Réttlætið sigraði að lokum

Aðgerðir og aðgerða­leysi lög­regl­unnar á Hills­borogh vell­inum í Sheffi­eld, 15. apríl 1989, leiddu til dauða 96 stuðn­ings­manna Liverpool. Þetta var stað­fest með dómi í dag.

Nið­ur­staða dóm­stóla í Bret­landi, eftir lengstu máls­með­ferð í sögu breska rétt­ar­kerf­is­ins, er sú að lög­regla í Bret­landi hafi brugð­ist í öllum meg­in­at­riðum, og gripið til ólög­legra aðgerða sem leiddu til aðstæðna sem drógu 96 áhorf­endur Liverpool til dauða á Hillsborough vell­inum í Sheffi­eld, 15. apríl 1989. Þá átt­ust Liverpool og Nott­ing­ham Forrest við í und­an­úr­slitum FA bik­ar­keppn­innar.

Með tárin í augunum

Eftir 27 ára bar­áttu aðstand­enda þeirra sem lét­ust, er skýr nið­ur­staða komin í þennan hrika­lega atburð, sem er þrykktur í minni íbúa Liverpool. „Rétt­lætið sigr­aði,“ sagði Margaret Aspinall, tals­maður aðstand­enda, fyrir utan dóms­húsið, með tárin í aug­unum. Hún hefur sjálf leitt bar­áttu aðstand­enda, og meðal ann­ars hafa Liverpool borg og knatt­spyrnu­fé­lögin Liverpool og Everton stutt dyggi­lega við bar­áttu þeirra, með ýmsum hætti.

Stefnubreyting

Árið 2014 varð stefnu­breyt­ing í mál­inu, þegar dóm­stólar felldu úr gildi fyrri nið­ur­stöðu í mál­inu, þess efnis að stuðn­ings­menn­irnir hefðu farist af slys­förum. Dán­ar­dóm­stjóri hóf þá rann­sókn á mál­inu á nýjan leik. Eftir vitna­leiðslur og efn­is­mikil rétt­ar­höld, lýsti kvið­dómur í mál­inu afstöðu sinni til fjórtán spurn­inga sem dán­ar­dóm­stjór­inn hafði lagt fyrir hann að svara. Meg­in­nið­ur­staðan var sú, að lög­reglan í Sheffi­eld var sek um van­rækslu sem leiddi til dauða fólks­ins, og var það enn fremur stað­fest að ekki hefði verið hægt að kenna stuðn­ings­mönnum Liverpool um hvernig fór.

Yfirmaður ber ábyrgð

Sér­stak­lega beindust spjótin að yfir­manni lög­reglu­að­gerða á vett­vangi, David Duckenfield hjá lög­regl­unni í Suður-Yorks­hire, en í nið­ur­stöðu kvið­dóms­ins var kom­ist að því, að hann bæri ábyrgð á dauða stuðn­ings­mann­anna með ábyrgð­ar­lausum ákvörð­unum, meðal ann­ars um að fyr­ir­skipa opnun á hliði inn á völl­inn, sem leiddi til mik­ils þrýst­ings meðal áhorf­enda. Þeir köfn­uðu margir hverjir við girð­ingu á vall­ar­svæð­inu, eða urðu undir hópi fólks.

Talsmenn lög­reglu létu hafa eftir sér skömmu eftir slysið, að stuðn­ings­menn­irnir hefðu sjálfir komið sér í þessar aðstæður, með því að fara ólög­lega inn á völl­inn. Voru meðal ann­ars margir fjöl­miðlar sem fluttu af þessu fréttir, þar á meðal The Sun, sem gekk lengra en allir aðrir miðlar, og birti frá­sagnir af drykkjulátum stuðn­ings­manna Liverpool, þvert ofan í hörm­ung­arnar, og að dauði fólks­ins hefði verið vegna hegð­unar stuðn­ings­manna. Blaðið hefur opin­ber­lega beðist afsök­unar á blaða­mennsk­unni.

Sjúkraflutningamenn of seinir til

Kvið­dómur komst einnig af því, að sjúkra­bílar hefðu verið alltof seinir á vett­vang þar sem lög­regla hefði verið of sein að greina aðstæður og fyr­ir­skipa taf­ar­laust alls­herj­ar­út­kall. Þetta hefði leitt til verri aðstæðna en ann­ars hefðu skap­ast, og gert bráða­að­gerðir erf­ið­ari.

Margir hafa fagnað nið­ur­stöð­unni í dag, og bent á hið aug­ljósa og mik­il­væga, að rétt­lætið hefði sigrað að lokum. Á meðal þeirra sem fylgst hefur grannt með mál­inu í 27 ár, og stutt dyggi­lega við bakið á aðstand­endum, fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­stjór­inn og leik­mað­ur­inn Kenny Dalglish, lét hafa eftir sér í dag, að sann­leik­ur­inn hefði verið leiddur fram, þökk sé hug­rekki aðstand­enda þeirra sem létu lífið.

Steven Gerrard, fyrr­ver­andi leik­maður og fyr­ir­liði Liverpool, birti á Instagram síð­unni sinni mynd til heið­urs fjöl­skyldum fórn­ar­lambanna. Frændi hans, Jon-Paul Gilhooley, var yngsta fórn­ar­lambið, en hann var tíu ára. Sjálfur var Gerrard níu ára gam­all þegar atburð­ur­inn átti sér stað.

David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, fagn­aði nið­ur­stöð­unni og sagði hana mik­il­væga fyrir fjöl­skyldur þeirra sem létu lífið, eft­ir­lif­endur úr harm­leiknum en einnig breskt sam­fé­lagið. Loka­punkt­ur­inn í þessu skelfi­lega máli hefði verið langsóttur, en náðst fram að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár