Ætlar að draga úr takmörkunum á orkuframleiðslu

Banda­ríkja­for­seti ætlar að afnema tak­mark­anir á orku­fram­leiðslu með bruna jarð­efna­elds­neytis.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur undirritað margar tilskipanir síðan hann tók við sem forseti.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur und­ir­ritað margar til­skip­anir síðan hann tók við sem for­seti. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, mun und­ir­rita til­skipun á þriðju­dag sem mun gera fyr­ir­tækjum vest­an­hafs auð­veld­ara að nýta orku­lindir. Þetta er haft eftir emb­ætt­is­mönnum í Hvíta hús­inu.

Þessari til­skipun er ætlað að draga úr þeim tak­mörk­unum sem stjórn Baracks Obama setti á orku­geir­ann í Banda­ríkj­unum, þar sem lofts­lags­mál voru í fyr­ir­rúmi.

Trump hefur skipað Scott Pruitt for­stjóra Umhverf­is­vernd­ar­stofn­unar Banda­ríkj­anna, en sá er yfir­lýstur efa­semda­maður um lofts­lags­breyt­ingar og þver­tekur fyrir að mað­ur­inn hafi áhrif á lofts­lag Jarðar.

Banda­ríkin eru eitt þeirra ríka sem und­ir­rit­uðu Par­ís­ar­sam­komu­lagið svo­kall­aða um lofts­lags­mál á síð­asta ári. Í kosn­inga­bar­áttu sinni sagði Donald Trump ítrekað að hann myndi afnema allar þær kvaðir sem Par­ísa­sam­komu­lagið hefði sett á orku­geir­ann.

Pruitt lét hafa eftir sér í við­tali á ABC-sjón­varp­stöð­inni banda­rísku að til­skip­unin sem Trump ætlar að und­ir­rita á morgun muni hjálpa til við að afnema stefnu Obama sem fór gegn bruna jarð­efna­elds­neytis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár