Stjórnarráðið keypti áfengi fyrir 3,5 milljónir á átta mánuðum

Stjórn­ar­ráðið hefur alls greitt 3.509.626 krónur til ÁTVR frá því í ágúst í fyrra til síð­ustu mán­að­ar­móta. Langmest hefur verið greitt til ÁTVR frá utan­rík­is­ráð­neyt­inu eða 1.316.870 krónur.

Ráðu­neytin hafa greitt Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins rúm­lega 3,5 millj­ónir frá því heima­síðan opn­ir­reikn­ingar.is var opnuð í sept­em­ber á síð­asta ári. Samkvæmt tölum sem Kjarninn hefur tekið saman hefur hefur stjórn­ar­ráðið alls greitt 3.509.626 krónur til ÁTVR frá því í ágúst í fyrra til síð­ustu mán­að­ar­móta.

Alls gera það 14.442 krónur á dag sem greiddar eru til Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins frá stjórn­ar­ráð­inu.

Útgjöldin eru ýmist flokkuð sem risna, gjafir til starfs­manna eða risna til starfs­manna eða starfs­manna­fé­laga.

Langmest hefur verið greitt til ÁTVR frá utan­rík­is­ráð­neyt­inu eða 1.316.870 krónur. Bæði atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið og mennta­mála­ráðu­neytið hafa kostað til rúm­lega hálfri milljón í áfengi eða tóbak á þessu tíma­bili.

Í reikn­ingnum má finna heild­ar­fjár­hæðir sem greiddir eru í hvert skipti til fyr­ir­tæk­is­ins af hverju og einu ráðu­neyti. Reikn­ing­arnir eru ekki sund­ur­lið­aðir. Þannig er í októ­ber 2017 greiddur reikn­ingur upp á rúma milljón af utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Hins vegar má finna reikn­inga upp á umtals­vert lægri fjár­hæðir, eins og frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu (sem nú hefur verið skipt upp í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyti ann­ars vegar og dóms­mála­ráðu­neyti hins vegar) reikn­ing sem var greiddur upp á fjár­hæð 4.799 krónur, sem sam­svar nákvæm­lega kostn­aði við eina Áka­vít­is­flösku sam­kvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu ÁTVR.

Vefurinn opn­ir­reikn­ingar.is var opn­aður í sept­em­ber 2017 af Benedikt Jóhann­essyni þáver­andi fjár­mála­ráð­herra með það að mark­miði að auka gagn­sæi og aðgengi almenn­ings að fjár­hags­upp­lýs­ingum rík­is­ins. Á vefnum er unnt að skoða upp­lýs­ingar um greidda reikn­inga ráðu­neyta og stofn­ana úr bók­haldi rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár