Grein Þorsteins á Kjarnanum gagnrýnd í veiðigjaldanefnd

Þrír full­trúar í nefnd sem á að tryggja sann­gjarna gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni hafa bókað harða gagn­rýni á for­mann hennar. Ástæða bók­un­ar­innar er grein sem hann skrif­aði á Kjarnann.

Þorsteinn Pálsson.
Þor­steinn Pálsson.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, Páll Jóhann Pálsson, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, bók­uðu harða gagn­rýni á Þorstein Pálsson á fundi nefndar sem á að móta til­lögur um hvernig tryggja megi sann­gjarna gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Þre­menn­ing­arnir eru full­trúar sinna flokka í nefnd­inni og Þor­steinn er for­maður hennar og skip­aður sem slíkur af Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]Tilefni bók­un­ar­innar er aðsend grein sem Þor­steinn skrif­aði á Kjarnann í síð­ustu viku. Þar sagði Þor­steinn m.a. að mesta hættan sem sé til staðar í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sé að sá síð­ast­nefndi nái saman með Fram­sókn­ar­flokknum og Vinstri grænum í því breiða sam­tali um nokkur höf­uð­mál íslenskra stjórn­mála sem fram undan sé. Bæði Fram­sókn og Vinstri græn hafi „staðið jafn fast eða jafn­vel fastar gegn kerf­is­breyt­ingum en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn“. Flokk­arnir kom­ist ekki hjá því að svara hvert hugur þeirra stefnir í þeim efnum á næstu mán­uðum eða miss­er­um. [adspot]

Svandís svar­aði Þor­steini með grein dag­inn eftir. Fyr­ir­sögn hennar var „Svona er ekki unnið að því að skapa sátt“. Í grein­inni gagn­rýndi hún Þorstein harð­lega fyrir að veit­ast að flokkum sem eiga sæti í sátta­nefnd­inni um sjáv­ar­út­vegs­mál og spurði hvort til­gangur nefnd­ar­innar væri að skerpa línur í átökum milli stjórn­ar­flokka.

Í Morg­un­blaðið er sagt að vitnað sé í grein Þor­steins í bókun þre­menn­ing­anna og þar er tekið fram að vand­séð sé að for­maður nefnd­ar­innar sé að vinna að því marki að ná víð­tækri sátt um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi, sé miðað við umrædd skrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár