Ekkert bendir til þess að bólusetning hafi valdið andlátum, en það verður rannsakað

Eins og sakir standa er ekk­ert sagt benda til þess að beint orsaka­sam­hengi sé á milli bólu­setn­inga og fimm alvar­legra auka­verk­ana sem hafa verið til­kynntar til Lyfja­stofn­unar, en óháðir öldr­un­ar­læknar verða fengnir til að rann­saka atvikin.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir undirrita tilkynninguna ásamt Rúnu Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Alma Möller land­læknir und­ir­rita til­kynn­ing­una ásamt Rúnu Hvann­berg, for­stjóra Lyfja­stofn­unar.

Fjórir af þeim tæp­lega 5.000 ein­stak­lingum sem hafa verið bólu­settir gegn COVID-19 á Íslandi til þessa, með bólu­efn­inu frá Pfizer og BioNTech, hafa lát­ist. Í til­kynn­ingu frá emb­ætti land­læknis, sótt­varna­lækni og Lyfja­stofnun segir að hugs­an­lega kunni þetta að tengj­ast bólu­setn­ing­unni, þó að eins og sakir standi bendi „ekk­ert til þess“ að beint orsaka­sam­hengi sé þarna á milli.

Andlátin fjögur eru á meðal fimm alvar­legra auka­verk­ana sem hafa verið til­kynntar til Lyfja­stofn­unar eftir fyrstu umferð bólu­setn­inga.

„Í ljósi þess að um nýtt bólu­efni er að ræða hafa land­læknir, sótt­varna­læknir og for­stjóri Lyfja­stofn­unar ákveðið að fá óháða aðila til að fara gaum­gæfi­lega yfir þessi fimm alvar­legu atvik,“ segir í frétta­til­kynn­ingu sem send var á fjöl­miðla í dag.

Öldrunarlæknar munu skoða atvikin

Þar segir að tveir sér­fróðir læknar á sviði öldr­unar verði fengnir til að ann­ast rann­sókn­ina og að henni verði hraðað eins og kostur er. Stefnt er að því að frum­nið­ur­stöður liggi fyrir innan viku til 10 daga.

Í til­kynn­ingu segir að til­gangur rann­sókn­ar­innar sé að meta hvort lík­legt sé að þessi alvar­legu atvik teng­ist bólu­setn­ing­unni eða hvort þau teng­ist und­ir­liggj­andi sjúk­dómum. „Eins og sakir standa bendir ekk­ert til þess að beint orsaka­sam­hengi sé þarna á milli,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Þegar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar liggja fyrir verður skoðað hvort breyta þurfi nálgun að bólu­setn­ingum eldri ein­stak­linga.

Átján látast að jafnaði á dvalar- og hjúkrunarheimilum í hverri viku

Sér­stak­lega er tekið fram að sá hópur sem bólu­settur var með fyrstu send­ingu bólu­efn­is­ins sam­anstendur af öldruðum og hrumum ein­stak­lingum sem dvelja á hjúkr­un­ar­heim­ilum, öldr­un­ar­deildum eða eru í dagdvöl.

„Hafa ber í huga að að jafn­aði lát­ast 18 ein­stak­lingar á dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum á viku hverri,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Jafn­framt segir þar að kallað hafi verið eftir upp­lýs­ingum frá Norð­ur­lönd­unum og sömu­leiðis frá Lyfja­stofnun Evrópu um hvort sjá megi aukna tíðni dauðs­falla hjá eldri ein­stak­lingum sem hafa verið bólu­settir í öðrum Evr­ópu­löndum und­an­farna daga og vikur.

Þá er tekið fram að sér­stök töl­fræði­grein­ing á dauðs­föllum í þessum hópi fari fram á vegum emb­ættis land­læknis.

Fréttatilkynning Lyfjastofnunar, landlæknis og sóttvarnalæknis í heild sinni:

Lyfja­stofnun hefur verið til­kynnt um fimm alvar­legar auka­verk­anir, þar af fjögur and­lát, sem hugs­an­lega kunna að tengj­ast bólu­setn­ingu við SARS-CoV-2 veirunni. Í öllum til­fell­unum erum að ræða aldr­aða ein­stak­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og sem búa á hjúkr­un­ar­heim­ilum. Í ljósi þess að um nýtt bólu­efni er að ræða hafa land­læknir, sótt­varna­læknir og for­stjóri Lyfja­stofn­unar ákveðið að fá óháða aðila til að fara gaum­gæfi­lega yfir þessi fimm alvar­legu atvik.

Til­gangur rann­sókn­ar­innar er að meta hvort lík­legt sé að þessi alvar­legu atvik teng­ist bólu­setn­ing­unni eða hvort þau teng­ist und­ir­liggj­andi sjúk­dómum. Eins og sakir standa bendir ekk­ert til þess að beint orsaka­sam­hengi sé þarna á milli. Þess ber að geta að sá hópur sem bólu­settur var með fyrstu send­ingu bólu­efn­is­ins sam­anstendur af öldruðum og hrumum ein­stak­lingum sem dvelja á hjúkr­un­ar­heim­ilum, öldr­un­ar­deildum eða eru í dagdvöl. Hafa ber í huga að að jafn­aði lát­ast 18 ein­stak­lingar á dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum á viku hverri. Rann­sóknin verður gerð af tveimur sér­fróðum læknum á sviði öldr­unar og verður henni hraðað eins og kostur er. Stefnt er að því að frum­nið­ur­stöður liggi fyrir innan viku til 10 daga.

Jafn­framt hefur verið kallað eftir upp­lýs­ingum frá Norð­ur­lönd­unum og frá Lyfja­stofnun Evrópu um hvort sjá megi aukna tíðni dauðs­falla hjá eldri ein­stak­lingum sem hafa verið bólu­settir í öðrum Evr­ópu­löndum und­an­farna daga og vikur. Þá fer fram sér­stök töl­fræði­grein­ing á dauðs­föllum í þessum hópi á vegum emb­ættis land­læknis.

Vakin er athygli á því að allar íslenskar til­kynn­ingar um mögu­legar auka­verk­anir lyfja eru skráðar í mið­lægan gagna­grunn sem Lyfja­stofnun Evrópu heldur úti til frek­ari grein­ingar, með það að mark­miði að tryggja svo kostur er gæði og öryggi lyfja. Fyrir Íslands hönd tekur Lyfja­stofnun virkan þátt í þeirri vinnu.

Þegar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar liggja fyrir verður skoðað hvort breyta þurfi nálgun að bólu­setn­ingum eldri ein­stak­linga.

Alma D. Möller

land­læknir

Þórólfur Guðnason

sótt­varna­læknir

Rúna Hauks­dóttir Hvann­berg

for­stjóri Lyfja­stofn­unar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár