Milljarðaklúður

Breyt­ingar sem gerðar voru á fyr­ir­komu­lagi álagn­ingar og inn­heimtu skatta í Danmörku fyrir 13 árum hefur kostað danska ríkið millj­arða í töp­uðum tekjum. Stofnun SKAT í Danmörku sögð mis­tök í nýrri skýrslu.

Los­ara­legt og illa und­ir­búið. Klúður. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar tveggja danskra pró­fess­ora á þeim breyt­ingum sem gerðar voru á fyr­ir­komu­lagi álagn­ingar og inn­heimtu skatta í Danmörku fyrir 13 árum og hefur kostað danska ríkið millj­arða í töp­uðum tekjum. Skýrsla pró­fess­or­anna kom út á bók fyrir nokkrum dögum undir heit­inu ,,Overmod og afmagt – histor­ien om det nye Skat“.

Það er ekki nýlunda að ráð­herrar kynni ,,tíma­móta­breyt­ingar“. Þeim er ætíð ætlað að breyta, gera hlut­ina ein­fald­ari og ódýr­ari, ,,jákvæð breyt­ing fyrir borg­ar­ana“ er algengt orða­lag við slík tæki­færi. Oft eru slíkar breyt­ingar af hinu góða, en ekki þó alltaf. Ákvörðun sem danska rík­is­stjórnin tók árið 2004, og var leidd í lög ári síðar, er dæmi um breyt­ingu sem hvorki leiddi til ein­föld­unar né sparn­aðar. Nú, þrettán árum síðar tala margir um þessa breyt­ingu sem mesta skandal í sögu Dan­merkur, á síð­ari tímum að minnsta kosti.

,,Stórt fram­fara­skref“ sagði Anders Fogh Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur þegar hann kynnti, í apríl árið 2004, ákvörðun rík­is­stjórnar sinnar um breyt­ingar á inn­heimtu skatta og gjalda hins opin­bera, ríkis og sveit­ar­fé­laga. Skatt­tekjur eru ein helsta stoð sam­fé­lags­ins og því ekki að undra að mikið væri um þetta fjallað í dönskum fjöl­miðlum. Breyt­ingin sem um ræddi var að inn­heimta skyldi færð frá sveit­ar­fé­lögum í land­inu til nýrrar stofn­unar, SKAT, sem form­lega tók til starfa 1. nóv­em­ber 2005. Lars Løkke Rasmus­sen þáver­andi inn­an­ríkis- og heil­brigð­is­ráð­herra hafði fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar stjórnað und­ir­bún­ings­vinn­unni.

Ein­fald­ara og ódýr­ara

Á áður­nefndum kynn­ing­ar­fundi sagði Lars Løkke Rasmus­sen að nýtt tölvu­kerfi sem SKAT myndi nota væri hið full­komn­asta sem völ væri á. Tölvu­kerfið sem kallað var EFI væri í mótun og yrði, að sögn ráð­herr­ans, tekið í notkun árið 2007. Frétta­menn sem höfðu efa­semdir og töldu sig vita að lengra væri í land með þetta tölvu­kerfi, gengu á ráð­herr­ann en hann sagð­ist bjart­sýnn. Blaða­maður Berl­ingske sagði á fund­inum að þótt bjart­sýni væri góður eig­in­leiki væri raun­sæi þó mik­il­væg­ara. Þegar kom fram á árið 2007 var til­kynnt að EFI yrði ekki til­búið fyrr en árið 2009. Það stóðst hins­vegar ekki og svo fór að tölvu­kerfið var ekki tekið í notkun fyrr en 2013. Danir höfðu þá gefið því nafnið 7-9-13.

Kostn­að­ur­inn við kerfið reynd­ist sam­tals nema sem sam­svarar um það bil 22 millj­örðum íslenskra króna. Sá kostn­aður er þó smá­munir miðað við hvað tap­ast hefur í skatt­tekjum vegna galla í kerf­inu enda köll­uðu danskir fjöl­miðlar EFI dýrasta tölvu­leik sög­unnar. Árið 2016 var ákveðið að loka EFI kerf­inu. Einn kost­anna við nýja kerfið, sagði Lars Løkke Rasmus­sen, vera að með notkun þess yrði unnt að fækka starfs­fólki. Þegar SKAT varð til unnu sam­tals um 11 þús­und manns hjá skatt- og inn­heimtu­stofn­unum sveit­ar­fé­lag­anna.

Hlustuðu ekki á við­var­anir

Þótt EFI tölvu­kerfið væri ekki komið í notkun þegar SKAT hóf starf­semi sína var starfs­fólki fækkað. Frá árinu 2005 og fram til árs­ins 2017 fækk­aði starfs­fólki skatts­ins um rúm­lega 5000 manns og í árs­byrjun 2017 voru starfs­menn 6100. Starfs­menn og margir aðrir bentu marg­sinnis á að starf­semi SKAT væri í molum. Ein ástæða þess væri sú að starfs­fólki fækk­aði mikið en EFI tölvu­kerfið sem átti að leysa manns­hönd­ina af hólmi komst aldrei almenni­lega í gagnið. Stjórn­mála­menn­irnir skelltu skolla­eyrum við þessum ábend­ingum, gagn­rýnendur voru jafn­vel kall­aðir úrtölu­menn.

Níu skatta­ráð­herrar á fjórtán árum

Frá árinu 2004 hafa sam­tals níu (allt karlar) gegnt emb­ætti skatta­mála­ráð­herra. Flestir þeirra hafa staðið stutt við en Kristian Jensen, núver­andi fjár­mála­ráð­herra og vara­for­maður Venstre, var ráð­herra skatta­mála í sex ár, frá 2004 – 2010. Venstre (sem þrátt fyrir nafnið skil­greinir sig sem hægri miðju­flokk) var í rík­is­stjórn­ar­for­ystu þegar ákvörðun um stofnun SKAT var tekin og fram til árs­ins 2011. Frá kosn­ing­unum það ár og til 2015 var flokkur sós­í­alde­mókrata í for­ystu rík­is­stjórn­ar­innar (Helle Thorning-Schmidt) en frá kosn­ingum sum­arið 2015 hefur rík­is­stjórn Venstre undir for­ystu Lars Løkke Rasmus­sen ásamt Liberal Alliance (Frjáls­ræð­is­banda­lagið) og Det Konservative Fol­ke­parti (Íhalds­flokk­ur­inn) verið við völd.

Enginn þeirra níu ráð­herra sem setið hafa í Skatta­ráðu­neyt­inu frá árinu 2004 sá ástæðu til að breyta um stefnu, upp­sagn­irnar hjá SKAT héldu áfram allt fram til árs­loka 2016.

Millj­arðar útistand­andi

24. apríl 2017 birti dag­blaðið Politi­ken frétt um að í skýrslu sem end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PWC hefði unnið, fyrir Skatta­ráðu­neytið, kæmi fram að sam­tals ætti SKAT útistand­andi um það bil 100 millj­arða króna (um það bil 1840 millj­arðar íslenskir) og að lík­indum yrði ekki hægt að inn­heimta nema í hæsta lagi fimmt­ung þess­arar upp­hæðar, um 20 millj­arða. Þremur dögum síðar birti dag­blaðið Berl­ingske við­töl við marga sér­fræð­inga sem allir lýstu eftir við­brögðum stjórn­valda. Frá ráð­herrum heyrð­ist ekk­ert. Nokkrum dögum síðar, eða 1. maí, gagn­rýndi Mette Frederik­sen, for­maður Sós­í­alde­mókrata, hve illa hefði verið staðið að und­ir­bún­ingi SKAT á sínum tíma og beindi spjótum sínum fyrst og fremst að Kristian Jensen, sem sat í Skatta­ráðu­neyt­inu frá 2004 til 2010. Enn þögðu ráð­herr­arnir, allir sem einn.

11. maí 2017 gerð­ist svo það að Carl Holst, þing­maður Venstre, lýsti því yfir í við­tali við Berl­ingske að ekki dygði að stinga höfð­inu í sand­inn, rann­sókn á klúðr­inu hjá SKAT væri nauð­syn­leg og yrði að fara fram. Tveimur dögum síðar til­kynntu tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar á þing­inu, Enheds­listen (Ein­ing­ar­list­inn) og Alt­ernati­vet (Annar val­kostur) að þeir myndu krefj­ast rann­sóknar á SKAT, og undir þetta tóku svo Sós­í­alde­mókratar og tals­menn Danska Þjóð­ar­flokks­ins. Þar með var ljóst að rann­sóknin yrði sam­þykkt í danska þing­inu (Fol­ket­inget). Þá rank­aði skatta­ráð­herr­ann Karsten Lauritzen við sér og til­kynnti að hann myndi kalla full­trúa allra flokka til fundar við sig og að form­leg rann­sókn á SKAT færi fram. Ráð­herr­ann hafði í ágúst 2016 til­kynnt að SKAT fengi aukna fjár­muni og að starfs­fólki þar myndi fjölga um 1000 fram til árs­ins 2020.

Afhend­ing­ar­tregða

Frá upp­hafi var ljóst að nefnd­ar­innar sem skipuð var til að ,,fara í saumana“ á SKAT biði bæði umfangs­mikið og tíma­frekt verk­efni. Nefndin tók til starfa 1. nóv­em­ber í fyrra og óskaði fljót­lega eftir margs­konar gögnum frá Skatta­ráðu­neyt­inu og nokkrum stofn­unum þess. Það hefur þó reynst hægar sagt en gert. Michael Ellehauge, for­maður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar (dóm­ari við Vestra -Lands­rétt) sagði fyrir nokkrum dögum, í við­tali við Berl­ingske, að treg­lega gengi að fá gögn afhent. Nefndin hefði orðið að setja ráðu­neyt­inu sér­staka tíma­fresti til að afhenda gögn. Haldnir hefðu verið margir fundir og fjöldi bréfa send, til að reka á eftir afhend­ingu gagna.

Ekki er ljóst hvenær rann­sókn­ar­nefndin lýkur störfum og skilar af sér en það verður í alfyrsta lagi í lok næsta árs, að sögn for­manns nefnd­ar­innar. Til marks um umfang máls­ins má nefna að til þessa hefur rann­sókn­ar­nefndin fengið afhentar 1814 möppur með gögnum og ,, það er bara byrj­unin“ sagði Michael Ellehauge. Stjórn­ar­and­stæð­ingar á þingi saka Karsten Lauritzen skatta­ráð­herra um seina­gang og tregðu við afhend­ingu gagna. Ráð­herr­ann neitar slíkum ásök­unum og seg­ist hafa gefið starfs­fólki ráðu­neyt­is­ins fyr­ir­skip­anir um að afhenda öll gögn sem rann­sókn­ar­nefndin óskar eftir en bendir á að þetta sé ,,risa­mál“, eins og hann komst að orði.

Stofn­unin SKAT lögð niður

Eins og nefnt var fyrr í þessum pistli var SKAT stofnað árið 2005 og þá lýst sem ,,stóru fram­fara­skrefi“. Þótt til­gang­ur­inn hafi verið góður varð reyndin önnur. SKAT varð eins­konar risi á brauð­fótum og fram­fara­skrefið var aldrei stigið. Í júní í fyrra til­kynnti svo rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen að ákveðið hefði verið að leggja stofn­un­ina SKAT niður og þess í stað yrðu stofn­aðar 7 skatt­stofur sem stað­settar yrðu víða um land.

Með þess­ari breyt­ingu sagði Karsten Lauritzen skatta­ráð­herra von­ast til að þeim hremm­ingum sem lands­menn hefðu orðið vitni að á und­an­förnum árum væri lokið. Og þær eru vissu­lega margar hremm­ing­arnar. Hæst ber þá stað­reynd að skatt­ur­inn á nú útistand­andi jafn­virði 1840 millj­arða íslenskra króna og líkur eru á að aðeins tak­ist að inn­heimta lít­inn hluta þeirra fjár­muna.

Bókin Overmod og afmagt

Í nýút­kominni bók pró­fess­or­anna tveggja, sem getið var í upp­hafi pistils­ins er það sem þeir nefna ,,rauna­sögu skatts­ins“ rakin. Í stuttu máli er nið­ur­staða tví­menn­ing­anna að stofnun SKAT hafi verið mis­tök. Ákvörð­unin hafi verið tekin í skyndi, án þess að sýnt hefði verið fram á gagn­semi breyt­ing­ar­innar, und­ir­bún­ing­ur­inn alltof lít­ill og illa ígrund­aður. Fjölda­upp­sögnum hafi verið haldið áfram löngu eftir að ljóst var að tölvu­kerfið EFI væri hand­ó­nýtt , eins og pró­fess­or­arnir kom­ast að orði. Og loks hafi stjórn­mála­menn tregð­ast við að við­ur­kenna vand­ann. Pró­fess­or­arnir segja að í SKAT mál­inu hafi stjórn­mála­menn fallið á próf­inu, ekki einu sinni fengið 4.9!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár