Helmingur hlynntur gjaldtöku fyrir aðgengi – Gangi ykkur vel að „sannfæra Íslendinga að borga sig inn á Þingvelli“

Starfs­hópur sem rýndi í áskor­anir og tæki­færi frið­lýstra svæða á Íslandi segir að móta þurfi stefnu um gjald­töku. Íslend­ingar eru hlynntir gjald­töku á þjón­ustu svæð­anna og sam­kvæmt nýrri könnun er um helm­ingur lands­manna hlynntur aðgangs­gjaldi.

Þingvellir eru einn af þremur þjóðgörðum landsins. Hinir tveir eru Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og Vatnajökulsþjóðgarður.
Þing­vellir eru einn af þremur þjóð­görðum lands­ins. Hinir tveir eru Þjóð­garð­ur­inn Snæ­fells­jök­ull og Vatna­jök­uls­þjóð­garður. Mynd: Einar A. E. Sæmundsen

Þrátt fyrir að Íslend­ingum þyki flestum ekki nógu vel staðið að verndun nátt­úru lands­ins vill um helm­ingur þeirra frið­lýsa fleiri svæði. 66 pró­sent lands­manna eru fylgj­andi gjald­töku fyrir þjón­ustu á helstu ferða­manna­stöðum á frið­lýstum svæðum og 49 pró­sent eru fylgj­andi gjald­töku á aðgengi þess­ara staða.

Þetta eru helstu nið­ur­stöður skoð­ana­könn­unar sem Maskína fram­kvæmdi fyrir starfs­hóp sem umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra skip­aði í vor til að varpa ljósi á stöðu frið­lýstra svæða á Íslandi og þær áskor­anir sem stjórn­völd standa frammi fyrir vegna þeirra. Skýrsla starfs­hóps­ins, sem Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands fór fyrir, voru kynntar í Hörpu í dag. Í hópnum sátu einnig Guðrún Svanhvít Magn­ús­dóttir og Svein­björn Hall­dórs­son.

[adspot]

Meðal þeirra lyk­il­þátta sem starfs­hóp­ur­inn leggur áherslu á í skýrsl­unni er að móta þurfi stefnu um gjald­töku á frið­lýstum svæðum á Íslandi. Tryggja þurfi enn­fremur heim­ildir til að tekjur af gjald­töku gesta megi nýta bæði til að veita þjón­ustu og til upp­bygg­ingar og við­halds mann­virkja.

Einnig þarf að mati starfs­hóps­ins að sam­ræma stjórn­sýslu og skipu­lag þeirra stofn­ana sem reka frið­lýst svæði og bæta og ein­falda fyr­ir­komu­lag þjón­ustu við þá sem nýta sér svæðin til úti­vistar eða í atvinnu­skyni. Mun fleiri áherslu­at­riði eru tilk­tekin, alls sautján tals­ins.

Við gerð skýrsl­unnar var aflað marg­vís­legra gagna auk þess sem við­töl voru tekin við fjölda aðila sem hafa hags­muna að gæta ýmist fyrir hönd atvinnu­lífs, sam­fé­lags eða nátt­úr­unnar sjálfrar.

„Ég lít svo á að þessi skýrsla sé grunnur til umræðu og vinnu í fram­hald­inu,“ sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, ráð­herra umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála, í Hörpu. „Það er verk að vinna og við verðum að vinna það saman.“ Hann ætlar að setja af stað vinnu við alla lyk­il­þætt­ina sem starfs­hóp­ur­inn bendir á fyrir ára­mót.

Þrír þjóðgarðar – gjörólíkt stjórnskipulag

Á Íslandi eru 130 frið­lýst svæði, þar af þrír þjóð­garðar og er stjórn­skipu­lag þeirra mjög ólíkt. Átak hefur verið gert í fjölgun frið­lýs­inga síð­ustu miss­eri, m.a. í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar. Á sama tíma hafa mörg þeirra orðið fyrir auknu álagi vegna fjölg­unar ferða­manna en fjár­munum til land­vörslu og ann­ars rekstrar er naumt skammt­aður, líkt og bent er á í skýrsl­unni.

Og enn er hugur í rík­is­stjórn­inni sem vill, að því er segir í stjórn­ar­sátt­mála, stofna þjóð­garð á þegar frið­lýstum svæðum og jöklum á þjóð­lendum á hálend­inu.

En frið­lýs­ingum fylgja bæði áskor­anir og tæki­færi og fjár­munir þurfa að fylgja stækk­unum og fjölg­unum frið­lýstra svæða, bæði til rekstrar og upp­bygg­ingar.

Valbjörn Stein­gríms­son, fjár­mála­stjóri Vatna­jök­uls­þjóð­garðs, sagði á kynn­ing­ar­fund­inum að gjald­taka væri eitt en hvernig nota ætti pen­ing­inn annað. Í dag væri það tak­mörk­unum háð hvað þjóð­garð­ur­inn má nota þá pen­inga í sem hann aflar.

Árni, for­maður starfs­hóps­ins, sagði að breyta þyrfti lögum svo að hægt væri að nýta pen­inga vegna gjald­töku til rekst­urs og inn­viða­upp­bygg­ingar á frið­lýstum svæðum. „Næsta skref er að lög­fræð­ing­arnir skýri út hvað sé hægt að gera í þeim efnum.“

Svein­björn sagði Mask­ínu­könn­un­ina sýna vel að almenn­ingur vill fá auknar tekjur af ferða­mönnum og að þær séu not­aðar til að byggja upp stað­ina og vernda nátt­úr­una.

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, minnti á að atvinnu­greinin nýti frið­lýst svæði hvað mest allra og búi til verð­mæti fyrir sam­fé­lagið úr því. „Hvað gjald­töku varðar, er vert að muna það, að meiri­hluti tekna til dæmis þjóð­garð­anna á Íslandi kemur frá ferða­mönnum nú þegar. Það er ekki þannig að það sé ekki verið að skila tekjum af þessum gestum okkar, bæði íslenskum og erlendum, inn í þessi svæði.“

Hann tók undir að fram­tíð­ar­hugsun í þessu sam­bandi væri mik­il­væg og fagn­aði því útkomu skýrsl­unnar. En vildi þó benda á að „ætli menn að horfa til þess inn í fram­tíð­ina að fara úr hugs­un­inni um þjón­ustu­gjöld, þar sem þjón­usta er veitt og gjald tekið fyrir, og yfir í aðgangs­gjöld, þá í fyrsta lagi óska ég mönnum bara góðs gengis með það að sann­færa Íslend­inga um að þeir þurfi að borga sig inn á Þing­velli“.

Þarf að „opna sílóið“

Jóhannes sagði ferða­þjón­ust­una þurfa að eiga við „mörg síló rík­is­stjórn­ar­innar“. „Sílóa­hugs­unin í stjórn­kerf­inu“ væri eitt stærsta vanda­málið sem atvinnu­greinin byggi við. Sagði hann „hressi­lega“ minnt á það með þeirri vinnu sem framundan væri um hina nýju skýrslu á sama tíma og vinna á vegum ráð­herra ferða­mála við að upp­færa stefnu í ferða­þjón­ustu væri að hefj­ast. Í henni væri m.a. horft til sam­ræm­ingar nýt­ingar og verndar. „Ég ítreka það hér að þetta tvennt verður að tala saman,“ sagði Jóhannes Þór. Spurði hann Guðlaug Þór hvort hann væri til­bú­inn að „opna sílóið“ og ræða þessi mál við ferða­mála­ráð­herra. „Svona helm­ing­ur­inn af þess­ari skýrslu mun hafa drastísk áhrif á ferða­þjón­ust­una ef það er ekki gert í sam­hengi við aðra hluti sem við erum að reyna að færa þessa atvinnu­grein í.“

Guð­laugur sagði það „alveg hár­rétt“ að ráðu­neyti þurfi að vinna saman. „Auðvitað höfum ég og ferða­mála­ráð­herra rætt þessi mál oft og ég er búinn að kynna þessa skýrslu í rík­is­stjórn. Og það er alveg skýr vilji af hálfu okkar beggja að vinna saman að þessum málum.“ Einnig þyrftu fleiri ráðu­neytið að koma að vinn­unni.

[adspot]

Svein­björn sagði mjög skiptar skoð­anir um gjald­töku meðal hags­muna­að­ila sem rætt var við við gerð skýrsl­unnar. Þær væru allt frá því að ríkið ætti að“ byggja allt upp og allt ætti að vera frítt“ út í það að eðli­legt væri að rukka fyrir þá þjón­ustu sem væri í boði. Á sumum svæðum væri t.d. rukkað fyrir bíla­stæði og önnur hafi jafn­vel verið „skúra­vædd“, eins og hann orð­aði það, þ.e. komið fyrir skúrum til að rukka gesti. „Við í nefnd­inni höfum ekki verið að tala um skúra­væð­ingu,“ hélt hann áfram. „Heldur að fundin verði lausn á því hvernig er hægt að gera þetta þannig að þetta verði jafnt og að pen­ing­arnir fari svo í upp­bygg­ingu á svæð­unum.“

Einhver þarf að borga reikninginn

„Það er ekk­ert ókeypis í þessu,“ sagði Guð­laugur Þór er hann var spurður hver hans sýn á málið væri. „Þeir sem eru að nota, hvort sem það eru sal­erni eða bíla­stæði og eru ekki að greiða, þá borgar ein­hver annar, sem heitir skatt­greið­andi, fyrir það. Ég les það út úr þessum skoð­ana­könn­unum að fólk sé ekki alveg til­búið í það.“

Hvað hans skoðun varðar sagð­ist hann ekki bæði geta sagt að hann væri með nið­ur­stöðu og síðan að hann ætli að fara af stað með vinnu til að fá sem flest sjón­ar­horn. Eins og hann stefnir að. „Öll þessi mál eru þess eðlis að þú ert ekki að koma með ákvörðun frá ein­hverju skrif­borði í Reykja­vík og segja svo lands­mönnum að þetta sé nið­ur­staðan.“

Auður Önnu Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, minnti á kynn­ing­ar­fund­inum á að nátt­úra Íslands væri stærsti hags­muna­að­il­inn í þessu öllu. Skýrslan og umræða um hana væri „gríð­ar­lega mann­hverf“. Fólk ætti frekar að temja sér það sem hún kall­aði „vist­hverfa hugsun“. Líka þegar kæmi að gjald­töku.

Í umræðu um gjald­töku á frið­lýstum svæðum ætti ekki aðeins að tala um „hverjir eru að græða og hverjir eiga að borga“ heldur einnig hvaða áhrif gjald­taka hefði á nátt­úr­una. „Ef við látum kosta þús­und kall að kúka í ein­hverju sal­erni þá kannski þrýstir það ferða­mönnum frekar í að gera það ann­ars staðar þar sem við viljum ekki að þeir geri það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðaþjónustan

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár