5 verstu Rómarkeisarar sögunnar – framhald

Flosi Þor­geirs­son, sagn­fræð­ingur og lista­maður, heldur áfram yfir­ferð sinni um Róm­ar­keis­ara.

Í síð­ustu viku skoð­uðum við þá Caracalla og Commodus. Nú beinum við sjónum okkar að næstu þremur.

Neró (37 - 68 e.kr.)

Það ein­kennir ýmsa af þeim sem hér eru nefndir að þeir virð­ast hafa viljað verða eitt­hvað annað en keis­arar. Eins fram kom í fyrri hluta var Commodus heill­aður af lífi skylm­inga­þræla (e: gladi­ator) og Caracalla var fyrst og fremst stríðs­herra. Neró sá sjálfan sig sem lista­mann og sagt er að hans síð­ustu orð hafi verið: „Ó, hví­líkan lista­mann sem ver­öldin nú kveður!“. Oft er sagt að hann hafi leikið á fiðlu meðan Róm brann fyrir augum hans og skemmt sér kon­ung­lega en það mun vera rangt enda var Neró ekki í Róm er eld­ur­inn braust út. Hann varð keis­ari aðeins 16 ára gam­all og það var ljóst frá fyrstu stundu að hann réð illa við þetta viða­mikla verk­efni. Agrippína móðir hans hafði talið að hún gæti stjórnað á bak við tjöldin en þar mis­reikn­aði hún sig illa. Neró lét ekki að stjórn svo hún reyndi að koma honum frá til að láta upp­eld­is­bróður hans Britannicus taka við stjórn­ar­taumunum.

Neró sá við því og Britannicus dó all skyndi­lega og grun­aði marga að Neró hefði látið eitra fyrir honum. Agrippína hélt áfram að vera til vand­ræða enda hafði hún nú lík­lega gert sér grein fyrir hví­lík reg­in­skyssa það var að gera Neró að keis­ara. Það end­aði með því að Neró lét taka hana af lífi. Í fyrstu virt­ist Neró þó ekki vera alslæmur. Hann lét afnema dauða­refs­ingu, lækk­aði skatta og setti lög sem heim­il­uðu þrælum að kvarta undan illri með­ferð. Hann var vissu­lega óag­aður og ofdekraður ung­lingur sem þótti gaman að skemmta sér en virt­ist ekki vera illa inn­rættur. Það átti eftir að breyt­ast til hins verra.

Hann sólund­aði sam­visku­laust fjár­munum rík­is­ins og ofsótti eða lét myrða alla sem kvört­uðu undan stjórn hans. Hann hefur sér­stak­lega fengið á sig slæmt orð vegna þess að hann kenndi kristnum um brun­ann mikla og ofsótti fylgj­endur þeirrar trúar mis­kunn­ar­laust. Tón­list­ar­menn og ljóð­skáld voru ekki hátt skrif­aðir í Róm til forna og því þótti ekki við hæfi að keis­ar­inn væri að hanga með þannig fólki eða hvað þá koma fram opin­ber­lega en lista­mann­staugin var sterk í Neró. Eftir morðið á móður hans héldu honum svo engin bönd. Hann girntist aðra konu og lét því myrða eig­in­konu sína. Allir sem hall­mæltu keis­ar­anum, eða voru grun­aðir um það, voru strax líf­látnir. Eins og áður sagði þá var Neró ekki í Róm er eld­ur­inn braust út en nær öll borgin varð eld­inum að bráð. Þó grun­aði marga að hann hefði átt ein­hvern hlut að máli og þær raddir urðu hávær­ari er keis­ar­inn til­kynnti hvernig ætti að bregð­ast við brun­anum en Neró datt það snjall­ræði í hug að byggja afar stórt glæsi­hýsi á bruna­rúst­unum.

Hver átti að búa þar? Nú, keis­ar­inn auð­vitað! Vanda­málið var bara hvernig átti að safna fjár­munum til að byggja þessa glæsi­villu keis­ar­ans og Neró hækk­aði þá skatta umtals­vert og seldi góðar stöður þeim sem buðu hæst. Róm­verjar voru svo sem vanir spill­ingu en nú tók stein­inn úr. For­ingjar í hernum ásamt þing­mönnum gerðu upp­reisn og Neró varð að flýja borg­ina. Þá barst honum til eyrna að þingið hefði dæmt hann til dauða. Öll sund voru lokuð, Neró framdi sjálfs­morð og ver­öldin var einum lista­manni fátæk­ari.

Caligula (12 - 41 e.kr)

Hann hét reyndar Gaius Caesar en við­ur­nefnið Caligula fest­ist við hann en það mætti þýða sem „litla stíg­vél“. Að sögn fékk hann það heiti er hann var barn og her­menn sem þjón­uðu í sveit föður hans skemmtu sér við að sjá hann fara í stíg­vél þeirra og spíg­spora um.

Caligula var vin­sæll til að byrja með. Hann naut þess að for­veri hans, Tíberíus, hafði verið hat­aður mjög en Germanicus faðir hans var vin­sæll. Eins og Neró, virt­ist Caligula ágætur í fyrstu og hann virt­ist taka emb­ættið alvar­lega. Það var öllum keis­urum mik­il­vægt að her­inn væri sáttur við sitt, svo hann jók laun þeirra umtals­vert. Hann náð­aði ýmsa sem höfðu verið reknir í útlegð og greiddi miska­bætur til fólks sem hafði orðið illa fyrir barð­inu á skatt­kerfi rík­is­ins. Fólk var ánægt, keis­ar­inn nýi var ungur og mynd­ar­legur og virt­ist vera með hjartað á réttum stað.

Eftir um sex mán­aða valda­tíma varð keis­ar­inn alvar­lega veikur og var vart hugað líf. Hann hjarn­aði þó við en það var öllu ógn­væn­legri Caligula sem sté upp af sótt­ar­sæng, því nú tók við sann­kallað hryll­ings­tíma­bil í Róm sem ein­kennd­ist af morðum, pynt­ingum og brjál­uðum kyn­lífs-svall­veislum. Stundum rann þetta saman í eitt og fólki var mis­þyrmt og myrt fyrir framan skríkj­andi svall­veislu­gest­ina.

Navius Macro, yfir­maður líf­varð­ar­sveitar keis­ar­ans var einn þeirra sem höfðu stutt mest við bakið á Caligula en hann var umsvifa­laust tek­inn höndum, pynt­aður og myrtur. Caligula fór nú ekki dult með það að hann taldi sig vera nokk­urs­konar guð­lega veru og að honum væru allir vegir færir sem venju­legu fólki væri ann­ars ekki. Hann fór að sýna systur sinni óeðli­lega mik­inn áhuga og virt­ist mikið í mun að koma á kerfi sem líkt­ist því sem var eitt sinn í Egypta­landi, þar sem systk­ini gift­ust og eign­uð­ust börn. Svo virt­ist sem að veik­indin hefðu gert keisar­ann alger­lega vit­skertan. Fræg er saga af því að hann hafi gefið „besta vini“ sínum, Incitatus, heilt hús ásamt rán­dýrum inn­an­stokks­munum úr marm­ara, rán­dýrum teppum og heil­mikið af eðal­steinum. Einnig gerði hann Incitatus að heið­urs­konsúl. Þetta þótti afar sér­stakt því Incitatus var hestur, ekki maður. Sumir hafa reyndar efast um sann­leiks­gildi þess­arar sögu.

Hann fór með her sinn til Gallíu og lét þá rupla þar og ræna. Er her­inn kom að ströndum Ermar­sunds skip­aði hann her­mönnum sínum að tína upp fjöld­ann af skeljum til að sýna fram á að þeir hefðu sigrað sjálf hafið! Tryllt partí­stand og eyðslu­semi varð til þess að fjár­hirslur Rómar fóru að minnka all veru­lega og þá brá Caligula á það ráð að leggja ofur­skatta á helstu ráða­menn eða hrein­lega gera eigur þeirra upp­tækar. Þeir sem kvört­uðu voru umsvifa­laust teknir af lífi. Hann var nú fylli­lega sann­færður um að hann væri guð­leg vera og lét skipa svo fyrir að stór stytta af honum yrði reist í miðri Jer­úsalem.

Lands­stjór­inn þar, Heródes að nafni, vissi að það myndi gera íbúa þar frá­vita af reiði og bless­un­ar­lega tókst honum að fá Caligula ofan af þess­ari hug­mynd.

Lang­lund­ar­geð Rómverja var nú á þrotum og líf­varð­ar­sveit keis­ar­ans sjálfs tók hann af lífi.

Elagabalus (204 - 222 e.kr.)

Elaga­balus varð keis­ari aðeins 14 ára að aldri. Hann réð ríkjum í fjögur ár. Hann var fæddur í borg­inni Homs, þar sem nú er Sýrland. Hann var prestur í söfn­uði sem dýrk­aði sólguð­inn Elah-Gabal. Eins og Caligula, þá var Elaga­balus mikið partýljón og virt­ist hafa mun meiri áhuga á ljúfa líf­inu en því að standa í ein­hverjum leið­inda rík­is­rekstri.

Elaga­balus var þó ekki mikið fyrir kven­fólk gef­inn, þó hann hafi oft notið þeirra en því hrifn­ari var hann af karl­mönnum. Róm­verjar höfðu alveg kynnst sam­kyn­hneigð áður, t.d. hafði Trajan, sem var vel met­inn keis­ari, aldrei farið dult með kyn­hneigð sína. Róm var þó sann­kallað feðra­veldi og karl­maður átti að hegða sér í fullu sam­ræmi við það. Ástmaður Trajans var hinn kven­legi og fagri Ant­on­inus. Það fór því ekki fram hjá Róm­verjum hver var „karl­inn“, þ.e. hinn ráð­andi, í því sam­bandi. Elaga­balus þver­braut allar þær reglur.

Ég hef minnst á það að ýmsir þess­ara slæmu Róm­ar­keis­ara virt­ust vilja vera eitt­hvað annað en keis­arar. Elaga­balus vildi ekki vera keis­ari, hann vildi vera drottn­ing. Hann klædd­ist kven­manns­fötum, mál­aði sig sem kona og daðr­aði óspart við hina ýmsu ráða­menn og her­for­ingja, oft fyrir framan eig­in­konur þeirra. Hann hélt trylltar svall­veislur þar sem hefð­bundin kyn­hlut­verk voru ekki í hávegum höfð. Hann fór ekki dult með ást sína á skylm­inga­kapp­anum Hierocles og kall­aði hann „eig­in­mann“ sinn og að hann, Elaga­balus, væri drottn­ingin. Einnig bár­ust þær sögur af keis­ar­anum að hann hefði stundum óvænt birst í vænd­is­húsum borg­ar­innar og selt sig þar hæst­bjóð­anda.

Hann átti einnig að hafa lofað miklum fjár­munum, þeim til handa, sem gætu breytt honum úr manni í konu. Svall og eyðsla keis­ar­ans varð sífellt tryllt­ari og hann lét t.d. opna einka­böð keis­ara­hall­ar­innar fyrir almenn­ing svo hann gæti virt fyrir sér allt þetta nakta fólk og valið næstu leik­fé­laga sína. Þetta fór væg­ast sagt illa í marga heldri Rómverja en var þó ekki það sem varð Elaga­balus að falli. Hann gekk of langt er hann tók sér eig­in­konu, því hann valdi mey eina sem þjón­aði í must­eri gyðj­unnar Vestu. Þær meyjar áttu að vera hreinar og óspjall­aðar. Með þessu hafði Elaga­balus sýnt guðum Rómverja full­komna óvirð­ingu. Hann reyndi einnig sífellt að ýta guð­inum Elah-Gabaal inn í trú­ar­líf borg­ar­búa en Róm­verjar höfðu úr nægum guðum að velja og voru ekki spenntir fyrir þessum fram­andi sólguð. Reiði þeirra var mikil er Elaga­balus byggði must­eri til­einkað þessum guði í hjarta borg­ar­innar, á Palat­in­hæðum. Hann lét fórna ótölu­legum fjölda dýra, Elah-Gabal til heið­urs og stundum var mönnum fórnað.

Nú var Róm­verjum nóg boðið. Kynvilla keis­ar­ans var nógu slæm að þeirra áliti en einnig var hann trú­vill­ingur? Nei, það gat ekki gengið. Elaga­balus var loks steypt af stóli. Er honum var til­kynnt að hann væri ekki lengur keis­ari og gæti hypjað sig á brott, varð hann fokreiður og æddi út á meðal þung­vopn­aðra her­manna sinna og skip­aði þeim að hlýða sér, enda væri hann ekki bara keis­ari, heldur einnig æðsti­prestur Elah-Gabal. Her­menn­irnir hlógu, brytj­uðu hann niður á staðnum og hentu lík­inu í ánna Tíber þar sem það flaut með straumnum og hvarf loks sjónum. Elaga­balus var þá 18 ára og hafði verið keis­ari Rómar í fjögur ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár