ert eig­in­lega bara að skrá þig á póst­lista þegar þú gengur í flokk­inn.[/quote]

Munu ekki vinna með Sjálfstæðisflokknum

Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður seg­ist hafa fengið jákvæð við­brögð við fram­boði sínu og að góður andi sé í bar­átt­unni.

„Ég leyfi mér að vera bjart­sýnn. Þetta er jafnt og spenn­andi,” segir Helgi. Varðandi erf­iða stöðu flokks­ins segir hann að þegar flokkur hafi glatað meira en helm­ing stuðn­ings­manna sinna, sé ljóst að það þurfi að grípa til aðgerða.

„Meðal ann­ars með því að taka af öll tví­mæli af um með hverjum við ætlum að starfa í næstu kosn­ingum. Efa­semdir um slíkt mega ekki fæla fólk frá flokknum,” segir Helgi og und­ir­strikar að Sam­fylk­ingin ætli að vinna með sam­starfs­flokkum sínum í stjórn­ar­and­stöð­unni. „Við munum ekki vinna með Sjálf­stæð­is­flokkum, enda er hann ósam­starfs­hæfur og vill engar kerf­is­breyt­ingar. Það er sjálf­sagt að við störfum ekki með honum.” Varðandi Fram­sókn­ar­flokk­inn segir Helgi það fara eftir hvaða Fram­sókn­ar­flokkur það verði, ljóst sé að mikil breyt­ing muni eiga sér stað þar.

„Stjórn­ar­and­staðan er að sjá svipuð tæki­færi og voru fyrir hendi í borg­inni þegar við bjuggum til Reykja­vík­ur­list­ann. Ég tel að sú reynsla mín geti hjálpað í kom­andi kosn­ingum.“

Nauð­syn­legt sé að ná sam­stöðu um hvernig eigi að ljúka stjórn­ar­skrár­mál­inu og ná banda­lagi við sam­starfs­flokk­ana um stór mál í næstu kosn­ingum. „Síðan þurfum við að hreinsa út áherslur sem spruttu upp í bólunni og hverfa aftur til sígildrar jafn­að­ar­stefnu, með vel­ferð­ar­mál, hús­næð­is­mál og fjár­mála­kerfi fyrir fólk í önd­vegi,” segir hann.

[quote font="0" align="right"]Við munum ekki vinna með Sjálf­stæð­is­flokkum, enda er hann ósam­starfs­hæfur og vill engar kerf­is­breyt­ingar.[/quote]

Annað nafn ekki grundvallarforsenda

Magnús Orri Schram, vara­þing­maður Sam­fylk­ingar og ráð­gjafi hjá Capacent, segir for­manns­slag­inn ganga vel. Hann telur flokk­inn eiga mikla mögu­leika á að ná fyrri styrk og end­ur­vinna traust og trúnað almenn­ings, þó að það taki tíma. Fólk þurfi að vera óhrætt við þróun.

„Það þarf að end­ur­nýja lyk­il­fólk, heim­sækja áherslur uppá nýtt og end­ur­skoða vinnu­brögð. Einnig þarf að end­ur­nýja tengslin við verka­lýðs­hreyf­ing­una og ná aftur stöðu sinni þar sem félags­hyggju­fólk og frjáls­lyndir getur starfað undir einu merki,” segir Magnús Orri og bætir við að hann vilji fara á nýjan stað með flokk­inn. Breyting á nafni sé þar ekki aðal­at­riði eða grund­vall­ar­for­senda. 

„Það getur hins vegar verið hluti af alls­herjar end­ur­nýjun og sendir um leið skýr skila­boð til okkar sjálfra og ann­arra að við erum á nýjum stað,” segir hann. „Ég get ekki lagt næga áherslu á að flokkur jafn­að­ar­manna hverfur aldrei né verður hann lagður niður. Hann þarf hins vegar að taka breyt­ingum.”

[quote font="0" align="right"]Ég get ekki lagt næga áherslu á að flokkur jafn­að­ar­manna hverfur aldrei né verður hann lagður niður.[/quote]

Óþolandi staða

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, tekur undir með flokks­bróður sínum og segir slag­inn ganga vel. Henni hafi gengið vel að ræða við flokks­fé­laga.

„Mínir stuðn­ings­menn hringja á hverjum degi til að óska eftir stuðn­ingi við mitt fram­boð,” segir Oddný. Allir fram­bjóð­end­urnir hafi ferð­ast saman um landið á fundi með svæð­is­fé­lögum og í svo­leiðis keppni segir Oddný að mynd­ist ákveð­inn kraftur og hug­myndir í kringum hvern og einn fram­bjóð­anda. „Hvernig sem fer er það mjög mik­il­vægt fyrir Sam­fylk­ing­una sú stemn­ing skili sér inn í flokk­inn eftir lands­fund­inn.“

Oddný segir það hafa verið rétta ákvörðun að blása til for­manns­kjörs og lands­fundar.

„Í sam­tölum mínum við fólk verð ég vör við hversu mjög staða Sam­fylk­ing­ar­innar og jafn­að­ar­stefn­unnar brennur á fólki. Staðan er óþol­andi en ég er viss um að ákveðin þátta­skil verði við lands­fund­inn og bar­átt­u­gleðin taki yfir þegar við höfum tekið ákvörðun um hvert við erum að fara með skýra stefnu í fartesk­inu,” segir Oddný. Hún vill að vel­ferð­ar­málin verði í önd­vegi í kosn­inga­bar­átt­unni sem framundan er, með skýrum til­lögum sem bæta stöðu fólks og almenna vel­ferð. „Auk sann­gjarns skatt­kerfis sem vinnur gegn svikum og að því að felu­staðir og blekk­ing­ar­leikir fyrir fólk sem vill láta aðra bera sinn hlut í rík­is­rekstr­inum, verði upp­rættir.“

[quote font="0" align="right"]Staðan er óþol­andi en ég er viss um að ákveðin þátta­skil verði við lands­fund­inn og bar­átt­u­gleðin taki yfir þegar við höfum tekið ákvörðun um hvert við erum að fara með skýra stefnu í fartesk­inu.[/quote]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár